Bændablaðið - 13.01.2022, Qupperneq 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 202226
Skvetta berjakóla er nýtt náttúru-
gos sem inniheldur íslensk aðal-
bláber, handristuð og möluð
krydd ásamt smá skvettu af hand-
verkskaffi frá Kvörn.
Engin aukaefni eða hvítur sykur
eru í Skvettu berjakóla, heldur
aðeins smotterí af lífrænni þyrni-
lilju. Drykkurinn er fáanlegur í
Melabúðinni, verslunum Hagkaups
og á Kaffi Laugalæk, í dósum og
á krana.
Björn Arnar Hauksson, eigandi
Skvettu, segir að drykkurinn sé
fjörugur og hollur drykkur en hann
þróaði drykkinn í samvinnu við Völu
Stefánsdóttur kaffibarþjóni.
„Útkoman er holl bragðbomba
eins og kóla var í gamla daga. Við
erum mjög stolt af drykknum enda
lengi búið að vera draumur hjá mér
að gera gott íslenskt náttúrugos.
Við Vala erum bæði í
veitingageiranum og höfðum því
lítið að gera í Covid og vildum nýta
tímann í eitthvað uppbyggilegt og
skemmtilegt. Matvælasjóður Íslands
studdi okkur í því að þróa drykk úr
íslensku hráefni,“ segir Björn. /VH
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
FRÉTTIR
Það hefur vakið athygli að
Halldóra Hjörleifsdóttir, oddviti
Hrunamannahrepps, hefur ákveðið
að hætta í sveitarstjórnarmálum
og því býður hún sig ekki fram í
kosningunum í vor. En hver er
ástæðan?
„Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar
að það er gott að vera ekki of lengi í
einu í þessu verkefni, gott að taka pásu,
stíga frá og hleypa fleirum að. Já, ég
segi pásu því ég get ekki lofað því að
ég sé hætt til framtíðar. Það verður
líka að segjast að það hefur töluverð
áhrif á ákvörðunina hjá mér hvernig
umræða er hjá fólki um málefnin og
um þá sem eru í stjórnunarstörfum
fyrir sveitarfélagið.
Gagnrýni og uppbyggilegar
samræður um þau málefni sem liggja
fyrir eru nauðsynlegar og af hinu
góða. Það er nauðsynlegt að geta rætt
mismunandi skoðanir en sú umræða er
oft ekki málefnaleg og sum hver fólki
alls ekki til sóma. Til dæmis það að
fá skilaboð á gamlárskvöld, þegar þú
ert heima að njóta með fjölskyldunni,
með hótunum varðandi málefni tengd
sveitarfélaginu, hefur áhrif. Margir
myndu kannski segja að þeir sem
ákveða að bjóða sig fram í þetta starf
verði bara að hafa breitt bak og taka
svona áreiti, ég er hins vegar á því að
það sé ekki í boði.
Það þarf að hafa ákveðin mörk í
þessu starfi eins og öllum störfum. Þó
þetta sé mjög lítill hluti af starfinu sem
fer í svona leiðinlega hluti þá safnast
það saman yfir árin og því taldi ég gott
að taka pásu frá því.
Það er óhætt að segja að sú
ákvörðun um að hætta var ekki tekin
á einum degi. Skemmtilegu hlutirnir
í þessu starfi eru svo þúsund sinnum
fleiri heldur en þeir erfiðu,“ segir
Halldóra. /MHH
Halldóra, oddviti Hrunamannahrepps, segist vera búin að fá nóg og hættir í vor:
Segist hafa fengið hótun um
málefni sveitarfélagsins
Halldóra Hjörleifsdóttir, oddviti
Hrunamannahrepps. Mynd / Aðsend
Skútustaðahreppur hefur keypt jörðina Kálfaströnd, 1 og 2 af Elínu Einarsdóttur.
Auk þess fasteignir sem jörðinni fylgja, en kaupverðið er 140 milljónir. Stærð
jarðarinnar er um 1.500 hektarar. Mynd / Skútustaðahreppur/Loftmyndir
Skútustaðahreppur kaupir
Kálfaströnd á 140 milljónir
Gengið var frá kaupsamningi
undir lok síðasta árs um jörðina
Kálfaströnd (Kálfaströnd 1
og Kálfaströnd 2) við eiganda
hennar, Elínu Einarsdóttur.
Skútustaðahreppur kaupir
jörðina og fasteignir sem henni
fylgja á 140 milljónir.
Stærð jarðarinnar er um
1.500 hektarar og er hún meðal
stærstu veiðiréttarhafa í Mývatni.
Kálfaströnd á land að Höfða,
sem er í eigu Skútustaðahrepps
og er vinsælt útivistarsvæði
Mývatnssveitar.
Viðræður um kaupin hafa
staðið yfir frá vordögum 2021,
með hléum. Það er sameiginleg
framtíðarsýn kaupanda og seljanda
að sveitarfélagið Skútustaðahreppur
muni um ókomna tíð stuðla að
vernd náttúru Kálfastrandar, að
því er fram kemur í frétt á vef
Skútustaðahrepps. „Sameiginleg
framtíðarsýn felur jafnframt í sér að
almenningur eigi þess kost að njóta
náttúru jarðarinnar á grundvelli
skipulags. Skútustaðahreppur
mun vinna að þróun skipulags og
innviðauppbyggingar á Kálfaströnd
í samræmi við þessa framtíðarsýn,“
segir enn fremur.
Aukið aðgengi að náttúruperlum
Fram kemur að með kaupunum
opnast sveitarfélaginu möguleikar
til að gefa íbúum og gestum aukið
aðgengi að náttúruperlunni Mývatni
á grundvelli langtíma skipulags og
byggja upp stefnumiðað samstarf
við menntastofnanir, stofnanir
ríkisins, sjóði á sviði náttúruverndar
og innviðauppbyggingar og aðra
sem láta sig einstaka náttúru
Mývatnssveitar varða. Kaupin
gefa sveitarfélaginu jafnframt
aðgang að húsakosti sem nýst getur
áhaldahúsi og stutt við byggðaþróun
sveitarfélagsins. /MÞÞ
Smáauglýsingar 56-30-300
Dósir af berjakóla.
Skvetta berjakóla er nýtt íslenskt náttúrugos
Ara Edwald sagt upp vegna ásakana
um ósæmilegt kynferðislegt háttalag
Ara Edwald, framkvæmdastjóra
Íseyjar útflutnings, dótturfélags
Auðhumlu, hefur verið sagt upp
störfum. Uppsögnin tók strax gildi.
Í tölvupósti Íseyjar sem sendur var
til félagsmanna samvinnufélagsins
Auðhumlu segir: „Í síðustu viku
birtist í fjölmiðlum umfjöllun þar
sem framkvæmdastjóri ÍSEYJAR
útflutnings, auk þriggja annarra
nafngreindra aðila, er ásakaður um
þátttöku í ósæmilegri kynferðislegri
háttsemi gagnvart ungri konu í lok
árs 2020,“ segir í tölvupóstinum.
Auðhumla á 80% hlut í
Mjólkursamsölunni
Í tölvupóstinum segir enn fremur:
„Ónákvæmar upplýsingar um fram-
angreint bárust stjórn í lok október
2021. Málið var strax tekið alvarlega
vegna þess möguleika að upplýs-
ingarnar væru réttar, og hefur stjórn
félagsins fundað oft um málið, bæði
með framkvæmdastjóra og án hans.
Málið var enn til meðferðar í
stjórn í síðustu viku þegar vatnaskil-
in urðu. Eins og allir gera sér grein
fyrir eru mál af þessum toga bæði
alvarleg og erfið. “Þær ásakanir sem
nú eru komnar fram á hendur fram-
kvæmdastjóra eru með þeim hætti
að stjórn félagsins taldi sér skylt,
að vel athuguðu máli, að segja upp
ráðningarsamningnum við hann,
með áskilnaði til riftunar síðar ef
tilefni gefst til, með hliðsjón af
hagsmunum félagsins, starfsfólks
og viðskiptamönnum þess, og ekki
síður meintum þolanda.“
/VH
Ari Edwald.