Bændablaðið - 16.12.2021, Qupperneq 96

Bændablaðið - 16.12.2021, Qupperneq 96
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202196 LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Ábúendurnir í Galtastöðum ytri, Stefán Bragi Birgisson og Helga Leifsdóttir, kynntust í búfræði- námi á Hvanneyri árið 2018. Stefán tók við búinu af ömmu sinni og afa árið 2019 en Helga kemur frá Selfossi og flytur í Galtastaði um sumarið og hefst þá þeirra búskapur. Býli: Galtastaðir ytri. Staðsett í sveit: Galtastaðir eru utar- lega í Hróarstungu, Múlaþingi. Ábúendur: Ábúendur eru Stefán Bragi Birgisson og Helga Leifsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Á Galtastöðum ytri búa Stefán og Helga ásamt eins árs syni þeirra, Halldóri Braga. Minkahundarnir Krulli og Rokkó. Stærð jarðar? 1.250 hektarar. Gerð bús? Sauðfjárbú, grindahús, troðfull hlaða af þurrheyi og öllu gefið á jötu. Fjöldi búfjár og og framleiðslu- magn? 355 ær, 14 hrútar og 5 hænur. Við framleiddum 8,4 tonn af lamba- kjöti og settum 52 gimbrar á. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Vinnudagar eru ekki mjög hefðbundnir á þessum bæ. Á haustin þegar rúningur byrjar gefur Stefán á morgnana og fer síðan í rúning um sveitirnar og gefur síðan á kvöldin. Hann er í því flesta daga til miðs desember. Þetta endurtekur sig aftur í snoðrúningnum. Síðan á vorin er hann á minkaveiðum fyrir sauðburð og eitthvað fram á sumar. Svo á sumrin og haustin fer hann í ýmsa íhlaupavinnu hér og þar. Helga er heimavinnandi eins og er og sinnir barninu sem fer á leikskóla á hverjum degi hér í sveitinni. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Bóndanum finnst skemmtilegast í heyskap í góðri austfirskri sumarblíðu að moka inn heyi í hlöðuna. Skítmokstur og að skafa járnmottur eru leiðinlegustu störfin. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Með svipað margt fé, en búið að auka afurðirnar á því sem hver gripur skil- ar, vonandi breyta fjárhúsunum, og rækta upp slatta af túnum. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í framleiðslu íslenskra búvara? Hætta að selja erlent kjöt hvort sem það er fersk eða frosið, þá eykst salan á því kjöti sem er framleitt hér. Þeir sem meðhöndla og selja lambakjöt í dag þyrftu að selja kjöt- ið í meira mæli eins og ungt fólk í dag vill kaupa það, án fitu og beins en ekki eins og gamli skólinn vill hafa það, frosið í poka, spikfeitt, með beinum. Það þarf auðvitað að vera í boði líka en við höldum að ef það væri hægt að framreiða og bjóða lamba- kjöt án beins og fitu í svipað neyt- endavænum pakkningum eins og t.d. kjúkling myndi salan á því aukast. Einnig höldum við að það þurfi að auka framleiðslu á lífrænt ræktuðu lambakjöti því við höldum að neysla á slíku kjöti sé að fara stóraukast á næstu árum, og ég tala nú ekki um ef það væri kolefnisjafnað líka. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, rjómaostur og egg. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Gúllassúpa að hætti Helgu. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin?Við fengum okkur myndavélar í fjárhúsin síðasta vor og er þetta ein mesta snilld sem hefur verið keypt í fjárhúsin, vinnusparandi og síðan getur maður fylgst með öllu sem þar fer fram. Spínatfyllt lambalæri eða hryggur › 1/3 bolli ferskt eða frosið spínat › 3 meðalstór hvítlauksrif, afhýdd › 1 bréf fersk steinseljublöð › 1/2 bréf fersk myntulauf › 1 msk. saxað ferskt rósmarín › 1 msk. Dijon sinnep › salt og nýmalaður svartur pipar › 3 msk. extra virgin ólífuolía › 1 stk. beinlaust lambalæri eða úrbeinaður hryggur › 1 bolli kjúklingasoð › 1/4 bolli þurrt hvítvín Forsjóðið spínatið og setjið strax í kalt vatn. Látið kólna í fimm mínútur. Kreistið allan vökva úr. Blandið við fínt saxaðan hvítlauk, steinselju, myntu, rósmarín, sinnep, 3/4 tsk salt og 1/4 tsk svartur pipar. Bætið ólífuolíu út í og vinnið í þykkt deig. Leggið kjötið flatt og þurrkið með pappírshandklæði. Klippið umframfitu af. Ef það eru hlutar sem eru miklu þykkari en aðrir, jafnið þá þykktina út með hnífi. Bankið kjötið létt með kjöthamri, ef þarf, til að jafna það enn frekar og gera það nokkurn veginn ferhyrnt í lögun. Kryddið létt með salti og pipar. Smyrjið kryddjurtamaukinu yfir lambið og notið fingurna til að vinna það inn í hvaða rifur sem er. Byrjið að rúlla lambinu þétt upp og passið að rúlla kjötinu svo sneiðar skerist þvert yfir. Bindið rúlluna þétt með eldhúsgarni, með eins tommu millibili, eða stingið með grillspjótum til að halda öllu saman. Til að fá þéttara form, bindið steikina eftir endilöngu með tvinna. Ef eitthvað er eftir af kryddjurtum á vinnuborðinu, nuddið því utan á lambið. Pakkið lambinu vel inn í plastfilmu og kælið í að minnsta kosti 8 tíma og allt að sólarhring. Látið lambið standa við stofuhita í um klukkustund áður en það er steikt. Á meðan er grind sett í miðju ofnsins og hann hitaður í 180 gráð- ur. Takið lambið og setjið á litla, eldfasta steikarpönnu og steikið þar til hitamælir sem stungið er í miðju kjötsins sýnir 58-63 gráður sem er bleikt en gerið ráð fyrir að hitinn geti hækkað um allt að 10 gráður. Eldunin ætti að taka 45 til 80 mínútur, en byrjið snemma að athuga hitann. Flytjið yfir á skurðbretti, tjaldið yfir með álfilmu og látið hvíla í 20 til 30 mínútur. Á meðan, blandið kjúklingasoðinu og víninu saman á steikarpönnunni. Látið malla við meðalhita, skafið upp alla pönnuskánina og hrærið oft þar til vökvinn hefur minnkað aðeins, í um það bil fjórar mínútur. Skerið lambakjötið í þykkar sneiðar, klippið garnið í burtu og setjið á fat. Bætið safanum sem eftir er á skurðarbrettinu á steikarpönnuna. Sigtið sósuna og kryddið eftir smekk með salti og pipar. Berið lambið fram með soðinu eða jólasósunni. Steiktar rauðrófur með geitaosti og kryddjurtum Sætar ristaðar rófur passa saman við bragðmikinn geitaost og kryddjurtir í þessu glæsilega salati. Prófið að nota ýmsar rófur – það gerir diskinn miklu fallegri og rétturinn mun líka bragðast betur. › 6 stk. rauðrófur (300 g) › 1 tsk. saxað ferskt timjan › 1 tsk. saxaður ferskur graslaukur › 2 msk. extra virgin ólífuolía › Salt og nýmalaður pipar › 100 g ferskur geitaostur, mulinn Forhitið ofninn í 200 gráður. Vefjið rófunum inn í álpappír – hverri fyrir sig – og steikið þar til þær eru mjúkar þegar gaffli er stungið í þær í um klukkustund. Þegar þær hafa kólnað, afhýðið og setjið í skál. Blandið saman timjan, graslauk og ólífuolíu í sérstakri skál. Dreypið ólífuolíu- og jurtablöndunni yfir rófurnar, kryddið með salti og pipar og toppið með muldum geitaostinum. Berið fram strax. Súkkulaði í rjómasprautu Þessi súkkulaðimús er léttari en loft, búin til með aðeins fjórum hráefnum og sett í rjómabrúsa. Súkkulaði er oftast brætt í vatnsbaði, það er skál sem er sett yfir sjóðandi vatn þannig að gufan ein hitar botninn á pönnunni. Þessi mús er ekki gerð með þeim hætti, þar sem töluverðum vökva er bætt við súkkulaðið til að búa hana til. › 227 grömm 54% súkkulaði, smátt saxað › 113 grömm af kaffi, við stofuhita › 113 grömm af vatni › 43 grömm af sykri › Stafræn eldhúsvog › 1 lítra rjómaþeytari › 1 N2O (nituroxíð) hleðslutæki (gasáfylling) Búið til ísbað með því að fylla stóra skál af ís og vatni. Bætið nægu vatni í steikarpönnu þannig að um þrír sentímetrar nái upp á hliðina. Látið suðuna koma upp við meðalhita. Blandið súkkulaðinu, kaffinu, vatni og sykri saman í miðlungsstóra málmskál og setjið yfir sjóðandi vatnið. Hrærið af og til þar til súkkulaðið er næstum alveg bráðið og sykurinn er uppleystur, í fjórar til fimm mínútur. Takið af hellunni og setjið skálina í ísbaðið. Þeytið þar til blandan nær 30 gráðum og er eins og þungur rjómi, í tvær til þrjár mínútur. Hellið blöndunni í rjómaþeytarann. Ekki fara yfir hámarksfyllingu. Fyllið rjómaþeytarann með einu hleðslutæki. Hristið lóðrétt 16 til 20 sinnum. Setjið til hliðar í eina mínútu. Hvolfið og dreifið í litlar skálar eða martini-glös. Berið fram strax. Spínatfyllt lambalæri eða hryggur og steiktar rauðrófur með geitaosti JÓLAMATURINN Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari A ð rúlla lambinu upp með fyllingunni er sérlega hátíðleg leið til að elda lambalærið – eða hrygginn – og það þýðir að þið fáið frábært bragð í hverjum bita. Til að fá besta bragðið skuluð þið fylla lambið daginn áður en þið steikið það. Skreytið lambakjötið með nokkrum af sömu kryddjurtunum úr fyllingunni, ef vill. Gott er að nota úrbeinað kjöt. Galtastaðir ytri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.