Fréttablaðið - 22.01.2022, Page 4
Með þessari aðgerð
yrði alvöru samráð.
Ekkert eftir á kjaftæði.
Guðjón Sigurðs-
son, formaður
MND félagsins
Formaður MND félagsins
telur eðlilegt að þiggjendur
þjónustu Landspítalans fái um
það að segja hvernig hún sé
veitt. Sjúklingasamtök þurfi
að fá fulltrúa í stjórn, enda sé
það í samræmi við alþjóðlegar
skuldbindingar Íslands.
kristinnhaukur@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Guðjón Sigurðs
son, formaður MND félagsins, telur
eðlilegt og mikilvægt að sjúklingar
fái aðkomu að stjórn Landspítala.
Þeir hafi mesta hagsmuni af þeirri
þjónustu sem veitt er. Með þessu
yrði tekið alvöru skref í átt til
samráðs við sjúklinga, í stað þess
sýndarsamráðs sem hingað til hafi
viðgengist.
Willum Þór Þórsson heilbrigðis
ráðherra hefur sent inn drög að
frumvarpi um nýja sjö manna stjórn
spítalans. Auk formanns yrðu skip
aðir tveir fulltrúar með sérþekkingu
á rekstri og áætlanagerð, tveir með
sérþekkingu á heilbrigðisþjónustu
og vísindarannsóknum og tveir full
trúar starfsfólks án atkvæðisréttar.
Sjúklingar myndu ekki hafa neinn
málsvara.
„Við viljum hafa um það að segja
hvernig þjónusta við okkur er veitt.
Rétt eins og aðrir sem hafa hags
muni af því að spítalinn sé góður,
svo sem starfsfólk, ríkið og f leiri,“
segir Guðjón. „Þá gætum við rifið
kjaft strax í upphafi. Áður en allt er
orðið niðurneglt. Til að það þurfi
ekki að vinda ofan af hlutunum
eftir á.“
Máli sínu til stuðnings vísar
Guðjón til Samnings Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Íslensk stjórnvöld undirrituðu
samninginn árið 2007 en hafa ekki
enn lögfest hann. Öryrkjabanda
lagið segist treysta því að hann verði
lögfestur á yfirstandandi þingi.
Í 4. grein samningsins segir að
við þróun og innleiðingu löggjafar,
stefnu og annars ákvarðanatöku
ferlis varðandi málefni fatlaðs fólks,
skuli aðildarríkin hafa náið samráð
við það og tryggja virka þátttöku.
Það er með milligöngu þeirra sam
taka sem koma fram fyrir þeirra
hönd. „Þetta þýðir að öll ákvarðana
taka stjórnvalda sem lýtur að fötl
uðu fólki sé tekin eftir samráðsferli
sem byrjar strax í upphafi,“ segir í
samningnum.
Fjölmörg sjúklingasamtök eru
í landinu. Svo sem Krabbameins
félagið, Geðhjálp, Einstök börn,
Blindrafélagið, Félag heyrnar
lausra, Hjartaheill, Samtök lungna
sjúklinga, MS félagið og mörg
önnur. Guðjón segir að sjúklingar
hafi miklar skoðanir á því hvernig
þjónustan við þá eigi að vera. Eðli
legt væri að stjórnarsetu í Land
spítalanum yrði skipt á milli sam
taka og heildarsamtök á borð við
Öryrkjabandalagið hefðu yfirum
sjón með því. Hann segist þó ekkert
hafa heyrt frá öðrum samtökum
varðandi tillögu sína, en gerir ráð
fyrir að fleiri tillögur berist.
„Með þessari aðgerð yrði alvöru
samráð. Ekkert eftir á kjaftæði,“
segir Guðjón. Enn sé samráð við
fatlað fólk frekar upp á punt en í
alvöru. ■
Vilja að fulltrúar samtaka sjúklinga
fái að setjast í stjórn Landspítalans
Samkvæmt nýju
frumvarpi heil-
brigðisráðherra
fá sjúklingar
ekki fulltrúa í
stjórn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ser@frettabladid.is
EIGNIR Hlutdeild eignamestu
Íslendinga í heildareignum á
landinu, hefur lækkað verulega frá
árinu 2010, að því er fram kemur í
tölfræðilegri samantekt Viðskipta
ráðs Íslands. Mest er lækkunin hjá
efsta 0,1 prósentinu, eða sem nemur
46 prósentum af eignum þess.
Í tölum ráðsins kemur fram að
jöfnuður tekna á Íslandi hafi haldist
stöðugur undanfarin ár, og sé litið
til hlutdeildar þeirra tekjuhæstu af
heildartekjum landsmanna, megi
ætla að tekjujöfnuður hafi heldur
aukist á allra síðustu árum. ■
Hrun í eignum
þeirra ríkustu
Þeir auðugustu eiga minna en fyrir
áratug af heildareignum Íslendinga.
TRYGGÐU ÞÉR RAM Í FORSÖLU
BJÓÐUM UPP Á 37”-40”
BREYTINGAPAKKA
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
R A M
BÍLL Á MYND: RAM 3500 LARAMIE CREW CAB MEÐ 37” BREYTINGU, KASTARAGRIND OG LJÓSKÖSTURUM
bth@frettabladid.is
MÝVATNSSVEIT „Já, það er söknuður
að missa af þorrablóti vegna Covid,
þetta verður annað árið í röð sem ég
næ ekki að byrla blótsgestum kæst
egg,“ segir Ólafur Þröstur Stefánsson,
íbúi í Mývatnssveit.
Ólafur er í hópi nokkurra heima
manna sem setja andaregg, tínd í
varphólmum á Mývatni, í ösku á
sumrin. Bíða eggin svo og úldna uns
hægt er að borða þau á þorra. Sum
verða hnossgæti að sögn Ólafs, en
önnur síðri.
Eggin þurfa að vera „stropuð“,
þannig að rauða og hvíta hafi runnið
saman, undanfari ungunar. Með
geymslunni verður gerjun eða kæs
ing, ekki ósvipað verkun á hákarli.
Oft verða eggin bragðmikil eins og
rammsterkur ostur. Matarhefðin
lagðist að sögn Ólafs af um skeið, en
nú hefur þessi matur komist í tísku.
„Ég tek 100200 egg og kæsi þau á
ári, býð þau sem snakk þegar menn
hittast. Það er gaman að ganga með
egg á milli borða á þorrablóti og gefa
fólki að smakka, en við verðum að
bíða enn eitt ár eftir hópneyslunni.“
Sumir kjamsa á eggjunum og
skola þeim glaðir niður með sterkum
drykk, að sögn Ólafs. „Aðrir ulla og
gretta sig. Þetta er alltaf ákveðið
óvissuævintýri, það eru engin tvö
egg eins á bragðið, en algjört ævin
týri að deila góðu eggjunum.“
Ólafur segir eggjatöku í Mývatns
sveit hafa verið gríðarlega á árum
áður, jafnvel fleiri þúsund egg tekin
á hverri jörð fyrir sig. „Það munaði
heldur betur um þessa búbót og
skipti máli að geta geymt þau sem
lengst en nú kæsa menn egg sér til
gamans og menningarauka.“. ■
Mývetningar trega hópneyslu á úldnum eggjum
Hið óútreiknanlega hnossgæti,
úldin andaregg. MYND/AÐSEND
gar@frettabladid.is
ALÞJÓÐAMÁL Utanríkisráðherrar
Bandaríkjanna og Rússlands fund
uðu í gær um Úkraínu. Sögðust þeir
Antony Blinken og Sergei Lavrov
hafa átt hreinskiptnar viðræður
um hvernig megi draga úr hættu á
útbreiddum átökum í Úkraínu.
Lavrov neitaði sem fyrr að mikl
um heraf la Rússa við landamæri
Úkraínu væri ætlað að ráðast inn
í landið. Blinken sagði að gerðu
Rússar innrás, myndu Bandaríkin
bregðast við af hörku. Bandaríkin
og bandalagsþjóðir þeirra hafa áður
sagst munu grípa til nýrra refsi
aðgerða gegn Rússum. ■
Stórveldi ræddu
um Úkraínu
Antony Blinken og Sergei Lavrov.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
4 Fréttir 22. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ