Bændablaðið - 16.12.2021, Page 70
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202170
börn voru neydd til að taka ís-
lamska trú.
Talið er að af tveimur milljónum
Armena í Tyrklandi hafi sex hund-
ruð þúsund lifað af.
Klaustur frá því árið eitt þúsund
Haghpat-klaustrið klaustrið var
byggt skömmu fyrir árið 1000.
Sagan segir að Sanahin-munkar
sem helguðu sig trú, vísindum,
listum og bókum hafi reist
klaustrið á gullöld menningar Lori-
konungsveldisins.
Klaustrið var lengi ríkt og
munkar þar frægið fyrir uppskriftir
sínar á helgum bókum auk þess sem
þar var lögð áhersla á stjörnufræði,
lækningalist og tónlist. Með tíman-
um stækkaði bókasafnið í Haghpat
og til að vernda dýrmætustu ritin
voru grafnar bókageymslur í
gólf klausturkirkjunnar og lagðar
hellur yfir.
Stuðlabergið á Azat
Um 40 kílómetra frá Jerevan er
gil sem kallast Azat og í því er að
finna einhverjar þær fallegustu
stuðlabergmyndanir sem ég hef
séð. Bergið líkist einna helst pípu-
orgeli með steinpípum sem teygja
sig um 100 metra til himins enda
kalla Armenar kalla fyrirbærið sin-
fóníska steina eða basatorgelið.
Zorats Karer
Í Armeníu er að finna, að talið vera
frá um 3.500 fyrir Krist. Í þyrp-
ingunni eru 223 steinar sem hefur
verið raðað skipulega upp þannig
að þeir mynda hring með krosslaga
örmum til höfuðáttanna fjögurra.
Steinarnir, sem í dag eru þaktir
skófum, sem enn eru uppréttir eru
frá hálfum og að þriggja metra háir
og allt að tíu tonn að þyngd. Í um
áttatíu af steinunum hefur verið gert
hringlaga gat og án þess að vitað sé
fyrir víst hver tilgangur steinagerð-
isins er hafa verið leiddar að því
líkur að staðurinn hafi verið ætlaður
til að skoða gang himintunglanna.
Selim karavanserai
Í Armeníu er karavanserai áningar-
staður þar sem kaupmenn til forna
áðu til að hvíla sig og burðardýr sín.
Selin áningastaðurinn var byggður
skömmu eftir 1330 og er í 2300
metra hæð frá sjávarmáli og liggur
við eina af Silkileiðunum. Byggingin
skiptist í tvennt, eins konar móttöku
og aðalsal sem er 13 metra breiður
og 26 metra langur. Eftir aðalsalnum
miðjum er flór og sitt hvoru megin
við hann voru básar fyrir burðadýrin,
oftast úlfalda. Innan við básana voru
jötur og út til veggja svefnaðstaða
fyrir fólk.
Noratus kirkjugarðurinn
Skammt frá þorpin sem kallast
Noratus er kirkjugarður með miklum
fjölda legsteina úr grjóti. Elsti leg-
steinninn er talinn vera frá því seint á
tíundi öld. Á marga steinana er búið
að höggva krossgerð sem kallast
khachkar eða armenski steinkross-
inn og í kringum hann skreytingar,
blóm og rósettur.
Satt best að segja er ótrúlegt
þegar gengið er innan um steinana
á stórgrýtu yfirborðinu að ímynda
sér að um kirkjugarð sé að ræða og
að yfirleitt hafi verið hægt að hola
fólki þar niður. Allstaðar er grjót
bæði grjót sem er í sínu náttúrulega
umhverfi og aðflutta steina.
Samkvæmt einni sögu lét nítj-
ándu aldar munkurinn Ter Karapet
Hovhanesi-Hovakimyan grafa sig
lifandi í garðinum. Hovakimyan sem
var níræður þegar
kviksetning hans
átti sér stað það
síðasta sem hann
sagði var að hann
væri búin að fá
nóg og hræddist
ekki dauðan og
að aðrir ættu
ekki að gera
það heldur.
Í dag er
siður að brjóta
flöskur með vatni
eða vín við leiði munksins til að
öðlast blessun.
Hobbitarnir í Khndzoresk
Af mannvistaleifum hellabúanna
í Khndzoresk mætti ætla að frum
Hobbitarnir hefðu búið í Armeníu.
Í dag er hægt að heimsækja hella-
byggðina Khndzoresk með því að
fara eftir 160 metra langri hengibrú
og er ganga eftir henni ekki fyrir
lofthrædda.
Þegar mest var er talið að um
1500 manns hafi búið í hellum í við
Khndzoresk en við upphaf tuttug-
ustu alda var íbúafjöldinn um 1300
og síðust íbúarnir yfirgáfu hellan
skömmu eftir miðja síðustu öld.
Húsnæðisskiptan var oftar en
ekki þannig að loft eins hellis var
gólfið hjá annarri fjölskyldu. Í sam-
félaginu sem lifði að mestu á búfjár-
eldi voru tvær kirkjur, skólar og að
minnstakosti ein verslum.
Matur og vín
Auk fallegrar náttúru og áhuga-
verðra sögu er matur og vín í
Armeníu gott í munn og maga.
Dolma er til dæmis gómsætur réttur
sem samanstendur af hökkuðu kjöti,
lauk, hrísgrjónum og kryddi sem
vafið er inn í vínviðarblöð. Topik
eru hveitibögglar sem fylltir eru
með kjúklingabaunum, kartöflum
og sesamfræjamauki og dassi af salti
og sykri.
Rauð- og hvítvín í Armeníu er
gerjuð í leirkrukkum sem grafin eru
í jörð og vegna aðferðarinnar öll
þurr og þau sem ég smakkaði mjög
góð. Armenar brugga gott koníak og
eina landið í heimi utan Frakkland
sem má kalla koníak koníak.
Til að vernda dýrmætustu rit Haghpat-klaustursins fyrir þjófum voru grafnar
bókageymslur í gólf klausturkirkjunnar og lagðar hellur yfir.
Selin karavanserai, áningarstaður þar sem kaupmenn til forna áðu til að hvíla sig og burðardýr sín.
Skammt frá þorpinu sem kallast Noratus er kirkjugarður með miklum fjölda legsteina úr grjóti.
UTAN ÚR HEIMI
Bændasamtök Íslands
starfa í þágu landbúnaðarins í heild !
Hefur þú spurningar varðandi hvernig á að gerast félagsmaður?
Fulltrúar BÍ svara fyrirspurnum í síma 563-0300 á skrifstofutíma.
Hægt er að senda skilaboð í gegnum Bændatorgið og á netfangið gudrunbirna@bondi.is.
Það borgar sig að vera í Bændasamtökunum
Snúum bökum saman og stöndum
vörð um íslenskan landbúnað
Bændur eru hvattir til þess að skrá veltu
skv. framtali síðasta árs hið fyrsta inni á
Bændatorginu. Veltuskráning þessi er
forsenda fyrir félagsaðild í samtökin
skv. samþykktum á síðasta
Búnaðarþingi.
Þeir sem ekki klára skráningu
sína og greiða félagsgjöld í
Bændasamtökin fyrir árslok
2021 detta út af félagatali
og missa í kjölfarið réttindi
sín innan samtakanna.
Khachkar eða tar-menski steinkrossinn.