Fréttablaðið - 22.01.2022, Blaðsíða 67
Allar frumur
líkamans þurfa á
kólesteróli að halda
fyrir eðlilega starfsemi
líkamans en það er
meðal annars mikil-
vægt til myndunar
frumna og hormóna.
Ýmsir
þættir geta
þó haft
áhrif á
magn
kólester-
óls í blóði
Lipinorm er háþróað bæti-
efni sem inniheldur öflugar
jurtir og vítamín sem hafa
heilsueflandi eiginleika fyrir
mannslíkamann með ein-
stakri virkni sinni.
Hjarta okkar hefur ýmsum afar
mikilvægum hlutverkum að gegna,
meðal annars viðheldur hjartað
hringrás blóðsins og flutningi súr-
efnis og næringar um líkamann.
Á hverri einustu mínútu dælir
hjartað um fimm lítrum af blóði
um líkama okkar og má því segja
að góð hjartaheilsa sé gríðarlega
mikilvæg. Vert er að huga að því
að hjartaheilsa og kólesterólgildi
líkamans haldast í hendur.
Hvað er kólesteról?
Kólesteról er ein tegund blóðfitu
sem gegnir mikilvægu hlut-
verki í líkamanum. Allar frumur
líkamans þurfa á kólesteróli að
halda fyrir eðlilega starfsemi
líkamans en það er meðal annars
mikilvægt til myndunar frumna og
hormóna. Ásamt því þarf líkaminn
kólesteról við framleiðslu ýmissa
hormóna, svo sem testósteróns og
estrógens. Kólesteróli má skipta í
heildarkólesteról, HDL-kólester-
ól, LDL-kólesteról og þríglýseríð.
HDL-kólesteról er oft kallað „góða
kólesterólið“ en það er okkur
nauðsynlegt og hjálpar á ýmsan
hátt við að fyrirbyggja hina ýmsu
kvilla. LDL-kólesteról er hins vegar
oft kallað „slæma kólesterólið“ en
það viljum við forðast, það getur
síast inn í æðavegginn og hlaðist
þar upp og valdið því að æðarnar
þrengjast, stífna og missa teygjan-
leika sinn en það hindrar eðli-
legt blóðstreymi um æðarnar og
eykur álag á hjartað. Ýmsir þættir
geta þó haft áhrif á magn kólest-
eróls í blóði og er meðal annars
mikilvægt að huga að hollu og fjöl-
breyttu mataræði ásamt reglulegri
hreyfingu.
Mataræðið skiptir máli
Öll vitum við að mataræði hefur
gríðarlega mikið að segja hvað
varðar andlega og líkamlega heilsu
okkar. Mataræði skiptir hvað
mestu máli þegar kemur að vellíð-
an en mikilvægt er að allir tileinki
sér hollt og fjölbreytt mataræði.
Hvað varðar kólesterólið í líkama
okkar er mataræði sá þáttur sem
hefur hvað mest áhrif. Með því að
stilla fituneyslu í hóf, velja frekar
mjúka fitu en harða og neyta græn-
metis, ávaxta og kornmetis er
hægt að halda kólesterólgildum í
blóði eðlilegum. Að auki geta valin
fæðubótarefni haft jákvæð áhrif á
kólesterólgildi líkamans.
Lipinorm er háþróað bætiefni á
markaði sem inniheldur öflugar
jurtir og vítamín. Blandan inni-
heldur þistilhjörtu sem innihalda
virka efnið cynarin sem í þús-
undir ára hefur verið þekkt fyrir
heilsueflandi eiginleika sína fyrir
mannslíkamann. Þistilhjörtu geta
stuðlað að því að viðhalda eðli-
legu kólesterólgildi í líkamanum.
Þessi einstaka bætiefnablanda
inniheldur að auki mónakólín
K úr rauðum ger-hrísgrjónum
(RYR) sem eru dökkrauð grjón og
hafa verið þekkt í aldanna raðir
fyrir jákvæð áhrif á heilsu okkar.
Að auki inniheldur Lipinorm
ólífur og þíamín (B1-vítamín) sem
meðal annars stuðlar að eðli-
legum orkugæfum efnaskiptum,
eðlilegri starfsemi taugakerfisins
og hjartans. Venjulega hækka
kólesterólgildi í líkamanum með
aldrinum en Lipinorm hefur það
að markmiði að viðhalda eðlilegu
kólesterólgildi og er því ekki úr
vegi að bæta þessari einstöku vöru
inn í daglega rútínu. ■
Kólesteról og hjartaheilsa haldast í hendur
Lipinorm inni-
heldur öflugar
jurtir og víta-
mín.
Lipinorm hefur góð áhrif á heilsuna.
Gott er að fylgjast með blóðþrýstingnum. Allir ættu að forðast að vera með of mikla blóðfitu til að forðast hjartasjúkdóma. MYNDIR/AÐSENDAR
Vegan Health
Sérstaklega samsett bætiefnablanda fyrir þá sem eiga erfitt með að
taka upp B12 og járn úr fæðunni og þá sem neyta ekki dýraafurða.
Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019
Hámarksupptaka tryggð þegar úðað er út í kinn.
Hröð og mikil upptaka.
Betra og öruggara en töflur eða hylki.
Pakkningar gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
48 skammtar
• Vegan D3 • B12 • Járn & Joð
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 22. janúar 2022