Bændablaðið - 16.12.2021, Page 52

Bændablaðið - 16.12.2021, Page 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202152 LÍF&STARF ÍSLENDINGA Í ÖÐRUM HEIMSÁLFUM Nígeríu Snorri Sigurðsson er lesendum Bændablaðsins líklega vel kunn- ur enda skrifar hann reglulega í blaðið um ýmiss konar fagleg mál- efni og aðallega varðandi eitthvað sem snýr að kúabúskap, enda sér- fræðingur á því sviði. Hann starfaði áður hér á landi hjá bæði Landssambandi kúabænda og Landbúnaðarháskólanum, en hefur frá árinu 2010 starfað utan land- steinanna bæði við kennslu og ráð- gjöf í nautgriparækt. Undanfarin ár hefur hann unnið hjá danska afurða- félaginu Arla Foods við þróunar- aðstoð félagsins í ýmsum löndum. Frá Kína til Nígeríu Síðustu þrjú árin var Snorri í Kína þar sem hann sá um kínverskt-danskt þróunarsetur nautgriparæktar í eigu Arla Foods og kínverska afurðafyr- irtækisins Mengniu. Megin verk- efnið í Kína var að aðlaga þarlenda mjólkurframleiðslu að nútíma bú- skaparháttum en þrátt fyrir að kúa- búin í Kína séu mörg hver gríðarlega stór, með þúsundir kúa hvert þeirra, þá var framleiðni þeirra lág m.a. sökum skorts á ráðgjöf og almennri þekkingu á mjólkurframleiðslu. Um síðustu áramót flutti Snorri svo ásamt eiginkonu sinni, Kolbrúnu Önnu Örlygsdóttur, til Nígeríu þar sem mjólkurframleiðslan er í dag afar frumstæð og innanlandsfram- leiðslan nær ekki einu sinni að sinna 10% af mjólkurneysluþörf lands- manna. Þar hefur Snorri það að aðal- starfi að sjá um hrávöruframleiðslu og -vinnslu Arla Foods, þ.e. frá grasi í glas eins og það er kallað. Afurðafélag í þróunaraðstoð? Það kann að virka hálf undarlegt að afurðafélag sé að sinna þróunarað- stoð en fyrir því eru ákveðnar skýr- ingar að sögn Snorra. „Arla Foods er mjög stórt fyr- irtæki á sviði útflutnings mjólk- urafurða frá framleiðslulöndum sínum í norðurhluta Evrópu og þegar mjólkurafurðir eru fluttar inn til landa sem flokkast sem þróunarlönd eru oft gerðar ríkar kröfur til inn- flutningsaðilans. Þessar kröfur eru langoftast samfélagskröfur, þ.e. að fyrirtækið sem er að flytja inn vörur taki þátt í að byggja upp þekkingu og kunnáttu í því landi sem verið er að flytja vörur til. Stundum er einnig gerð krafa um fjárfestingar innflutningsfyrirtæk- isins í innviðum eða framleiðslu í viðkomandi landi. Þetta átti m.a. við um viðskipti okkar í Kína til margra ára og það var ástæðan fyrir því að ég var staðsettur þar síðustu 3 ár við ráðgjöf til þarlendra kúabænda, en Arla Foods er stórtækt á kínverska markaðinum og t.d. stærsti innflutn- ingsaðili landsins á G-mjólk.“ Mjólkuriðnaðurinn í Kína hefur tekið miklum stakkaskiptum á aðeins örfáum árum og áratugum og eins og áður segir þá eru þar fjölmörg kúabú með þúsundir og upp í tugþúsundir kúa. Þrátt fyrir mikla stærð búanna var þekkingu verulega ábótavant og því fjárfesti Arla Foods í þekkingar- miðlun, ráðgjöf og námskeiðahaldi fyrir kínverska kúabændur. Árið 2020 urðu hins vegar ákveðin vatnaskil í Kína þegar meðalkúabú landsins náðu í raun þeim árangri að standa jafnfætis eða jafnvel fram- ar kúabúum í Evrópu hvað varðar afurðasemi kúa. „Þegar litið er til helstu lykiltalna frá rekstri má einnig sjá að staðan í mjólkurframleiðslu Kína er í raun afar góð í dag og vegna þessara breyttu aðstæðna í Kína, og þeirrar staðreyndar að við höfðum í raun náð hreint ótrúlega góðum árangri með kínversku kúabúin sem við unnum með, lagði ég til að við myndum draga úr starfseminni þar. Ég mat það einfaldlega svo að það væri ekki leng- ur þörf fyrir okkur á þessum markaði og okkar tengiliðir hjá stjórnvöldum í Kína voru sammála þessu mati.“ Forsvarsmenn Arla Foods ákváðu því að færa meginþunga þróunarvinnu fyrirtækisins annað og efla starfsem- ina í Nígeríu, en auk þess vinnur félagið að þróunarverkefnum í öðrum löndum t.d. Eþíópíu, Indónesíu og Bangladesh. Afríka í heild sinni í miklum vexti Aðspurður sagði Snorri að það þyrfti eiginlega að útskýra fyrst ákveðin grunnatriði varðandi Afríku og Nígeríu áður en hægt væri að fjalla um uppbyggingu Arla Foods í Nígeríu. Þannig hafi verið mikill uppgangur í Afríku undanfarin ár, en þó misjafnt eftir löndum enda heimsálfan gríðarlega stór, þrisvar sinnum stærri en Evrópa. Það sem er þó sérstakt við þessa heimsálfu er hve mikið af matvælum er flutt inn, en um 85% allra matvæla eru innflutt og gera áætlanir ráð fyrir því að þetta hlutfall muni haldast nokkuð óbreytt á komandi árum. Mjaltaaðstaðan á núverandi slóðum Snorra Sigurðssonar í Nígeríu í Afríku. Mikilvægt var að bæta úr þeirri aðstöðu sem bændurnir í Kaduna höfðu aðgengi að fyrir skepnur sínar og því réðst Arla Foods í það að byggja upp mjaltaaðstöðu á fjórum mismunandi stöðum svo bændurnir gætu haft möguleika á því að mjólka kýrnar með mjaltavélum. Myndir / SS Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Litlu mjaltavélarnar duga vel, en ný kúabú sem Arla Foods mun reisa í Nígeríu verða með allt öðrum hætti og öllu stærri í sniðum. Snorri Sigurðsson í hópi innfæddra þátttakenda á námskeiði. Hlutverk Snorra er að uppfræða heimamenn um allt sem tengist mjólkurframleiðslu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.