Fréttablaðið - 22.01.2022, Side 86
Það er eins
og það sé
ákveðin
lýðræðis
væðing í
bókmennt
unum og
vonandi er
það að
endur
spegla
breytingar
í samfélag
inu.
Bóksala stúdenta er örugglega
ein skemmtilegasta og áhuga-
verðasta bókabúð á höfuð-
borgarsvæðinu. Þar hefur
Óttarr Proppé starfað sem
verslunarstjóri síðan 2018.
Óttarr er þaulvanur bóksali, þótt
hann hafi einnig sinnt öðrum störf-
um, þar á meðal þingmennsku og
starfað í borgarstjórn. „Ég datt beint
úr menntaskóla inn í bóksölugeir-
ann. Í rúm tuttugu ár starfaði ég við
bóksölu, lengst í Máli og menningu
og fór í gegnum allan þann rússí-
bana sem fylgdi eigendaskiptum og
uppstokkun,“ segir Óttarr.
Finnst honum hann hafa séð
í geg num árat ug ina ábe randi
þróun í bóksölu og bókaútgáfu?
„Það urðu miklar breytingar með
kiljunni og svo hljóðbókinni og
raf bókinni. Við finnum eins og
aðrir að vefverslun er að verða æ
sterkari. Þegar ég var að byrja í
bókabransanum þá seldust fagur-
bókmenntir mjög vel, til dæmis
bækur Milan Kundera. Síðan kom
ákveðin sprengja um aldamótin og
glæpasögur og vísindaskáldsögur
urðu ráðandi. Síðustu árin finnst
mér þetta aðeins vera að breytast.
Þessi bókmenntaform, glæpasagan
og fantasían, hafa kannski ekki
þróast eins og annað í bókmennt-
unum og eru að gefa eitthvað eftir.
Stóra sprengingin á síðustu árum
er rödd kvenna sem er orðin mjög
sterk og það sama má segja um
raddir minnihlutahópa. Það er eins
og það sé ákveðin lýðræðisvæðing
í bókmenntunum og vonandi er
það að endurspegla breytingar í
samfélaginu.“
Fjölbreytnin er sem sagt orðin
meiri. „Á fyrstu árum mínum í
bransanum voru áberandi bækur
frá Rússlandi og töfraraunsæið frá
Suður-Ameríku datt inn, en á sama
tíma heyrðist ekkert frá Indlandi.
Síðan kom bylgja af indverskum
bókum og núna eru afrískar bækur
líka mjög áberandi. Það er eiginlega
allt í gangi.
Mjög jákvæð breyting varð síðan
hér á landi, sem er hin aukna áhersla
á barnabækur og unglingabækur,
sem maður fær ekki séð annað en
séu mjög vinsælar bókmenntir. Það
fær mann til að vera bjartsýnan á
framtíðina.“
Bókabúð stórs þorps
Óttarr segir að sín tilfinning sé að
fólk lesi mjög mikið. „Mér finnst
ég finna fyrir miklum áhuga á
lestri, en bókin er í samkeppni við
aðra miðla um tíma fólks. Nýir
miðlar taka kannski kraft frá bók-
menntum en fólk les af því það
vill fá sögur. Bókin á pappír er enn
þá ótrúlega sterk, það er eitthvað
Viljinn til að lesa er alltaf til staðar
Íslendingar eru í eðli sínu bókelsk þjóð, segir Óttarr. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
við það að halda sögunni allri
í höndunum á sér og geta ráðið
lestrarhraðanum. Viljinn til að
lesa er alltaf til staðar. Auðvitað
eru ekki allir sem safna bókum, en
það eru lúmskt margir. Íslendingar
eru í eðli sínu bókelsk þjóð, þótt
við séum stundum upptekin við
annað.“
Hjá Bóksölu stúdenta er eðli
málsins samkvæmt áhersla á að
selja námsbækur, en þarna er
einnig hin fínasta bókabúð fyrir
fólk sem vill fylgjast með því sem
er að gerast í hinum alþjóðlega
bókaheimi. „Áherslan er fyrst og
fremst á að þjóna háskólanem-
endum í öllum háskólum landsins
um námsefni, en það eru allir vel-
komnir. Deildirnar í bókabúðinni,
og í vefversluninni boksala.is,
endurspegla fögin í háskólanum,
sem spanna auðvitað f lest sem er
gefið út. Síðan erum við með tölu-
vert lúmska deild í bókmenntum
líka. Við f lytjum sjálf inn bækur,
fyrst og fremst á ensku, og bjóðum
sérpantanaþjónustu og raf bækur.
Auðvitað reynum við líka að
endur spegla það helsta frá íslensk-
um útgefendum og sérstaklega
fræðilegu útgáfunum á Íslandi. Við
erum bókabúð og áherslan er á fjöl-
breyttar og skemmtilegar bækur í
sem f lestum bókaflokkum. Bóka-
kaffið okkar er svo rúsína í pylsu-
enda og verður sífellt vinsælla.
Við erum ekki bara að þjónusta
háskólana, heldur lít ég svo á að við
séum bókabúðin í þessu háskóla-
þorpi sem er í Vatnsmýrinni. Ég
held að margir átti sig ekki á hvað
þetta er menningarlega stórt og fjöl-
mennt svæði. Hér á Háskólatorgi er
ákveðin miðja og við tökum það
mjög alvarlega í bóksölunni að
okkar hlutverk sé að vera bókabúð
þessa stóra þorps.“
Saknar ekki stjórnmálanna
Auk þess að starfa sem versl-
unarstjóri er Óttarr tónlistar-
maður og lagahöfundur og hefur
samið handrit. Þar sem hann er
umkringdur bókum nær alla daga,
spyr blaðamaður hvort hann langi
til að skrifa skáldsögu. „Ég er ekki
búinn að finna neitt sem vantar
á bókamarkaðinn,“ svarar hann
kíminn. „Plúsinn við að vera á kafi
í bókum er að maður er alltaf að
lesa og kynnist alls konar hug-
myndum. Oft les maður eitthvað í
bókum og hugsar: Þetta er einmitt
eitthvað sem mér hefur dottið í
hug. En ég hef ekki fundið þörf hjá
mér til að setjast niður og skrifa
skáldsögu.“
Í allnokkur ár starfaði hann í pól-
itík og var heilbrigðisráðherra um
tíma. Saknar hann stjórnmálanna?
„Ég er dauðfeginn að vera laus úr
þeirri dómhörku og þeim látum
sem eru í umræðum um stjórn-
málin. Það skemmtilega í stjórn-
málum er að vinna með og vera
innan um fólk sem hefur mikla
ástríðu fyrir starfi sínu. Það var líka
mjög gaman fyrir nörd eins og mig
að vera stöðugt að koma mér inn í
alls konar mál. Það var ánægjulegt
að fá tækifæri til að álpast þarna
inn í nokkur ár, fá að læra hitt og
þetta og kynnast alls konar fólki.
Niðurstaðan er samt sem áður sú
að ég sakna stjórnmálanna ekki
neitt.“ n
kolbrunb@frettabladid.is
Í dag, laugardaginn 22. janúar,
verður sýning Hallgerðar Hall-
grímsdóttur, Fáeinar vangavelt-
ur um ljósmyndun – III. hluti,
opnuð í Sverrissal Hafnarborgar.
Sýningin er hluti af Ljósmynda-
hátíð Íslands, sýningarstjóri er
Unnar Örn Auðarson.
Á sýningunni veltir Hall-
gerður fyrir sér ljósmynda-
tækninni sem miðli, þar sem
hún skoðar bæði veruleikann í
ljósmyndinni sem og veruleika
ljósmyndarinnar sjálfrar.
Hallgerður er með BA í mynd-
list með áherslu á ljósmyndun
frá Glasgow School of Art og
meistaragráðu í myndlist frá
Akademin Valand í Gautaborg,
þaðan sem hún lauk námi árið
2019. n
Sýning Hallgerðar
Kyrralíf er eitt af verkum Hallgerðar á sýningunni. MYND/AÐSEND
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Þjáist af liðverkjum?
Viðkvæmt ónæmiskerfi? - Of hár blóðþrýstingur?
Arctic Star sæbjúgnahylki
eru framleidd úr íslenskum sæbjúgum
sem eru með:
• Hátt próteininnihald
og lágt fituinnihald
• Fjölbreytar amínósýrur
• Taurín
• Chondroitin súlfat
• Peptíð
• Vítamín og steinefni.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
Framleiðandi er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fast á
www.arcticstar.is
Arctic Star Sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum,
Hagkaupum, Fjarðakaup og Heimkaup.is
42 Menning 22. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 22. janúar 2022 LAUGARDAGUR