Bændablaðið - 16.12.2021, Page 85
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 85
SKEMMUR
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
571-3535
VEFFANG
www .bkhonnun . is
BOGAHÚS
Stærðir frá 40 m², fást með og án einangrunar. Erum
að bóka hús og uppsetningu fyrir vor og sumar 2022.
Boghúsin fást óeinangruð og nú einnig einangruð.
Breiddir frá 12m og upp í 20m. Erum að bóka hús og
uppsetningu fyrir vor og sumar 2022.
BÆKUR& MENNING
Ómar Ragnarsson þekkja allir landsmenn, hvort
heldur í hlutverki fréttamanns, skemmtikrafts,
náttúruverndarsinna, flugmanns eða annars, enda
litríkur og skemmtilegur maður sem fer vart fram
hjá neinum.
Ómar, sem hefur verið á ferð og flugi um landið,
áratugum saman segir hér í nýútgefinni bók sinni,
„Af einskærri sumargleði“ frá árunum 1971-1985 er
hann, ásamt Ragnari Bjarnasyni ferðuðust um landið
og héldu uppi stuðinu með úrvali tónlistarmanna,
söngvara og leikara undir nafninu Sumargleðin.
Einnig rekur Ómar upphaf ferils síns og segir á
lifandi og skemmtilegan hátt frá skemmtanalífinu
á Íslandi áður fyrr eins og honum einum er lagið.
Revíurnar, héraðsmótin og ekki síst samferðafólk
hans er allt glætt gleði og glaum.
Þarna er á ferð sannkölluð stemningsbók sem á
eftir að gleðja bæði þá sem muna gamla daga og allt
áhugafólk um tónlist, bíla, flugvélar og fortíðina
en í henni er fjöldi áður óbirtra mynda, söng- og
sviðstexta.
Ómar hefur einnig samið lag í tilefni útgáfu
bókarinnar um sögu Sumargleðinnar og má finna
geisladisk með samnefndu efni, Sumargleðin hjá
Öldu Music.
Lopapeysubókin eftir Grétu Sörensen kom út nú á
dögunum, en í henni má finna uppskriftir að peysum
fyrir börn frá sex mánaða aldri og upp í stærðir fyrir
fullorðna.
Bókin inniheldur víðtækan fróðleik um prjónaskap,
lopa sem hráefni, samsetningu lopalita, frágang og
mismunandi útfærslur lopapeysunnar samkvæmt íslenskri
hefð. Lesendum er til að mynda kennt á einfaldan hátt að
prjóna peysu og hentar bókin þannig bæði byrjendum og
þeim sem eru lengra komnir og vilja ef til vill skapa sínar
eigin útfærslur.
Eins og kannski einhverjir vita er Gréta Sörensen
einnig höfundur Prjónabiblíunnar sem notið hefur
mikillar hylli og var m.a. tilnefnd til Fjöruverðlaunanna,
bókmenntaverðlauna kvenna. Er sú bók afar yfirgripsmikil
eins og nafnið gefur til kynna og þar má finna alla almenna
grunntækni sem lýtur að prjóni.
Gréta er menntaður prjónahönnuður, vefnaðar- og
textílkennari og hefur lokið prófum bæði úr Myndlista-
og handíðaskóla Íslands af textílbraut auk þess að ljúka
mastersgráðu á textílbraut Konstfack, Listaháskóla
Stokkhólms, þar sem hún sérhæfði sig í prjónahönnun.
Lopapeysubókin er eign inn á hvert heimili, en hún er
gefin út bæði á íslensku og ensku og gæti því reynst þeim
vel er áhuga hafa á íslenskum hefðum þegar kemur að
gerð slíks handverks.
Lopapeysubókina á hvert heimili
Af einskærri sumargleði:
Sögur frá litríkum skemmtanaferli
Til sölu
Notaðar rotþrær til sölu
Umhverfis- og mannvirkjasvið
óskar eftir tilboðum í 4 stk.af
notuðum rotþróm.
Þær eru 20.000 lítra.
Leyfilegt er að bjóða í hverja
rotþró fyrir sig.
Nánari upplýsingar um rot-
þrærnar eru gefnar í gegnum
netfangið jbg@akureyri.is
Tilboðum skal skilað rafrænt á
netfangið umsarekstur@akur-
eyri.is fyrir kl. 13.00, miðviku-
daginn 11. janúar 2022.
Geislagata 9 Sími 460 1000 www.akureyri.is akureyri@akureyri.is