Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.01.2022, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 22.01.2022, Qupperneq 22
En þegar að þessu lagi kom voru allir orðnir svo þreyttir og timbraðir að þeir nenntu ekkert að vera við hliðina á mér, svo ég bara á þetta lag með húð og hári. Einn okkar ástsælustu tón- listarmanna, Valgeir Guð- jónsson, stendur á sjötugu, en sköpunargleðin hefur sannarlega ekki látið undan. Verkefnið Saga Musica, þar sem hann sækir í Íslendinga- sögurnar í tónum og tali, á hug hans allan. Á morgun, sunnudaginn 23. janúar, verða liðin sjötíu ár frá því Val- geir Guðjónsson kom í heiminn á Fæðingar- heimilinu við Eiríksgötu. Svo snjó- þungt var þann janúarmánuðinn að ferja þurfti Margréti Árnadóttur, móður Valgeirs, með frumburð sinn frá Eiríksgötunni að Njálsgötunni á snjóbíl. Valgeir ætlar að fagna tugunum sjö á hógværan hátt, þó svo eigin- kona hans, Ásta Kristrún, sem er sjaldnast langt undan, laumi því að í spjalli okkar að ætlunin sé að fagna sjötugasta aldursárinu í 365 daga. Ég hitti Valgeir í íbúð sem þau hjón hafa tekið á leigu í Vestur- bænum í Reykjavík. Undanfarin átta ár hafa þau búið og starfað á Eyrarbakka og gera enn, afdrepið í Vesturbænum er hugsað til að geta verið með annan fótinn í bænum þessa mánuðina, þegar hvað snjó- þyngst er yfir heiðina. Við byrjum á byrjuninni, þennan snjóþunga janúardag árið 1952. „Þeir voru tveir sem báru okkur inn, enda máttu konur ekkert gera eftir barnsburð og við lágum í viku inni í Fæðingarheimilinu,“ segir Valgeir. „Hver heldurðu að hafi borið ykkur upp til ömmu og afa? Enginn annar en Gunnar Huseby,“ rifjar hann upp hlæjandi og á þá við kúluvarparann og afreksíþróttamanninn sjálfan. „Bílstjórinn var svo sjálfur Guð- mundur Jónasson, en enn aka um bæinn rútur merktar honum. Hann var eigandi snjóbílsins sem var kall- aður Gussi. Ég átti nú síðar eftir að kynnast honum betur þegar hann keyrði okkur oft á skíði.“ Nú sjötíu árum síðar er erfitt að ímynda sér að þurft hafi snjóbíl til Víkingaskipssiglingin olli stefnubreytingu Valgeir byrjaði ungur að pikka á gítar og enn er gítarinn sjaldnast langt undan. Undanfarin ár hefur hann samið fjölda laga í afslöppuðu umhverfinu á Eyrarbakka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Valgeir er bókelskur maður og hafa Íslendingasögurnar alltaf heillað hann. Hefur hann nú samið heilt lagasafn þeim tengt og kallar Saga Musica. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is að komast gatna á milli í miðbæn- um, enda marautt í Vesturbænum og ekkert útlit fyrir að breyting verði á því. „Já, nú er snjórinn á hröðu und- anhaldi. Ég var mikið á skíðum í gamla daga og fór alltaf þegar það var hægt. En það er svolítið síðan ég fór að hugsa: Látum þau bara skíða,“ segir hann í léttum tón, fullsaddur á skíðamennskunni þó að hann segist hafa verið góður skíðamaður. Lærði að lesa þriggja ára Fyrstu árin bjó Valgeir ásamt for- eldrum og ömmu Sigríði og afa Val- geiri í miðbænum og segist sjálfur hafa verið kallaður innipúki, enda hafði hann meira gaman af því að sökkva sér í bækur en að taka þátt í ærslaganginum utandyra. „Ég lærði að lesa fyrir fjögurra ára aldur en það var frænka mín, Guð- rún Þorvarðardóttir, sem starfaði lengi í leikhúsunum sem kenndi mér það. Hún var fimm árum eldri en ég og bara tók litla frænda, stillti honum upp með Moggann sem var alltaf keyptur á mínu æskuheimili, enda faðir minn mikill Sjálfstæðis- maður, og lét hann lesa.“ Valgeir lýsir því myndrænt hversu stórt Morgunblaðið hafi verið fyrir tæplega fjögurra ára gamlan lestrar- hest. „Það sást kannski í hendurnar á endunum og svo stóðu tveir litlir fætur niður úr blaðinu.“ Lestraráhuginn fékk svo sannar- lega að blómstra þegar Valgeir dvaldi í fimm sumur á Galtarvita hjá afabróður sínum, vitaverðinum og rithöfundinum Óskari Aðal- steini, Hönnu konu hans, sonum, hundi, ketti og hesti. „Bókaforðinn á Vitanum nam hundruðum og voru allir veggir huldir bókahillum,“ rifjar hann upp. „Þetta var þvílíkt gósenland sem ég tel mig hafa búið að allar götur síðan og að hafi styrkt orðvitund mína. Síðan bættist tónlistaráhuginn við en Ríkisútvarpið var miðillinn sem kveikti hann og hefur sá áhugi nú fylgt mér í 60 ár. Meðal laga sem sitja enn í mínu minni frá þessum árum á Vitanum eru til dæmis danska 22 Helgin 22. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.