Bændablaðið - 13.01.2022, Síða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 2022 55
Í byrjun árs hafa Íslendingar
almennt verið bjartsýnir og
jákvæðir fyrir komandi ári,
bjartsýni, gleði og ánægja skín
almennt af öllum sem maður sér
síðasta og fyrsta dag hvers árs. Því
miður fannst mér þetta ekki vera
svona í kringum síðustu áramót,
baráttan við Covid-19 virðist vera
að draga niður þá miklu bjartsýni
og óskhyggju þjóðarinnar í böl,
neikvæðni og þunglyndi.
Þegar þetta er skrifað er um 5%
þjóðarinnar í sóttkví eða einangrun,
eða um 18.000 manns í það heila
samanlagt. Í nánast öllum fjölmiðlum
er orðið erfitt að finna jákvæða og
gleðilega umfjöllun eða frétt sem
léttir lund. Það var skrítið að verða
var við að fólk tók á sig lykkju til
að vera ekki nálægt hvað öðru á
gamlárskvöld þegar ég gekk fram
og til baka á útsýnishól í hverfinu
til að sjá betur flugeldasýningu
bæjarbúa og aldrei hef ég séð svona
fáa faðmast og kyssast um áramót.
Hræðslan við smit virðist vera að
heltaka megnið af þjóðinni.
Þungt yfir atvinnurekendum og
áhyggjur af framhaldinu
Það sem hefur áunnist er að þeir
sem eru bólusettir veikjast ekki
mikið og í flestum tilfellum varla
að fólk leggist í rúmið. Þarna er
ávinningur bólusetninganna svo
greinilegur að ekki verður efast um
ágæti bólusetningarinnar. Ég fékk
tölvupóst á síðasta ári frá andstæðingi
bólusetninga og var vændur um
meðvirkni og heilaþvottsstarfsemi
sóttvarnalæknis og spurður hvað ég
hefði fengið miklar mútur fyrir að
stunda svona skrif.
Það er eðlilega þungt yfir
mörgum sem reka fyrirtæki með
marga starfsmenn þegar smit eru
svona mörg á hverjum degi og að
starfsemin sé í hættu ef upp kemur
smit og þurfa að loka fyrirtækinu
um tíma vegna sóttkvíar og smits
meðal starfsmanna. Sem betur fer
eru enn þá fáar sögur af slíku, en
samt eitthvað um að það vanti allt
að fjórðung starfsmanna vegna
sóttkvíar.
Bæði stór og smá fyrirtæki
þurfa að hafa það sem kallast „plan
B“, en það eru alltof margir sem
hugsa ekki um þetta og lenda svo
í slæmum málum ef upp kemur
smit á vinnustað. Sjálfur vinn ég á
um 20 manna vinnustað og teljum
við okkur hafa sloppið vel að talan
hafi ekki farið yfir 15% enn þá. Við
gerum okkur fulla grein fyrir því að
þetta getur breyst á einum sólarhring
í hreinlega lokun.
Sárt að geta ekki veitt þá þjónustu
sem ætlast er til af fyrirtæki
Þótt landinn sé neikvæður í tali, með
þungar áhyggjur af framhaldinu, eru
ótrúlega margir sem hugsa á gamla
háttinn, „Þetta reddast!“ Eitthvað er
það samt óásættanleg hugsun, það
verður að hugsa starfsemina upp á
nýtt.
Allir starfsmenn gætu hugsanlega
lent í sóttkví eða einangrun, sama
hvort starfsemin er einn eða fleiri á
sama stað. Í síðustu viku setti ég sjálf-
an mig í hálfgerða sóttkví vegna þess
að ég hafði verið nálægt smituðum
einstaklingi. Þar sem ég vinn almennt
einn flest mín störf þá setti ég upp
nýjar vinnunálgunarreglur þannig
að þegar aðstoðar var óskað varð að
forðast að koma nær mér en 3 metra
og að vinnu lokinni átti viðskipta-
vinurinn til öryggis að setja lófana
upp í loft á meðan ég kvaddi með
sótthreinsispritti. Mér tókst að vinna
öll verkin nema tvö, en þar var nálg-
un of mikil og a.m.k. tveggja manna
verk. Sennilega var það ég sem var
sárastur yfir því að geta ekki unnið
þau verk, fremur en þessir tveir sem
þurftu aðstoðina.
Er sólginn í jákvæðar og fyndnar
fréttir
Þrátt fyrir allt bölsýnistal reyni ég
alltaf að vera jákvæður, brosa og
hafa gaman af lífinu, rétt eins og
Magnús Hlynur fréttamaður, sem er
sí og æ að redda fréttatíma Stöðvar
2 með jákvæðum og skemmtilegum
fréttum. Eitt að lokum; það vakti
athygli mína á gamlársdag að mest
lesna fréttin á mbl.-fréttavefnum
var um mynd sem hafði birst í
Morgunblaðinu sumarið 2013 sem
leiddi til hjónabands. Þarna var frétt
fyrir mig, jákvæð og skemmtileg,
sem bar fyrirsögnina; „Mynd í
Mogga leiddi til hjónabands.“
RAFGEYMAR
Græjurnar þurfa að komast í gang!
Rafgeymar í allar gerðir farartækja
Sendum um land allt
NÝTT: Vefverslun www.skorri.is
Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • 577-1515 • skorri.is
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Varahlu�r i VOLVO
Vinnutæki
Þaulreynd hús við Íslenskar aðstæður
Z STÁLGRINDARHÚS
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
571-3535
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Of mikið af neikvæðum fréttum
Munið svo bara, kæru vinir, að án landbúnaðar væruð þið alltaf hungruð, nakin og edrú.
UPP-
SPRETTUR NÖLDUR GÓL BJÁNAST KK NAFN MISSIR
DEYFAST SKIPAST
STRENGUR SÁRAR
HRJÓSTUR
BLÍNA
GÆLU-
NAFN
ÖSKRAR
GAS
STOÐVIRKI
AFRAKSTUR
SKRÖLTA
TVEIR EINS
ETJA
ÞRÖNGSÝN
HÓTARENDUR-
TEKNING
TVEIR EINS
SKRÆKIR
NÓTA
SKYNFÆRA
MEGNA
Í RÖÐ
HÁTTUR
GARÐI
GERÐ
SIGTA
SPEKI
ATORKA
HINDRA
SKVETTA
GALGOPI
ÚT
ATBURÐA
ÞOLDITVEIR
EINS
GAPA
RINGUL-
REIÐ
KASTA
SKIPULAG
FARFA
ROMSA
AFGANGUR
SNJÁLDUR
UNDIR-
HEIMAR
TENGJA
PLANTA
LETUR-
TÁKN
TVEIR EINS
TULDUR
JURTA
ILL
Í RÖÐ
KLINK
TVEIR EINS
ÞRÁ-
BEIÐNI
ÚTLISTUN
FRÆGJA
STEIN-
VEGGURBUSL
MÆLING
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
166