Bændablaðið - 13.01.2022, Page 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 202242
Hverjum hefði dottið það í hug
fyrir einhverjum árum að það
væri hægt að fara með hundinn
sinn á bókasafn og láta lesa
fyrir hann? Hvort sem lesendur
blaðsins trúa þessu eða ekki þá er
þetta staðreynd og skemmtilegt
verkefni, sem hefur tekist mjög
vel. Það eru samtökin „Vigdís,
vinir gæludýra á Íslandi“ sem
eiga heiðurinn af verkefninu en
þar er Margrét Sigurðardóttir
formaður.
Bandarísk fyrirmynd
Félagasamtökin „Vigdís – vinir
gæludýra á Íslandi“ voru stofnuð
árið 2013 í þeim megintilgangi
að stuðla að útbreiðslu lestrar
verkefnisins „Lesið fyrir hund“
(e. R.E.A.D.) á Íslandi. Um er að
ræða lestrarverkefni að bandarískri
fyrirmynd sem nefnist R.E.A.D.
(Reading Education Assistance
Dogs). Félagasamtökin Vigdís eru
samstarfsaðili R.E.A.D. og hafa
aflað sér leyfis og umboðs til að hafa
umsjón með R.E.A.D. verkefninu á
Íslandi. „Áhugi á að stofna félag
með áherslur á lestrarþjálfun með
hundum kviknaði eftir að ég, Brynja
Tomer og Sóley Ragnarsdóttir
höfðum, ásamt hópi af áhugasömu
fólki, skipulagt á vorönn 2013
tilraun félagsmiðstöðvar og skóla
með verkefnið „Lesið fyrir hund
á Íslandi“. R.E.A.D. verkefnið er
starfrækt í 25 löndum samkvæmt
heimasíðu Intermountain Therapy
Animals, auk þess sem verkefnið
er víða um Bandaríkin. Það var
heilmikill undirbúningur að
gerast samstarfsaðili bandarísku
móðursamtakanna. Við þurftum
að fara á námskeið bæði hérlendis
og erlendis með leiðbeinendum
R.E.A.Dsamtakanna og taka próf
varðandi aðferðafræði verkefnisins
og velferð hunda. Síðan þurfti að
stofna félagið okkar, „Vigdís –
vinir gæludýra á Íslandi“, til þess
að halda utan um „Lesið fyrir hund“
verkefnið á Íslandi,“ segir Margrét.
Hvatning til lesturs
Margrét segir að tilgangur
verkefnisins sé að hvetja börn til
lesturs, auka lesskilning og ánægju
af lestri. Í verkefninu „Lesið fyrir
hund“ lesa börn fyrir hund og
lestrarliða, sem eru hundaeigendur.
Í lestrarstundinni er hundurinn
í aðalhlutverki og lestrarliðinn í
hlutverki vinar. „Áhersla er lögð
á að barn lesi sér til skilnings en
ekki að texti sé lesinn lýtalaust. Í
lok lestrarstundar gefst tækifæri til
að ganga úr skugga um lesskilning
með því að nýta hundinn, enda
gengið út frá því að hundurinn sé í
aðalhlutverki sem hlustandi og að
barnið sé í hlutverki leiðbeinanda
hundsins. Verkefnið hefur farið
einstaklega vel af stað og er
eftirsótt að fá verkefnið til sín,“
segir Margrét.
Sex bókasöfn taka þátt
Í dag eru reglulegar lestrarstundir
fyrir börn á sex bókasöfnum,
á Bókasafni Kópavogs, Garða
bæjar, Seltjarnarness, Hveragerðis,
Mosfellsbæjar og á Sólheimabóka
safni Reykjavíkur. Lestrarstundir eru
einu sinni í mánuði á hverju safni og
eru þær á laugardögum. Bókasöfnin
auglýsa skráningu og foreldrar skrá
börnin í lestrarstundirnar gegnum
bókasöfnin. Margrét segir að fleiri
bókasöfn séu að óska eftir að fá ver
kefnið til sín en til að geta sinnt kall
inu þurfi að fjölga hundaeigendum.
Áhuginn eykst hjá börnum
Þegar Margrét er spurð um áhuga
og viðbrögð barna við verkefninu
kemur í ljós að hún gerði rannsókn
á verkefninu í sínu mastersnámi og
niðurstöður sýna fram á að áhugi
á því að lesa eykst hjá börnum og
viðhorf til lestrar verður jákvæðara.
„Já, þeim þykir eftirsóknarvert að
lesa fyrir hund og þau sýna aukinn
áhuga á að lesa í lestrarstundum með
hundum,“ segir Margrét og bætir
við: „Við erum með allar tegundir
af hundum. Það sem skiptir mestu
máli er upplag, geðslag og uppeldi
hundsins og samband hundaeiganda
(lestrarliða) við hund. Allir hundar
fara í gegnum hundamat hjá hunda
matsmönnum Vigdísarsamtakanna
áður en þeir verða lestrarhundar. Ein
af aðaláherslum verkefnisins er að
passa upp á vellíðan hundanna og
að ofgera þeim ekki.
Við teljum það vera góða vís
bendingu um vellíðan hundanna
þegar þeir sjá lestrarstaðinn sinn að
þeir taka blátt strik að honum með
dillandi skott.“
Skólar sýna verkefninu
líka áhuga
„Já, það eru bæði bókasöfn og
skólar sem óska eftir að fá verkefnið
til sín. Verkefnið skiptist í tvo hluta,
annars vegar er það yndislestur, til
dæmis á bókasöfnum (e. Animal
Assisted Activity) og hins vegar
skólaverkefni (e. Animal Assisted
Therapy) þar sem lestrarstundir
standa yfir ákveðið tímabil með
barni og skráður er árangur þess
og framvinda verkefnisins. Til að
geta annað öllum þurfum við að fá
fleiri sjálfboðaliða, þ.e.a.s. lestrar
liða (hunda og hundaeigendur),“
segir Margrét aðspurð um áhuga á
verkefninu.
Þakkar sjálfboðaliðum
Þegar Margrét var spurð hvort
það væri eitthvað sérstakt, sem
hún vildi koma á framfæri sagði
hún; „Já, endilega, ég vil koma á
framfæri þakklæti til allra þeirra
sjálfboðaliða sem starfa með
Vigdísarsamtökunum, bæði til
stjórnarmanna og ekki hvað síst
hundaeigendanna (lestrarliða). Án
þeirra væri verkefnið „Lesið fyrir
hund“ ekkert. Lestrarliðarnir okkar
eru lykillinn, þau fara á námskeið,
læra aðferðafræði verkefnisins og
skuldbinda sig og hundinn sinn til
þess að vera virkir áreiðanlegir leið
beinendur fyrir Vigdísarsamtökin.
Við erum með heimasíðu,
hundalestur.is og vil ég hvetja
áhugasama að setja sig í sam
band við okkur gegnum netfangið
hundalestur@hundalestur.is.“
/MHH
LÍF&STARF
Sveitarfélagið Skagafjörður
hefur um nokkurt skeið unnið að
því að koma til móts við óskir um
leikskólarými fyrir börn frá 12
mánaða aldri og nú hillir undir
að það markmið sé að verða að
veruleika. Undanfarin misseri
hefur óskum eftir leikskóladvöl
barna frá 12 mánaða aldri
fjölgað umtalsvert og þá ekki
bara í Skagafirði heldur um
land allt.
Ný leikskólabygging á Hofsósi
„Umræða um skort á leikskóla
rýmum hefur enda verið talsvert
fyrirferðarmikil og ljóst að sveitar
félög eru afar misvel í stakk búin
til að mæta óskum foreldra í þessu
efni. Með lengingu fæðingar og
foreldraorlofs úr 9 mánuðum í
12 mánuði hefur umræðan m.a.
beinst að því að mikilvægt sé að
skapa samfellu í umönnun barna
og áhersla lögð á að leikskólar
standi öllum börnum til boða við
12 mánaða aldur,“ segir á vefsíðu
Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Ný leikskólabygging hefur
verið tekin í notkun á Hofsósi og
er hún sjálfstæð bygging í tengsl
um við grunnskólann. Unnið er að
hönnun nýs íþróttahúss sem einnig
mun tengjast grunnskólanum.
Með þessum framkvæmdum
verður allt skólastarf á sama stað
með tilheyrandi auknu hagræði
og möguleikum til samþættingar
og samvinnu.
Ný deild í Varmahlíð
Á Sauðárkróki er vinna við
byggingu tveggja nýrra deilda
hafin við Ársali, eldra stig. Ráðgert
er að fyrri áfangi þeirrar byggingar
verði tekinn í notkun í mars næst
komandi. Með tilkomu þessarar
byggingar verður hægt að anna
eftirspurn eftir leikskólarými fyrir
börn frá 12 mánaða aldri. Nú í upp
hafi nýs árs 2022 verður ný deild
tekin í notkun í Varmahlíð.
Sú deild verður í sama húsi
og yngstu barna deildin er nú,
eða í gamla pósthúsinu eins og
kallað er. Samhliða er unnið að
framtíðaruppbyggingu leik og
grunnskóla í Varmahlíð enda
það húsnæði einungis hugsað
til bráðabirgða.
Með þessum framkvæmdum
verður hægt að anna inntöku
barna í leikskóla í Skagafirði við
12 mánaða aldur. „Fullyrða má að
Sveitarfélagið Skagafjörður skapi
sér sterkan sess meðal sveitarfélaga
hvað þetta varðar og standi afar vel
að vígi í þjónustu við barnafólk,“
segir á vefsíðu Sveitarfélagsins
Skagafjarðar. /MÞÞ
Í viðbyggingunni verða fríhöfn, veitingastaður og aðstaða fyrir toll og lögreglu.
Sveitarfélagið Skagafjörður:
Markmið um að 12 mánaða
börn fái leikskólapláss
Verkefni á vegum „Vigdís – vinir gæludýra á Íslandi“:
Lesið fyrir hunda á sex bókasöfnum
„Lesið með hundi“-verkefnið hefur heppnast einstaklega vel og alltaf sýna fleiri og fleiri bókasöfn verkefninu áhuga,
auk skóla sem vilja komast inn í verkefnið. Myndir / Ragnheiður Elín Clausen
Hundarnir eru ótrúlega slakir og rólegir í lestrarstundunum og koma oftast
með dillandi skott inn á bókasafnið þegar þeir vita hvað á að fara að gera.