Bændablaðið - 16.12.2021, Qupperneq 64

Bændablaðið - 16.12.2021, Qupperneq 64
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202164 FRÉTTASKÝRING Endurvinnsla í landbúnaði: Umvendingar á plastmarkaði skapa tækifæri – Mikil verðmæti fólgin í endurunnu heyrúlluplasti Allflestir bændur losa sig við notað heyrúlluplast gegnum þjónustuaðila sem sækja plast- ið og koma því í endurvinnslu, hérlendis eða erlendis. Tilkoma nýrrar Evrópureglugerðar er að gjörbreyta endursölumarkaði á endurunnu plasti. Endurgjald hefur hækkað og endurunnið plast orðið eftirsóttara og þar með verðmætari vara. Búfjárbændur þurfa að treysta á heyfeng yfir veturinn. Traustið byggir á því að pökkun heysins tryggi gæði þess og geymsluþol. Þar kemur heyrúlluplast til sögunnar. Bændur hér á landi nota um 1.600– 1.800 tonn af heyrúlluplasti á ári en gróflega reiknað þarf um 1 kg af plasti í hverja rúllu af heyi. Talið er að um 3.000 bú hér á landi stundi heysöfnun. Það skiptir bændur mjög miklu máli að heyrúlluplast fari í endurvinnslu. Í könnun meðal bænda sem Úrvinnslusjóður lét Maskínu framkvæma í ársbyrjun 2017 undirstrikar það; 97,8% bænda sögðu þar að það skipti mjög eða fremur miklu máli að heyrúlluplastið þeirra fari til endurvinnslu. Þar kom einnig fram að 85,4% bænda flokka sitt heyrúlluplast. Í 81,2% tilvika losuðu þjónustuaðilar bændur við plastið en 10,5% fóru sjálfir með það á söfnunarstöð. Hækkandi endursöluverð á endurunnu plasti Plastið sem notað er í heyrúllur er að allverulegu leyti unnið úr frumframleiddum plastperlum, fjöletýleni, sem byggt er upp sem teygjanlegar og límkenndar firnasterkar umbúðir með UV vörn sem þolir bæði mikinn hita og kulda. Markaðsverð á frumframleiddum plastperlum hefur ávallt ákvarðað verð á endurunnu plasti – notað metið ódýrara en nýtt. En að undan­ förnu hefur þessi fylgni kollvarpast og í raun hefur orðið til virkur mark­ aður á endurunnu plasti. Ástæðan er ný Evrópu sambands­ tilskipun um endurunnið plast sem mun taka gildi árið 2025. Samkvæmt henni verður framleið­ endum plastumbúða gert að hafa að minnsta kosti 25% af umbúðunum úr endurunnu plasti. Stórir notend­ ur umbúða og umbúðaframleið­ endur eru þegar farnir að aðlaga framleiðslu sína að kröfum nýju Evrópureglugerðarinnar og við það hefur skapast eftirspurn eftir endurunnu plasti. Það sýnir sig ekki síst í hækkun á endursöluverði. Eitt kíló af endurunnum plastperlum kostaði 0,93–1,04 evrur í október árið 2020 en kostaði 1,8–1,95 evrur í október síðastliðnum samkvæmt upplýsingum frá Guðlaugi Sverrissyni, rekstrarstjóra hjá Úrvinnslusjóði. Hvað gerir Úrvinnslusjóður? Úrvinnslusjóður fer með umsýslu og ráðstöfun úrvinnslugjalds og beitir hagrænum hvötum til að fá heyrúlluplast úr sveitum landsins flutt flokkað til endurvinnslu. Úrvinnslugjald er lagt á hvert kíló af plasti sem notað er til þess að pakka heyrúllu. Úrvinnslugjaldið er notað til að greiða fyrir meðhöndlun heyrúlluplasts og endurnýtingu eftir að það hefur þjónað upphaflega til­ gangi sínum. Það er gert til að skapa hagræn skilyrði fyrir endurnotkun og endurnýtingu úrgangs í þeim tilgangi að draga úr magni úrgangs sem fer til endanlegrar förgunar og tryggja viðeigandi förgun. Úrvinnslugjaldið á að standa undir kostnaði við meðferð flokkaðs úrgangs á söfnunarstöð, flutningi hans frá söfnunarstöð til móttöku­ stöðva eða endurnýtingarstöðva. Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrunhulda@bondi.is Bændur hér á landi nota um 1.600–1.800 tonn af heyrúlluplasti á ári en gróflega reiknað þarf um 1 kg af plasti í hverja rúllu af heyi. Mynd / H.Kr. Bændur kjósa hvítt „Bændur vilja gott plast og spá mikið í gæði, því það liggur mikið undir fyrir þá,“ segir Hanna Dögg Maronsdóttir, markaðsstjóri Bústólpa, sem er einn af söluaðilum heyrúlluplasts á landinu. Plastið er fáanlegt í mörgum stærðum, gerðum og litum. „Tækjabúnaður ræður helst hvaða stærð af plasti er keypt. En svo spilar reynsla manna inn í valið. Sumir vilja fá forstrekkt á meðan aðrir vilja það alls ekki. Á tímabili var mikil litagleði í gangi, en hún hefur farið minnkandi,“ segir hún. Þannig hafi Krabbameinfélagið verið styrkt með sölu á bleiku og bláu heyrúlluplasti og svart plast sé eilítið ódýrara sem gæti haft áhrif á eftirspurn eftir því. Bændur séu þó orðnir meðvitaðir um að hvítt plast gefi best í endurvinnslu og því sé alltaf keypt mest af því. „Margir vilja aðskilja fyrri og seinni slátt með litum og velja þá helst ljósgrænt. Miðað við eftirspurnina núna munum við einungis bjóða upp á hvítt, grænt og svart plast fyrir næsta ár,“ segir Hanna Dögg. Þá eigi hún von á að geta boðið upp á rúlluplast sem er að hluta til unnið úr endurunnu efni. Aðfangaverð hefur hækkað gríðarlega á síðastliðnu ári, bæði vegna hækkandi olíuverðs og heimsfaraldurs. Innkaupaverð á heyrúlluplasti hækkaði um 40% á árinu. Hanna segist hafa vonast til að þessar hækkanir gengu til baka að einhverju leyti en þó sé mjög erfitt að spá fyrir um það. Hanna Dögg Maronsdóttir. Guðlaugur Sverrisson, rekstrarstjóri hjá Úrvinnslusjóði. Afleiðingar nýju Evróputilskip­ unarinnar skapa mikil tækifæri fyrir þá sem fást við endurvinnslu á plasti. Endurunnið heyrúlluplast þegar komið á markað Framleiðendur heyrúlluplasts hafa, eins og aðrir stórir umbúðaeigendur, lagt í mikla þróunarvinnu á vörum sínum og framleiðslu í átt að umhverfisvænni afurð. Framkvæmd hefur verið lífsferilsgreining á ferlum í átt að sjálfbærari framleiðslu. Hefur það leitt til þess að vörur skapi minna kolefnisfótspor. Síðan hafa komið fram nýjar afurðir, meðal annars enn teygjanlegra plast, þannig að hver rúlla þurfi minna af plasti en ella. Þá kom nýlega á markað heyrúlluplast þar sem 30% af efninu er endurunnið úr notuðu heyrúlluplasti. Benedikt Stefánsson, framkvæmdastjóri innflutningsfyrirtækisins Plastco, telur engan gæðamun á nýju plasti og því endurunna. Hann segir hins vegar aðra liti en hvítt og ljósgrænt vera á algjöru undanhaldi. „Okkar framleiðendur telja hvítt koma best út er varðar geymsluþol og gæði heyfengs. Enn fremur skilar hvítt mestu í endurvinnslu.“ Eitt kíló af endurunnum plastperlum kostaði 0,93–1,04 evrur í október árið 2020 en kostaði 1,8–1,95 evrur í október síðastliðnum. Mynd / H.Kr. Endurvinnslufyrirtækið Pure North Recycling í Hveragerði tekur við heyrúlluplasti og umbreytir því í plastpallettur sem seldar eru til framleiðslu á nýjum plastvörum. Mynd / H.Kr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.