Fréttablaðið - 22.01.2022, Síða 67

Fréttablaðið - 22.01.2022, Síða 67
Allar frumur líkamans þurfa á kólesteróli að halda fyrir eðlilega starfsemi líkamans en það er meðal annars mikil- vægt til myndunar frumna og hormóna. Ýmsir þættir geta þó haft áhrif á magn kólester- óls í blóði Lipinorm er háþróað bæti- efni sem inniheldur öflugar jurtir og vítamín sem hafa heilsueflandi eiginleika fyrir mannslíkamann með ein- stakri virkni sinni. Hjarta okkar hefur ýmsum afar mikilvægum hlutverkum að gegna, meðal annars viðheldur hjartað hringrás blóðsins og flutningi súr- efnis og næringar um líkamann. Á hverri einustu mínútu dælir hjartað um fimm lítrum af blóði um líkama okkar og má því segja að góð hjartaheilsa sé gríðarlega mikilvæg. Vert er að huga að því að hjartaheilsa og kólesterólgildi líkamans haldast í hendur. Hvað er kólesteról? Kólesteról er ein tegund blóðfitu sem gegnir mikilvægu hlut- verki í líkamanum. Allar frumur líkamans þurfa á kólesteróli að halda fyrir eðlilega starfsemi líkamans en það er meðal annars mikilvægt til myndunar frumna og hormóna. Ásamt því þarf líkaminn kólesteról við framleiðslu ýmissa hormóna, svo sem testósteróns og estrógens. Kólesteróli má skipta í heildarkólesteról, HDL-kólester- ól, LDL-kólesteról og þríglýseríð. HDL-kólesteról er oft kallað „góða kólesterólið“ en það er okkur nauðsynlegt og hjálpar á ýmsan hátt við að fyrirbyggja hina ýmsu kvilla. LDL-kólesteról er hins vegar oft kallað „slæma kólesterólið“ en það viljum við forðast, það getur síast inn í æðavegginn og hlaðist þar upp og valdið því að æðarnar þrengjast, stífna og missa teygjan- leika sinn en það hindrar eðli- legt blóðstreymi um æðarnar og eykur álag á hjartað. Ýmsir þættir geta þó haft áhrif á magn kólest- eróls í blóði og er meðal annars mikilvægt að huga að hollu og fjöl- breyttu mataræði ásamt reglulegri hreyfingu. Mataræðið skiptir máli Öll vitum við að mataræði hefur gríðarlega mikið að segja hvað varðar andlega og líkamlega heilsu okkar. Mataræði skiptir hvað mestu máli þegar kemur að vellíð- an en mikilvægt er að allir tileinki sér hollt og fjölbreytt mataræði. Hvað varðar kólesterólið í líkama okkar er mataræði sá þáttur sem hefur hvað mest áhrif. Með því að stilla fituneyslu í hóf, velja frekar mjúka fitu en harða og neyta græn- metis, ávaxta og kornmetis er hægt að halda kólesterólgildum í blóði eðlilegum. Að auki geta valin fæðubótarefni haft jákvæð áhrif á kólesterólgildi líkamans. Lipinorm er háþróað bætiefni á markaði sem inniheldur öflugar jurtir og vítamín. Blandan inni- heldur þistilhjörtu sem innihalda virka efnið cynarin sem í þús- undir ára hefur verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína fyrir mannslíkamann. Þistilhjörtu geta stuðlað að því að viðhalda eðli- legu kólesterólgildi í líkamanum. Þessi einstaka bætiefnablanda inniheldur að auki mónakólín K úr rauðum ger-hrísgrjónum (RYR) sem eru dökkrauð grjón og hafa verið þekkt í aldanna raðir fyrir jákvæð áhrif á heilsu okkar. Að auki inniheldur Lipinorm ólífur og þíamín (B1-vítamín) sem meðal annars stuðlar að eðli- legum orkugæfum efnaskiptum, eðlilegri starfsemi taugakerfisins og hjartans. Venjulega hækka kólesterólgildi í líkamanum með aldrinum en Lipinorm hefur það að markmiði að viðhalda eðlilegu kólesterólgildi og er því ekki úr vegi að bæta þessari einstöku vöru inn í daglega rútínu. ■ Kólesteról og hjartaheilsa haldast í hendur Lipinorm inni- heldur öflugar jurtir og víta- mín. Lipinorm hefur góð áhrif á heilsuna. Gott er að fylgjast með blóðþrýstingnum. Allir ættu að forðast að vera með of mikla blóðfitu til að forðast hjartasjúkdóma. MYNDIR/AÐSENDAR Vegan Health Sérstaklega samsett bætiefnablanda fyrir þá sem eiga erfitt með að taka upp B12 og járn úr fæðunni og þá sem neyta ekki dýraafurða. Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019 Hámarksupptaka tryggð þegar úðað er út í kinn. Hröð og mikil upptaka. Betra og öruggara en töflur eða hylki. Pakkningar gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum 48 skammtar • Vegan D3 • B12 • Járn & Joð Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 22. janúar 2022
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.