Bændablaðið - 16.12.2021, Qupperneq 65
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 65
Verðlistinn yfir heyvinnutækin frá KUBOTA er eingöngu rafrænn í ár.
Honum er hægt að hlaða niður á slóðinni
www.thor.is/KUBOTA2022
eða á FaceBook síðu okkar, Þór hf. - Landbúnaður
Eins er hægt að nálgast hann með því að taka mynd af QR kóðanum
hér að ofan.
Viljir þú fá útprentað eintak sent heim biðjum við þig að hafa
samband og við sendum þér KUBOTA verðlistann 2022 um hæl.
Kæri viðtakandi,
Þú hefur í höndunum verðlista ársins 2022 yfir KUBOTA
heyvinnuvélar.
Verðlistinn gildir fyrir vélar sem afhentar verða á árinu 2022.
COVID heimsfaraldurinn hefur orsakað íhlutaskort og
vandræði í dreifikeðjum. Því er mikilvægara nú en nokkru
sinni fyrr að leggja inn pöntun tímanlega til þess að tryggja
afhendingu á réttum tíma.
Við höfum reynt okkar besta til að gera þennan lista
aðgengilegan og einfaldan til þess að auðvelda ákvarðana-
töku og val ef fjárfesta á í heyvinnuvél.
Nánari upplýsingar um KUBOTA heyvinnuvélar má nálgast
á vefsíðu okkar www.thor.is. Ef einhverjar spurningar vakna
eða frekari útskýringa er þörf eru sölumenn okkar í Reykjavík
og á Akureyri til þjónustu reiðubúnir.
• Allar vélar eru afhentar samsettar og yfirfarnar af tæknimönnum okkar
• Öll verð eru tilgreind án virðisaukaskatts og miðast við gengi EUR = 150 IKR
• Verð breytist í samræmi við gengisskráningu og endanlegt verð miðast við
gengi á afhendingardegi.
• Hvenær sem er frá pöntun og fram að afhendingu má greiða upp vélina og
festa þar með gengið.
Pantaðu vélina þína fyrir 31. desember 2021 og
við afhendum hana samsetta heim á hlað, þér að
kostnaðarlausu.
Með því að panta tímanlega tryggir þú að þú fáir
vélina sem þú vilt og að hún verði komin til þín
tímanlega fyrir heyskap.
KUBOTA Sláttuvélar - Hliðhengdar
Verð án vsk
DM2024 Diskasláttuvél - vbr. 2,40 m - 6 diskar
1.280.000
DM2028 Diskasláttuvél - vbr. 2,80 m - 8 diskar
1.330.000
DM2032 Diskasláttuvél - vbr. 3,20 m - 8 diskar
1.400.000
Verðlisti
KUBOTA heyvinnuvéla 2022
KUBOTA Diskasláttuvélar
Áramóta-
tilboð
KUBOTA
Áramótatilboð KUBOTA
ÞÓR F
H
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Baldursnes 8
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
SANDBLÁSTURSSANDUR
Glerperlur
Garnet
Soda
Plastkúlur
Járnsandur
Stálsandur
Álsandur
Hnetuskeljar
SANDBLÁSTURSKASSI
VERÐ 74.990 kr
HREINSIEFNI - Íslensk
SANDBLÁSTURSSANDUR
SANDBLÁSTURSKASSAR
SANDBLÁSTURSKÚTAR
SANDBLÁSTURBYSSUR
KERAMIKSPÍSSAR
ÞVOTTAKÖR
ULTRASONIC CLEANER
O.m.fl.
SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND MEÐ FLYTJANDA
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
SÍÐAN 1985
SANDBLÁSTURSKASSI
VERÐ 37.690 kr
Einn stærsti framleiðandi af fjö-
letýleni (polyethylene), hreinum
plastperlum, er efnaframleið-
andinn Ineos. Stofnandi og
stærsti eigandi fyrirtækisins er
Jim Ratcliffe, sem er orðinn
Íslendingum kunnur fyrir stór-
tæk uppkaup á jörðum hér á
landi. Fyrirtækið Ineos sérhæfir
sig í framleiðslu á plasti og efna-
vinnsluvörum úr jarðefnaeldsneyti
en starfsemin gerði Ratcliffe m.a.
að ríkasta manni Bretlands og
meðal ríkustu manna veraldar.
Auðæfi Ratcliffes hafa þó
hrunið á árinu ef marka má við-
skiptamiðilinn Bloomberg. Þau
voru metin á tæpa 30 milljarða
dollara í maí sl. en eru í dag 12
milljarðar dala.
Auðæfi Jims Ratcliffe voru metin á bilinu 24–30 milljónir bandarískra
dala framan af ári, en hrundu í lok maí og aftur í lok ágúst. Eignir hans
eru nú metnar á 12 milljónir dala. Mynd/Bloomberg
Þá á gjaldið að standa undir endur-
nýtingu úrgangsins og förgun hans
eftir því sem við á.
Úrvinnslusjóður heldur utan um
umsýslu og ráðstöfun úrvinnslu-
gjalds og samningum við aðila
um úrvinnslu úrgangs á grundvelli
útboða eða verksamninga.
Hvert fer plastið?
Sveitarfélög bera ábyrgð á úrgangi
og eru því í allflestum tilfellum
þjónustuaðili Úrvinnslusjóðs. Þau
stýra útboði þar sem kveðið er á um
hvernig þjónustunni til bænda skuli
vera háttað.
Guðlaugur segir misjafnt hversu
mikla þjónustu sveitarfélög bjóði
upp á. Þannig sé úrgangur sóttur á
bú í Skagafirði einu sinni í mánuði
ásamt hirðu á heyrúlluplasti, meðan
heyrúlluplast er sótt tvisvar til
þrisvar á ári í Borgarfirði. Heyrúllu-
plastið er svo flutt á skilgreindan
núllpunkt. Í dag eru núllpunktar
útflutningshafnirnar í Reykjavík,
Ísafirði, Akureyri og Reyðarfirði.
Þjónustuaðilum Úrvinnslusjóðs
er í sjálfsvald sett hvert þau fara
með plastið svo lengi sem þau
afhenda það viðurkenndum ráðstöf-
unaraðilum. Þannig fari allt útflutt
heyrúlluplast til viðurkenndra
endurvinnslufyrirtækja innan EES
og er mest sent til fyrirtækjanna
Daly Plastics og Peute í Hollandi
og Somex í Póllandi.
Af þeim 1.100–1.400 tonnum
af heyrúlluplasti sem hefur fallið
til ár hvert á sl. fjórum árum hefur
gróflega 95% verið endurunnið.
Um 65–70% þess er flutt út þar sem
erlendir kaupendur endurvinna plast-
ið til áframhaldandi notkunar. Um
30–35% fara svo til endurvinnslu-
fyrirtækisins Pure North Recycling í
Hveragerði sem meðhöndlar plastið
og umbreytir því í plastpallettur sem
seldar eru til framleiðslu á nýjum
plastvörum.
Hvatagreiðslur til Hveragerðis
Sigurður Halldórsson hjá Pure
North Recycling kallaði eftir meira
hráefni til endurvinnslu í viðtali í
Bændablaðinu í febrúar síðastliðnum.
Þar sagði hann að fyrirtækið gæti
tekið á móti 150–200 tonnum af
rúlluplasti til vinnslu á mánuði sem
er töluvert meira en þeir fá til með-
höndlunar í dag.
Ástæðan ku vera bitbein um hver
eigi að borga fyrir flutning á plastinu
til Hveragerðis, þar sem úrvinnslu-
gjaldslögin kveða á um að þjónustu-
aðili fái greitt miðað við að hann skili
úrgangi á þann núllpunkt sem næstur
er. Sem dæmi er núllpunktur fyrir
þjónustuaðila í Skagafirði á útskip-
unarhöfninni á Akureyri.
Þannig hafa þjónustuaðilar ekki
val um að flytja plastið til endur-
vinnslu í Hveragerði nema aðrir en
hið opinbera standi undir kostnaði
við þá auka flutningskílómetra sem
af því hlýst.
Til þess að mæta þessu ákalli
hækkaði Úrvinnslusjóður endur-
vinnslugjaldið til Pure North í
Hveragerði 1. júlí síðastliðinn.
Þannig getur innlenda endurvinnslu-
fyrirtækið borgað þjónustuaðilum
hærra gjald fyrir flutning til
Hveragerðis frá tilteknum núll-
punktum.
Úrvinnslusjóður greiðir þjón-
ustuaðilum 38 kr. fyrir hvert kíló
sem fer í útflutning auk flutnings-
jöfnunar, en Pure North Recycling
fær um 60 kr. fyrir hvert kíló sem
það tekur við frá sjóðnum.
Mikil tækifæri í endurvinnslu
Eins og fram hefur komið er söfnun,
flokkun og meðhöndlun heyrúllu-
plasts ekki einföld.
Mikilvægi endurvinnslu er hins
vegar orðið skýrt, einstaklingar vilja
vera umhverfisvænni og velja eftir
því, fyrirtækjum er það ljóst og eru
farin að taka afstöðu í verki og það
sama á sér stað í iðnaði. Allt þetta
hefur velt af stað jákvæðri hreyfingu.
Afleiðingar nýju Evrópu-
tilskipunarinnar skapa mikil tækifæri
fyrir þá sem fást við endurvinnslu á
plasti. Flækjustigið er hátt og enn
sem komið er fer allt of mikið af
plasti í almenna urðun og í brennslu
til orkunýtingar að mati Guðlaugs.
Heyrúlluplast fæst í mörgum
litum og veldur það nokkurri óhag-
kvæmni við endurvinnslu á því.
„Ef endurvinnsluaðilar fengju að
ráða þá myndu þeir velja hvítan lit
á heyrúlluplastið,“ segir Guðlaugur.
„Sterkir litir, m.a. svartur, skapa
vandkvæði við endurvinnslu og
lækka endursöluverð á perlunum sem
búnar eru til úr heyrúlluplastinu.“
Því þurfa endurvinnsluaðilar að
sundurgreina heyrúlluplastið eftir
litum áður en það fer til meðhöndl-
unar og svo endurvinnslu.
„Evrópureglugerðin og hækkun
endursöluverðs skapar hvata og gerir
heyrúlluplastið að eftirsóknarverðri
vöru. Innsöfnunarkerfið hér á landi
er þrautreynt og bændur hafa verið
í fremstu röð í að bæta umgengni
og endurvinnslu,“ segir Guðlaugur.
Hann nefnir að á undanförnum
árum hafi bændur stórbætt umgengni
við heyrúlluplast eftir notkun og
kemur það í dag mun hreinna til
meðhöndlunar og endurvinnslu en
áður var.
„Þar hefur skipt mestu að almenn
vakning er hjá bændum um að gæta
að sjálfbærni á öllum sviðum,“
segir Guðlaugur.
Ratcliffe og plastperlurnar