Bændablaðið - 13.01.2022, Page 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 2022 39
Hluti af verknámi við búnaðar
skólana var að halda dagbók. Í hana
skyldi færa orð um það sem gert var
á hverjum degi, auk veðurlýsingar.
Lýsa skyldi helstu verkum, gjarnan
með því að setja þau í búfræðilegt
samhengi. Krafan um dagbókar
færslu var fyrst og fremst tengd
verklegu námi. Þess vegna er færsla
dagbókar t.d. hluti af verklega bún
aðarnáminu á Hvanneyri enn í dag.
Dagbækur búfræðinema frá
fyrri tíð hafa allnokkrar varðveist,
bæði í fórum afkomenda þeirra og í
skjalasöfnum. Ófáar þeirra hafa meðal
annars borist aftur að Hvanneyri. Þær
elstu eru frá fyrsta tug síðustu aldar.
Margar bókanna eru hinar ágætustu
heimildir um líf og starf í skólanum.
Í fæstum tilvikum er þó fjallað um
einkahagi skrifaranna, hvað þá hugs-
anir þeirra eða tilfinningar, enda ekki
til þess ætlast.
Gaman er að lesa dagbækur
skólafélaga og að sjá hvernig sama
viðfangsefnið var séð mismunandi
augum. Hver lýsir því eins og það
kom honum fyrir sjónir: Einum verð-
ur það stóratburður sem annar getur
um í framhjáhlaupi eða sleppir alveg.
Sumar dagbókanna eru listilega vel
skrifaðar. Það sama á við stílinn sem
hjá sumum, þó ungum að árum, er
skýr og þéttur.
Vitað er að krafan um færslu dag-
bókar í búnaðarnáminu varð til þess
að ýmsir nemendur kusu að halda
dagbókarskrifunum áfram að námi
loknu. Þannig hafa jafnvel orðið til
áratuga langar frásagnir einstak-
linga af ævum þeirra, leikjum og
störfum. Fæstar þeirra hafa komið
fyrir almenningssjónir, enda ekki
hugsun skrifaranna að svo yrði. Í
gömlum dagbókum liggur víða mikil
saga. Á síðari árum hefur kviknað
áhugi á að rannsaka þennan þátt
íslenskrar menningar. Má þar nefna
merkilegt fræðastarf Sigurðar Gylfa
Magnússonar prófessors, frumkvöð-
uls í rannsóknum á sviði einsögu, sem
svo er nefnd, en í þeim rannsóknum
eru dagbækur einstaklinga, gjarnan
alþýðufólks, mikilvægt hráefni.
Með pistli þessum vildi ég vekja
athygli á tilvist og gildi dagbók-
arskrifa búfræðinema fyrri tíðar
og hvetja þá, sem slík gögn hafa
undir höndum, að sjá til þess að
þau komist í verðuga varðveislu – á
skjalasafni byggðarlagsins/landsins
eða í skjalasafni Landbúnaðarháskóla
Íslands á Hvanneyri.
Bjarni Guðmundsson
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR AF
AJ RAFSTÖÐVUM
Stöðvar í gám
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
SAGA&MENNING
Sögubrot um búfræðslu 1:
Að halda dagbók
Forsíða dagbókar Guðjóns F. Davíðssonar frá Álfadal á Ingjaldssandi.
Úr dagbók Níelsar Hallgrímssonar frá Grímsstöðum í Mýrasýslu.