Fréttablaðið - 22.01.2022, Page 39
hagvangur.is
Sótt er um starfið á www.hagvangur.is.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar
Skannaðu kóðann fyrir
nánari upplýsingar
Leitað er að kraftmiklum einstaklingi til krefjandi stjórnunar- og
leiðtogastarfa þar sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði og
forystuhæfileika.
Forstjóri leiðir öflugt starfsfólk félagsins og ber ábyrgð á rekstri
samstæðunnar gagnvart stjórn RARIK. Hann ber m.a. ábyrgð á
stefnumótun og framtíðarsýn, skipulagi, samskiptum við stærri
hagsmunaaðila og stefnumótandi samningagerð.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri
• Frumkvæði, drifkraftur og metnaður
• Leiðtogahæfni og færni til að hvetja aðra til árangurs
• Góðir samskiptahæfileikar
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Færni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu
ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk
þess að afla, dreifa og annast sölu á heitu vatni
en dótturfélagið Orkusalan sér um framleiðslu
og sölumál. Starfsmenn RARIK eru um 200 á 20
starfsstöðvum sem eru dreifðar vítt og breitt um
landið.
RARIK leggur áherslu á jafnrétti og hvetur alla
áhugasama til að sækja um starfið, óháð kyni.
RARIK óskar eftir að ráða forstjóra