Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 65
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 65
Hekluð húfa fyrir börn úr DROPS
Wish. Stykkið er heklað með
stuðlakrókum og hálfum stuðlum.
DROPS Design: Mynstur wi-002-bn
Stærðir: 2 (3/5) 6/9 (10/12) ára
Höfuðmál: 48/50 (50/52) 52/54 (54/56) cm
Garn: DROPS WISH (fæst í Handverkskúnst)
- 100 (100) 100 (100) g litur á mynd: 02, hvít þoka
Heklunál: nr 6.
Heklfesta: 12 hálfstuðlar á breidd og 9 umferðir á
hæðina = 10x10 cm
Heklleiðbeiningar fyrir loftlykkju: Ef þú heklar
yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með
að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og
breiddin á einum hálfstuðuli (hst).
Heklleiðbeiningar: Í byrjun á hverri umferð með
hálfstuðli, heklið 2 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta
hálfstuðul þ.e.a.s. hoppið yfir 1. hálfstuðulinn /
loftlykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1
keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð. Þegar
heklað er eftir mynsturteikningu A.1 er fyrstu lykkju
skipt út í fyrstu endurtekningu alveg eins.
Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1.
HÚFA – stutt útskýring á stykki:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Kanturinn
neðst á húfu er heklaður eftir mynsturteikningu.
hst = hálfstuðull
HÚFA: Með heklunál nr 6 og DROPS Wish. Heklið
5 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1
keðjulykkju í 1. loftlykkju. Sjá heklleiðbeiningar fyrir
loftlykkju og heklleiðbeiningar hér að ofan.
Umferð 1: Heklið 8 hálfstuðla (hst) um hringinn.
Umferð 2: Heklið 2 hst í hvern hst umferðina
hringinn = 16 hst.
Umferð 3: Heklið 1 hst í fyrsta hst, *2 hst í næsta hst,
1 hst í næsta hst*, heklið frá *-* hringinn og endið
með 2 hst í síðasta hst = 24 hst.
Umferð 4: Heklið * 1 hst í hvorn af fyrstu/næstu 2
hst, 2 hst í næsta hst*, heklið frá *-* hringinn og
endið með 2 hst í síðasta hst = 32 hst.
Umferð 5: Heklið *1 hst í hvern og einn af fyrstu/
næstu 3 hst, 2 hst í næsta hst*, heklið frá *-* hringinn
og endið með 2 hst í síðasta hst = 40 hst.
Umferð 6: Heklið *1 hst í hvern og einn af fyrstu/
næstu 4 hst, 2 hst í næsta hst*, heklið frá *-* hringinn
og endið með 2 hst í síðasta hst = 48 hst.
Aukið síðan út mismunandi eftir stærðum þannig:
Stærðir: 2 og (3/5) ára: Umferð 7: Heklið 1 hst í
hvern hst. JAFNFRAMT eru auknir út jafnt yfir 4 (8)
hst í umferð = 52 (56) hst.
Stærðir: 6/9 og (10/12) ára: Umferð 7: Heklið 1 hst
í hvern og einn af fyrstu 3 (2) hst *2 hst í næsta hst,
1 hst í hvern og einn af 3 (2) næstu hst*, heklið frá
*-* hringinn og endið með 2 hst í síðasta hst = 60
(64) hst.
Allar stærðir: Þegar allar útaukningar hafa verið
gerðar til loka í öllum stærðum eru 52 (56) 60 (64)
hst í umferð. Heklið hringinn með hálfstuðlum þar
til stykkið mælist 13 (14) 15 (16) cm frá toppi á húfu
(það eru eftir 6 cm til loka). Heklið nú eftir mynstur-
teikningu A.1 hringinn (= 13 (14) 15 (16) mynstu-
reiningar með 4 lykkjum). Heklið mynsturteikningu
A.1 þar til húfan mælist 19 (20) 21 (22) cm frá toppi
á húfu. Klippið þráðinn og festið.
Heklkveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is
Húfan Gríptu tunglið
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
7 6 3
5 7 4 3 2
3 6 8 9 5
9 2 7
4 2 8 1
3 6 4
8 1 9 5 7
6 3 1 2 8
4 8 2
Þyngst
5 8 6
4 8 9 3 5 1
3 1 6
6 8
9 2
3 5
2 9
5 4 2 9 7 3
4 7 1
6 4 8
3 9
7 4
8 3 7 5
1 2 6 9
4 7 9 6
5 3
1 9
2 6 5
6 3
8 7
7 5 1 9
5 1
4 7 3
1 4
9 2 6 8
8 9
3 6
Ferðalag um Vestfirði
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Kristleifur Óli er fimm ára og
hann heldur upp á Stuðmenn.
Nafn: Kristleifur Óli Kristleifsson.
Aldur: 5 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Sturlu, Reykjum 3.
Skóli: Hnoðraból.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Perla.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Krókódíll, ljón og risaeðla.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur og
ís og súkkulaði.
Uppáhaldshljómsveit: Stuðmenn
(Úfó og Sigurjón digri).
Uppáhaldskvikmynd: Sigla
Himinfley og Löggulíf.
Fyrsta minning þín? Þegar við
fórum í ferðalag á Vestfirði síðasta
sumar.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég er alltaf að æfa mig að
spila á hljóðfæri með pabba mínum.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Vinnumaður og gröfu-
maður.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Labbaði upp síðustu
brekkuna á Strút (fjall í Kalmanstungu
hjá afa).
Gerir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Smíða hús, stofna banka,
grænmetisbúð og nammibúð. Byrja
í skóla í haust.
Næst » Kristleifur skorar á Árna
Viggó að svara næst.
Smáauglýsingar 56-30-300