Bændablaðið - 13.01.2022, Qupperneq 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 202222
UTAN ÚR HEIMI
CNH Industrial besta alþjóðlega starfandi
fyrirtækið í Austurríki annað árið í röð
Leiðandi fyrirtæki í Austurríki
hafa valið dráttarvéla fram
leiðandann CNH Industrial
Austria, móðurfélag Case IH og
STEYR, sem besta alþjóðlega
starfa ndi fyrirtækið 2021.
CNH Industrial vann verðlaunin
líka árið 2020 og er þetta sagt
undirstrika stöðu Case í landinu
undir kjörorðunum „Austurrísk
gæðaframleiðsla“, eða „Quality
made in Austria“.
IH og STEYR dráttarvélar eru
fram leidd ar í St. Valentin í Nieder
öster reich, „Neðra Austur ríki“, sem
er í norðausturhluta lands ins.
Keppnin er viðurkennd sem
mikilvægasta viðskiptakeppni
landsins og er skipulögð af
Pricewater house Coopers (PwC),
austurríska dagblaðinu „Die
Presse“ og fjármálagagnaveitunni
KSV1870.
Með áherslu á útflutning
„Alþjóðlegi“ keppnisflokkurinn er
opinn fyrirtækjum með alþjóðlega
uppbyggingu, viðskiptamódel og
virðiskeðju/viðskiptavinaskipulag.
Þeir verða að framleiða vörur eða
þjónustu sem skipta máli á heims
markaði, þar sem útflutningur er
umtalsverður hluti framleiðslunnar,
og hafa erlend útibú.
Verksmiðjan í St. Valentin
framleiðir Case IH og STEYR
dráttarvélar fyrir viðskiptavini í
Evrópu, Afríku, MiðAustur lönd
um, Asíu og í kringum Kyrra hafið.
Í St. Valentin er löng saga og hefð
fyrir nýstárlegri landbúnaðartækni,
sem og metnaðarfullri og háþróaðri
framleiðslutækni. CNH Industrial
byggir á sérfræðiþekkingu og
ástríðu 750 starfsmanna sinna, en
hátt hlutfall þeirra eru bændur sem
eru í hlutastarfi í verksmiðjunni.
Síðan verksmiðjan var opnuð
árið 1947 hafa verið í framleiðslu
margar mismunandi vörulínur og
dráttarvélagerðir, þar á meðal Case
IH Optum CVXDrive, Puma Series,
Maxxum Series og Luxxum
dráttarvélar, ásamt STEYR
Absolut CVT, Terrus CVT,
Impuls CVT, Profi Series
og Multi models.
Regnhlíf margra tegunda
CNH Industrial er regn
hlífar fyrirtæki yfir fjölda
þekkra merkja í landbún
aðartækjum, vinnuvélum,
og atvinnubílum. Þar má
nefna dráttarvélategundir
nar New Holland, Case IH, Case
Construction og Steyr, bifreiða
framleiðslufyrirtækin IVECO,
Iveco Astra, Iveco Bus, Iveco
defence vehicles, Heuliez Bus,
Magirus slökkvibíla og vélafram
leiðslufyrirtækið FPT. /HKr
Stór hluti af 750 starfsmönnum í verksmiðju CNH Industrial í St. Valentin í
Austurríki eru bændur sem þar starfa í hlutastarfi.
Mikil saga, hefð og þekking er á bak við
vélaframleiðslu í bænum St. Valentin í
norðausturhluta Austurríkis.
Heimsmet var sett í mars á þessu ári þegar stórri Deutze-Fahr dráttarvél var
lagt á stúta á 12 glerflöskum á 1 mínútu og 22 sekúndum.
Í mars 2021 var sett heims met
með stórri fagurgrænni DEUTZE
FAHR TTV Warrior tölvustýrðri
dráttarvél.
Á aðeins 1 mínútu og 22
sekúndum settu Stefan Petke og
sonur hans Fabian frá Mallersdorf
Pfaffenberg í NeðraBæjaralandi
heimsmet með því að leggja 7
tonna dráttarvél frá Lauingen
verksmiðjunum ofan á stúta á tólf
glerflöskum.
Ef íslenskir bændur vilja reyna
að slá þetta met, er sennilega örugg
ara að byrja á því að kynna sér
hvernig feðgarnir fóru að þessu á
vefslóðinni; https://www.deutz-fahr.
com/en-eu/deutz-fahr-world/news-
events/10773-a-series-6-ttv-tractor-
parked-on-glass-bottles. /HKr.
DEUTZE-FAHR lagt
á 12 glerflöskur
Fyrsti vetnisknúni trukkurinn til að
keppa í Dakar-rallinu verður Gaussin
Franski vinnuvéla fram leið
andinn Gaussin afhjúpaði í
nóvember síðastliðnum H2
keppnis trukk, sem er fyrsta
vetnisknúna farartæki heims sem
hannað er til að keppa í Dakar
rallinu í SádiArabíu árið 2022.
Þetta er flutningabíll sem mun
keppa í akstri yfir sandöldurnar til
að sýna fram á getu vetnisknúins
rafmagnsbíls sem er búinn efnarafal
sem umbreytir vetni í raforku fyrir
mótorana.
H2 keppnisbíllinn er fyrsta
gerðin í nýju línu vörubíla frá
Gaussin sem er mengunarlaus og
100 prósent vetnisrafbíll. Hann
á að koma á markað árið 2022.
Hönnun bílsins var þróuð af hinu
virta ítalska fyrirtæki Pininfarina.
Vörubíllinn er tilbúinn til að
þola allar erfiðar aðstæður sem
eyðimörkin býður upp á.
Búinn tveimur 402 hestafla
mótorum
H2 kappakstursbíllinn verður
knúinn tveimur rafmótorum sem
munu skila 402 hestöflum hvor (300
kW). Efnarafallinn sem umbreytir
vetninu getur framleitt 510 hö (380
kW) og eru vetnistankar fyrir 80
af eldsneyti. Bíllinn verður einnig
búinn 82 kWh rafhlöðu sem á að
nýtast í eyðimerkurkappakstrinum.
Þá verður aksturshraðinn takmark
aður við 140 km á klukkustund til
að uppfylla Dakar reglur.
Vetniskerfi bílsins er hannað
fyrir ofurléttan undirvagn og hægt
verður að fylla á vetnistankana á
innan við 20 mínútum. Þá á bíllinn
að komast allt að 400 km á einni
tankfyllingu.
Gaussinliðið þróaði kapp
akstursbílinn á aðeins ári. Teymið
tókst á við tæknilegar áskoranir
vetnisknúins bíls. Var efnarafall
prófaður við erfiðar aðstæður sem
gengu lengra en staðlaðar kröfur
framleiðenda gerir við hönnun
vörubíla fyrir vegarekstur.
Reynslan úr Dakar-rallinu nýtt
við frekari þróun
Frammistöðugögn, sem safnað er
í Dakar rallinu á næsta ári, munu
hjálpa til við þróun á vörubíl
fyrirtækisins sem á að frumsýna
nú á árinu 2022.
Gaussin ætlar að setja á
markað fjögur önnur afbrigði af
mengunarlausa vörubílnum. Það
er dráttarbíll, sjálfstýrður vörubíll,
einn sendibíll og verktakabíll.
Öll uppbygging og hönnun nýju
ökutækjanna mun taka mið af
tæknikröfum sem tengjast vetni
og rafdrifnum bílum. /HKr.
Gaussin vetnistrukkurinn verður búinn tveim 402 hestafla rafmótorum.
Tractor of the Year verðlaunin á Ítalíu:
John Deere 7R 350 autoPowr
er dráttarvél ársins 2022
John Deere 7R 350 AutoPowr
er dráttarvél ársins 2022 í
opnum flokki að mati evrópskra
blaðamanna. Þá er John Deere
6120M AutoPowr dráttarvélin
valin dráttarvél ársins hvað
gagnsemi varðar.
Dráttarvél ársins, Tractor of
the Year (TotY), er alþjóðleg
verðlaun sem hópur óháðra
blaðamanna sem sérhæfa sig í
landbúnaðartækjum veitir árlega
besta traktornum á evrópskum
markaði. Höfuðstöðvar þessarar
keppni, eða verðlaunaúttektar, eru
á Ítalíu.
Alþjóðlega dómnefndin er
skipuð 26 fulltrúum fjölbreyttra
miðla sem koma út í pappírsútgáfu,
sem tímarit og á vefnum, sem
landbúnaðarsjónvarpsþættir,
samfélagsmiðlar og svo fleira.
Blaðamennirnir eiga það sammerkt
að sérhæfa sig í umfjöllun um
landbúnað og tæki tengd þeirri grein.
Verðlaunin fyrir dráttarvél
ársins voru fyrst veitt árið 1998
að frumkvæði ítalska tímaritsins
Trattori.
Strax í árdaga voru næstum öll
helstu landbúnaðarblöðin í Evrópu
sem tóku þátt í þessu verkefni. Ár
eftir ár hefur dómnefndin verið að
vaxa að því marki sem nú er, með
fulltrúa frá 25 löndum.
Dómnefndin og TotY verkefnin
halda áfram viðleitni sinni við að
leita að bestu tækninni og lausnun
um sem til eru á markaðnum.
Aðrir vinningshafar í keppninni
um dráttarvél ársins 2022 voru
Reform Metrac H75 Pro, sem hlaut
verðlaun fyrir sérhæfð landbún
aðartæki og New Holland T6.180
Methane Power, sem hlaut verðlaun
sem sjálfbærasta dráttarvél ársins
2022. /HKr.
Dráttarvél ársins 2022 er John Deere 7R 350.
Reform Metrac H75 Pro.
New Holland T6.180 Methane Power.