Morgunblaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2022
Skipulagt af: Opinbert vörustjórnunarfyrirtæki:
Opinbert íslenskt vikublað:
&Awards
13th
IN PERSON l ONLINE
2
0
2
28.
10.
til 2022
Smáranum
Kópavogi
Íslandi
júní
9=?==;64:2+
.'9; B'+#')= 16; B36&2,'8B@<0+6; (33'" @6,
><BB '; B/)'? 7<6+B%34' <;' B@0"34'
B/)6)82)' -!<9B7$6B
*5+6A +44 1329 825335
<;' )<@:')86;A )B3@<)64:2+#)2
Fjölmiðill sem við eigum samstarf við:
Við þökkumöllum
2!B4B50"@&&8> 3.>)>
,3>8"+8$58B5) 210*B)B- @-
+$%&&0" 1)$ 8* 7('*8 A,
/4$&@"B8 , 2!B)B-0B8
Fé hefur fækkað mest á Austurlandi
síðustu fimm ár, eða um 29 þúsund
fjár sem svarar til 39%. Vestfirska
sauðfjárræktin kemur skammt á eft-
ir þeirri austfirsku með 34% sam-
drátt. Fátt fé er á Suðurnesjum og
höfuðborgarsvæðinu en því hefur
einnig fækkað, eða um rúm 30%.
Norðurland vestra er langfjárflesta
svæðið og þar hefur aðeins orðið
7,5% samdráttur. Einnig er hlut-
fallslega lítill samdráttur á Suður-
landi, eða rúm 5%.
Fjöldi sauðfjár 2016-2021 og þróun eftir landshlutum
Heildarfjöldi á landinu öllu 2016-2021, þúsundir sauðfjár
Þróun fjölda eftir landshlutum (þúsundir sauðfjár) og breyting frá 2016 til 2021 (%)
Skipting eftir landshlutum árið 2021
500
400
300
200
100
0
Heimild: Hagstofa Íslands
2016 2017 2018 2019 2020 2021
473 459
432 416 401 385
Höfuðborgar-
svæði og Suðurnes 1%
Vesturland 17%
Vestfirðir 8%
Norðurland vestra 27%
Norðurland eystra 16%
Austurland 12%
Suðurland 19%
6
4
2
0
'16 '17 '18 '19 '20 '21
Höfuðborgarsvæði
og Suðurnes
2,4
-31%
100
80
60
40
'16 '17 '18 '19 '20 '21
Norðurland eystra
62,6
-19%
100
80
60
40
'16 '17 '18 '19 '20 '21
Vesturland
66,6
50
40
30
20
'16 '17 '18 '19 '20 '21
Vestfirðir
29,5
100
80
60
40
'16 '17 '18 '19 '20 '21
Suðurland
74,0
120
110
100
90
'16 '17 '18 '19 '20 '21
Norðurland vestra
103,3
100
70
40
10
'16 '17 '18 '19 '20 '21
Austurland
46,8
-39%
-18%
-5,1%
-34% -7,5%
Fækkun um 88 þúsund
eða 19% frá 2016 til 2021
Alls
385
þúsund
Stöðug fækkun fjár í landinu
- Fækkun í öllum landshlutum en mest á Austurlandi
Þróunin í öðrum landshlutum er
nálægt landsmeðaltali.
Í landinu eru nú liðlega 385 þús-
und fjár en hér voru settar á 473
þúsund kindur haustið 2016, sam-
kvæmt upplýsingum Hagstofu Ís-
lands. Samkvæmt því fækkaði fé í
landinu í heild um 88 þúsund frá
árinu 2016 til ársloka 2021. Svarar
það til 19% samdráttar.
Ásetningstölur frá síðasta hausti
gefa vísbendingar um áframhald-
andi samdrátt í ár. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Sauðfé Slæmar markaðsaðstæður
kindakjöts leiddu til fækkunar fjár.
Samkvæmt nýrri farþegaspá Isavia
er gert ráð fyrir að farþegar sem
fara um Keflavíkurflugvöll á árinu
verði rétt rúmlega 5,7 milljónir, sem
er um 79% af þeim fjölda sem fór
um völlinn árið 2019 og 162% fleiri
farþegar en fóru um hann í fyrra.
Tvö flugfélög bjóða nú upp á
tengiflug milli Evrópu og Norður-
Ameríku um Keflavíkurflugvöll.
Auk Icelandair hóf Play flug vestur
um haf í apríl. Farþegaspáin gerir
ráð fyrir að tengifarþegar verði
tæplega 1,5 milljónir á þessu ári en
þeir voru rétt rúmar 2 milljónir
2019 og 350 þúsund í fyrra.
Haft er eftir Grétari Má Garðars-
syni, forstöðumanni flugfélaga og
leiðaþróunar hjá Isavia, í tilkynn-
ingu að endurheimt farþega á flug-
vellinum sé hraðari en áður var bú-
ist við. Samkvæmt farþegaspá sem
gerð var í byrjun febrúar var útlit
fyrir að heildarfjöldi farþega um
Keflavíkurflugvöll yrði tæpar 4,6
milljónir en nú hefur sú tala hækk-
að um ríflega eina milljón.
24 flugfélög
Flugfélögin sem fljúga til og frá
Keflavíkurflugvelli í sumar verða 24
talsins en voru 25 sumarið 2019. Þá
eru áfangastaðirnir nú í sumar 75
en voru 80 sumarmánuðina 2019.
Grétar segir í tilkynningunni að
Isavia geri ráð fyrir að fjöldi ferða-
manna á Íslandi í ár verði á bilinu
1,4-1,5 milljónir. Fyrri forsendur
gerðu ráð fyrir 1,2 milljónum far-
þega.
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamenn Farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll fjölgar hratt.
Spá nú 5,7 milljón-
um farþega á árinu
- Umsvif á Keflavíkurflugvelli aukast