Bændablaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 202210
Skrifað hefur verið undir samkomu-
lag milli Svalbarðsstrandarhrepps
og Vegagerðarinnar vegna upp-
byggingar göngu- og hjólastígs
frá Vaðlaheiðargöngum og að
Skógarböðum sem verið er
að reisa í landi Ytri-Varðgjár
í Eyjafjarðarsveit, handan
Akureyrar.
Vegagerðin greiðir 70% kostnaðar
sveitarfélagsins við stígagerðina en
áætlaður kostnaður við 30% hlut
Svalbarðsstrandarhrepps er um 200
milljónir króna.
„Þessi styrkur frá Vegagerðinni
hefur gríðarlega þýðingu fyrir
lítið sveitarfélag í svo stóru og
metnaðarfullu verkefni og mun
hann tryggja að stígurinn verði
fullkláraður með áningastöðum og
lýsingu sem tryggir öryggi þeirra
sem um stíginn fara,“ segir Þórunn
Sif Harðardóttir, verkefnastjóri hjá
Svalbarðsstrandarhreppi.
Undirbúningur að lagningu
göngu- og hjólastígs um sveitarfé-
lagið hefur staðið yfir nokkur undan-
farin ár, en skriður komst á þegar
landeigendur Ytri-Varðgjár ákváðu
að byggja upp Skógarböð, baðstað
í landi þeirra, og nýta heita vatnið
sem rennur óbeislað í Eyjafjörðinn.
Þórunn segir verkefnið metnaðar-
fullt og með lagningu stígsins verði
umferðaröryggi hjólandi og gang-
andi vegfarenda stórlega aukið á
hættulegri leið. Áningastaðir verða
á leiðinni með bekkjum, upplýsinga-
skiltum og aðstöðu fyrir notendur til
að stoppa og njóta.
Malbikað í haust
Norðurorka sér um lagningu á
leiðsl um og flutningi vatns frá
Vaðlaheiðargöngum og að bað-
staðnum. Jafnframt verða lagðar
lagnir sem munu flytja kalt vatn frá
Vaðlaheiðargöngum til Akureyrar.
Þórunn segir að lokið hafi verið
við að grafa lagnaskurð í gegnum
Vaðlareitinn fyrir vatnslagnir og nú
um miðjan janúar verður klárað að
sjóða saman lagnir í skurðinn.
Gert er ráð fyrir að stígurinn verði
malbikaður haustið 2022.
/MÞÞ
FRÉTTIR
Feðgarnir Bradley og Barney
Walsh voru meðal þeirra fjöl-
mörgu sem heimsóttu Laugalands-
skóg á aðventunni til að höggva
sitt eigið jólatré.
Athöfnin var tekin upp og sýnd
í þættinum Bradley and Barney:
Breaking Dad at Christmas á sjón-
varps stöðinni ITV í Bretlandi á sjálft
aðfangadagskvöld. Gert er ráð fyrir
að um 20 milljón manns hafi fylgst
með gjörningnum.
„Þeir feðgar ásamt fylgdarliði,
um 40 manns, voru afar viðkunnan-
legir og viðræðugóðir, sungu jóla-
lögin og þáðu að sjálfsögðu rjúkandi
ketilkaffi og popp þegar draumatréð
var fundið,“ segir á Facebook-síðu
Skógræktarfélags Eyfirðinga. „Þessi
knáa eyfirska stafafura hefur sem sagt
lagt heiminn að fótum sér.“ /MÞÞ
Feðgarnir Bradley og Barney Walsh tóku upp hluta af vinsælum þætti sínum í Laugalandskógi þar sem þeir sóttu
sér jólatré. Myndir / Skógræktarfélag Eyfirðinga
Frægasta jólafuran kom
úr Laugalandsskógi
Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga,
splæsti í mynd af sér með feðgunum.
Lokið hefur verið við að grafa lagnaskurð í gegnum Vaðlareit og áætlað
að lagnir verði komnar í skurðinn nú um miðjan janúar. Stefnt er að því að
malbika stíginn á komandi hausti. Mynd /Svalbarðsstrandahreppur
Góður gangur við gerð nýs stígs um Vaðlareit:
Vegagerðin greiðir 70% kostnaðar
– Þýðingarmikið fyrir lítið sveitarfélag í metnaðarfullu verkefni
sp
ör
e
hf
.
— Wales – í landi rauða drekans —
24. - 30. júní | Sumar 7
Fararstjóri: Árni Snæbjörnsson
Stórfenglegt landslag og keltnesk menning eru aðaleinkenni
áfangastaðar okkar, Wales. Ferðast verður um Norður-Wales,
áhugaverðir staðir skoðaðir og komið í fallega bæi og
borgir, svo sem fornu borgina Chester, fagra strandbæinn
Llandudno og til Conwy þar sem við lítum á minnsta hús
Bretlands. Einnig verður farið um Snowdonia þjóðgarðinn og
til borgar Bítlanna, Liverpool. Ferðinni lýkur í Manchester þar
sem gaman er að skoða mannlífið og borgina.
Verð: 199.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið hefur birt niðurstöðu
úthlutunar á tollkvótum á land-
búnaðar afurðum frá Bretlandi
fyrir tímabilið janúar til desem-
ber 2022.
KFC fær allan kjötkvótann
sem í boði var, eða 18.000 kíló, á
meðalverðinu 599 krónur á kílóið.
Fyrirtækið fær auk þess stærstan
hluta af osti og ystingi, 14.750 kíló
á meðalverðinu 585 krónur á kílóið.
Um þrjá vöruliði var að ræða sem
útboðið náði til; ostar og ystingar
(vöruliður nr. 0406) , ostar og
ystingar (vöruliður nr. ex 0406),
sem skráðir eru samkvæmt vernd
landfræðilegra merkinga og uppruna
landbúnaðarafurða, og matvæli og
annað kjöt, unnið eða varið skemmd-
um (vöruliður nr.1602).
Sex tilboð bárust í tollkvóta
vegna innflutnings úr þessum vöru-
liði, en tilboði var einungis tekið frá
KFC, sem áður segir, um innflutn-
ing á 18.000 kílóum á meðalverðinu
599 krónur á kílóið.
Stærstan hluta af ostum og ystingi
úr vöruliðnum ex 0406 fékk Krónan,
eða alls 3.300 kíló, en úthlutað var
með hlutkesti samkvæmt reglugerð.
Mjólkursamsalan fékk næstmest,
2.750 kíló. /smh
Heildargreiðslumark mjólkur
fyrir næsta ár verður aukið um
ríflega eitt prósent, samkvæmt
breytingu á reglugerð um
stuðning við nautgriparækt sem
Svandís Svavarsdóttir land-
búnaðarráðherra hefur undir-
ritað.
Framkvæmdanefnd búvöru-
samn inga hefur fjallað um málið
og lagði til við ráðherra að
heildargreiðslumark næsta árs yrði
146,5 milljón lítrar. Á þessu ári var
heildargreiðslumark 145 milljón
lítrar af mjólk, en þetta var þriðja
árið í röð þar sem það hélst óbreytt.
Forsendur nefndarinnar eru,
samkvæmt tilkynningu úr ráðu-
neytinu, áætlun neyslu á innlendum
mjólkurvörum sem gerir ráð fyrir
svipaðri sölu og 2021. „Hins vegar
hafa stuðlar um samsetningu mjólkur
tekið breytingum til hækkunar. Fitu-
og próteininnihald mjólkur tekur
sífellt náttúrulegum breytingum og
nú hefur það þau áhrif að fleiri lítra
mjólkur þarf til þess að framleiða
sama magn mjólkurvara,“ segir í
tilkynningunni.
Beingreiðslurnar miðast við
heildargreiðslumark mjólkur
Heildargreiðslumark mjólkur er það
magn mjólkur sem beingreiðslur rík-
issjóðs miðast við og er ákveðið fyrir
upphaf hvers verðlagsárs.
Við ákvörðun nefndarinnar
skal byggt á neyslu innlendra
mjólkurvara sem farið hafa um
afurðastöðvar á árinu og áætlun
ráðherra fyrir komandi verðlagsár,
að teknu tilliti til birgða. Við mat
á neyslu og birgðum skal miða við
gildandi stuðla um samsetningu
mjólkurafurða. Þá skal ráðherra
byggja áætlun fyrir komandi
verðlagsár á upplýsingum frá
afurðastöðvum. /smh
Enskur cheddar-ostur. Mynd / Unsplash
Tollkvótar fyrir landbúnaðarafurðir frá Bretlandi:
KFC fékk mest úthlutað
Mjólkurkvótinn aukinn um ríf-
lega eitt prósent á næsta ári