Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 97
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 97
Grófar prjónaðar peysur eru mjög
vinsælar núna.
Þessi peysa er fljótprjónuð og
kósí að vera í. Prjónuð ofan frá og
niður, úr tveimur þráðum af DROPS
Air eða einum þræði DROPS Wish
eða Snow. Drops Air og Drops Wish
er á 30% afslætti til áramóta hjá
Handverkskúnst.
DROPS Design: Mynstur ai-274
Stærðir: S (M) L (XL) XXL (XXXL)
- Yfirvídd: 92 (102) 110 (118) 130 (142) cm
Garn: allar þessar tegundir færðu hjá okkur
á www.garn.is
DROPS AIR: Drappaður nr 26
- 350 (400) 450 (500) 550 (600) g
Eða notið:
DROPS WISH: Grábeige nr 08
- 400 (450) 500 (500) 600 (650) g
Eða notið:
DROPS SNOW: Ljósdrappaður nr 47
- 550 (600) 650 (700) 800 (850) g
Prjónfesta: 10 lykkjurx14 umferðir = 10x10 cm.
Prjónar: Sokkarprjónar nr 9 og hringprjónar 40 og
80 cm, nr 8 og 9
ÚTAUKNING: Aukið út í hvorri hlið á framstykki og
bakstykki. Lykkjufjöldinn á ermum er sá sami (= 34
(34) 37 (37) 40 (40) lykkjur í stroffi á ermum). Ekki
auka út í lykkjuna, heldur um þráðinn á milli 2 lykkja.
Aukið út um 3 lykkjur á eftir lykkju með prjóna-
merki (þ.e.a.s. í skiptinguna á milli hægri ermi og
framstykkis og í skiptinguna á milli vinstri ermi og
bakstykkis) þannig: Prjónið 1 lykkju slétt um þráðinn
á milli lykkju með prjónamerki og næstu lykkju (=
1 umferð niður), prjónið 1 lykkju slétt um þráðinn
á milli lykkju með prjónamerki og næstu lykkju 2
umferðir niður (passið uppá að draga lykkjuna það
langa að hún herði ekki á hæðina), prjónið 1 lykkju
slétt um þráðinn á milli lykkju með prjónamerki
og næstu lykkju 3 umferðir niður (passið uppá
að draga lykkjuna það langa að hún herði ekki á
hæðina). Nú hefur verið prjónuð 1 lykkja um hverja
og eina í síðustu 3 umferðum (= 3 lykkjur fleiri).
Aukið út um 3 lykkjur á undan lykkju með
prjónamerki (þ.e.a.s. í skiptingunni á milli fram-
stykkis og vinstri ermi og í skiptingunni á milli
bakstykkis og hægri ermi) þannig: Prjónið fram
að lykkju með prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt
um þráðinn á undan lykkju með prjónamerki 3
umferðir niður (passið uppá að draga lykkjuna það
langa að hún herði ekki á hæðina), prjónið 1 lykkju
slétt um þráðinn á undan lykkju með prjónamerki
2 umferðir niður (passið uppá að draga lykkjuna
það langa að hún herði ekki á hæðina), prjónið 1
lykkju slétt um þráðinn á undan lykkju með prjóna-
merki frá fyrri umferð. Nú hefur verið prjónuð 1
lykkja í hverja og eina af síðustu 3 umferðum (=
3 lykkjur fleiri).
ÚRTAKA (á við um ermar): Prjónið þar til 4 (3) 3 (3)
3 (3) lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki
í/prjónamerki á milli lykkja, prjónið 2 næstu lykkjur
slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið næstu 5 (2) 2
(2) 2 (2) lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna
eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (=
1 lykkja færri).
AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingark-
anturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella
af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur,
er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4.
hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppsláttur-
inn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
PEYSA - STUTT
ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og
berustykki er prjónað
í hring á hringprjón.
Síðan skiptist stykkið
fyrir fram- og bakstykki
og ermar. Fram- og
bakstykki er prjónað
í hring í sléttprjóni.
Ermar eru prjónaðar í
hring á stuttan hring-
prjón/sokkaprjóna í
stroffprjóni.
KANTUR Í HÁLSI: Fitjið
upp 48 (48) 52 (52) 56
(56) lykkjur á stuttan
hringprjón nr 8 með 2
þráðum Air eða 1 þræði
Snow eða 1 þræði Wish.
Tengið í hring og setjið
prjónamerki í byrjun á
umferð. Prjónið stroff
(= 1 lykkja slétt, 1
lykkja brugðið) alls 11
cm. Næsta umferð er
prjónuð þannig:
UMFERÐ 1: *Prjónið 1
lykkju slétt, sláið 1 sinni
uppá prjóninn, 1 lykkja
brugðið*, prjónið frá
*-* yfir næstu 22 (22)
24 (24) 26 (26) lykkjur
(= 11 (11) 12 (12) 13
(13) lykkjur fleiri), 1
lykkja slétt, 1 lykkja
brugðið (= miðjulykkja á framstykki/bakstykki).
Endurtakið 1 sinni til viðbótar í umferð = 70 (70)
76 (76) 82 (82) lykkjur.
UMFERÐ 2: *Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið uppslátt-
inn snúin brugðið, 1 lykkja brugðið*, prjónið frá *-*
11 (11) 12 (12) 13 (13) sinnum, 1 lykkja slétt, sláið 1
sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið (= miðjulykkja
á framstykki/bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Endurtakið 1 sinni til viðbótar í umferð (= 4 lykkjur
fleiri í umferð) = 74 (74) 80 (80) 86 (86) lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón nr 9. Hengið 1 prjónamerki
í miðjulykkju að aftan, berustykkið er nú mælt frá
þessu prjónamerki.
BERUSTYKKI:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið. Setjið eitt prjónamerki
í hvern uppslátt frá fyrri umferð (= 1 prjónamerki í
lykkju hvoru megin við miðjulykkju). Það eru 34 (34)
37 (37) 40 (40) lykkjur fyrir hvora ermi og 3 lykkjur á
framstykki og bakstykki. Prjónið nú stroff (= 1 slétt,
2 brugðið) yfir 34 (34) 37 (37) 40 (40) lykkjur fyrir
ermi í hvorri hlið (fyrsta og síðasta lykkjan á ermi er
1 lykkja slétt) og prjónað er sléttprjón yfir 3 lykkjur á
framstykki og bakstykki (uppslátturinn er prjónaður
snúinn slétt svo að ekki myndist gat).
Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir byrjar
útaukning í hvorri hlið á framstykki og bakstykki
– sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 6 (6) 7 (8)
9 (10) sinnum = 146 (146) 164 (176) 194 (206)
lykkjur. Útaukningu í stærðum (XL) XXL (XXXL)
er nú lokið.
Í stærðum S (M) L er nú aukið út þannig: Aukið út um
1 lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki með
því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við lykkju með
prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona
út í annarri hverri umferð alls 1 (2) 1 sinnum = 150
(154) 168 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn
prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið
síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.
Allar stærðir: Haldið síðan áfram með sléttar
lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir
brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 20 (21) 23
(24) 25 (27) cm frá prjónamerki í miðjulykkju aftan
í hnakka.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 34
(34) 37 (37) 40 (40) lykkjurnar á þráð fyrir ermi og
fitjið upp 5 (8) 8 (8) 8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (=
í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 41
(43) 47 (51) 57 (63) lykkjur (= framstykki), setjið
næstu 34 (34) 37 (37) 40 (40) lykkjur á þráð fyrir
ermi og fitjið upp 5 (8) 8 (8) 8 (8) nýjar lykkjur á
prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón
yfir næstu 41 (43) 47 (51) 57 (63) lykkjurnar. Prjónið
síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
FRAM- OG BAKSTYKKI: = 92 (102) 110 (118) 130
(142) lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til fram-
og bakstykki mælist 24 (25) 25 (26) 26 (26) cm.
Skiptið yfir á hringprjón nr 8. Prjónið stroff (= 1 slétt,
1 brugðið) hringinn alls 4 cm. Fellið af með sléttum
lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir
brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca
54 (56) 58 (60) 62 (64) cm frá öxl og niður.
ERMAR: Setjið til baka 34 (34) 37 (37) 40 (40) lykkj-
ur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/
stuttan hringprjón nr 9 og prjónið að auki upp 1
lykkju í hverja og eina af 5 (8) 8 (8) 8 (8) lykkjum sem
fitjaðar voru upp undir ermi = 39 (42) 45 (45) 48 (48)
lykkjur. Setjið prjónamerki mitt undir ermi. Í stærð S
er prjónamerki sett í miðju slétta lykkju undir ermi. Í
stærð (M) L (XL) XXL (XXXL) er prjónamerki sett mitt
á milli miðju 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroff (= 1
slétt, 2 brugðið) hringinn eins og áður. Þegar stykkið
mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá
ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 11 (8) 6 (6) 6
(6) cm millibili alls 4 (5) 6 (6) 6 (6) sinnum = 31
(32) 33 (33) 36 (36) lykkjur. Haldið síðan áfram með
sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur
yfir brugðnar lykkjur þar til ermin mælist 45 (45)
43 (43) 43 (42) cm – eða að óskaðri lengd (styttra
mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis).
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og
brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið
eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina alveg eins.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is
Kósí peysa í vetur
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 4 9 2 6
9 8 7 1 3
6 8 7 5
1 9 6 5
7 5 3 4 9
8 5 7 6
5 2 7 1
6 3 2 9 8
8 7 3 6 1
Þyngst
1 4 6 5
7 5 2 8
4 3 9 1
1 9 7
6 8 3 2 5 9
4 5 8
6 7 4 3
8 5 2 6
9 2 3 1
8 6
5 4 3
2 1 6 9 5
8 5
6 3 1 7
5 4
4 9 7 8 2
2 5 4
7 1
9 7 4
5 3
1 8 7 2
1 9 2
7 9
4 3 6
6 9 8 4
4 6
2 1 5
Mikill dýravinur
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Sara Hlín er kát og skemmtileg
stelpa. Hún er mikill dýravinur
og finnst skemmtilegt að prjóna
og föndra.
Nafn: Sara Hlín Sigurðardóttir.
Aldur: 10 ára.
Stjörnumerki: Meyja.
Búseta: Ég bý í Grafarvoginum í
Reykjavík.
Skóli: Rimaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Textíll.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Fíll, en af heimilisdýrum þá er það
köttur og hundur. Svo hef ég gaman
af hestum.
Uppáhaldsmatur: Sushi.
Uppáhaldshljómsveit: Billie Eilish.
Uppáhaldskvikmynd: Cruella.
Fyrsta minning þín? Þegar ég
var fjögurra ára og fékk bangsa frá
mömmu og pabba.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta með
Fjölni og spila á þverflautu.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Kennari sem kennir
textíl.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Man ekki eftir neinu.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt
um jólin? Ég ætla að vera heima með
fjölskyldunni og hafa það notalegt.
Næst » Ég skora á Albert Hellsten
Högnason að svara næst.