Morgunblaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 43
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
Góða helgi!
Glæsileg undirföt frá
Vefverslun
selena.is
UMRÆÐAN 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2022
Samgöngumál eru
flestum borgarbúum
afar hugleikin þar sem
góðar samgöngur eru
lykillinn að því að kom-
ast farsællega um í um-
hverfi sínu án erfiðis.
Blindir og sjónskertir
eins og aðrir eru þar
engin undantekning.
Sá hópur er líka hluti af
samfélaginu og þarf að
komast um það eins og aðrir á degi
hverjum. En ansi illa gengur mér oft
að komast um í litlu fallegu höfuð-
borginni minni, samanborið við höf-
uðborgirnar á Norðurlöndunum og
víðar, en ég bý ekki þar. Það er þann-
ig í öllum höfuðborgum Norður-
landanna, Bretlands, Spánar og víð-
ar þar sem ég hef farið um
undanfarin ár upplifi ég mig mjög
öruggan í umferðinni og daglegur
pirringur í lágmarki fyrir vikið.
Ástæðan er einföld, það eru hljóð-
merki við hverja einustu gangbraut í
þessum borgum, en með hljóðmerk-
inu getur maður virkjað umferð-
arljósin, stöðvað umferðina til að
komast yfir götuna og um leið aukið
allt öryggi sitt við að komast leiðar
sinnar.
Í Reykjavík heyrir það frekar til
undantekningar ef hljóðmerkjabox
eru við gangbrautir. Þótt örlítið hafi
hljóðmerkjunum fjölgað í einstaka
póstnúmerum undanfarin ár. Þá þarf
algera hugarfarsbreytingu og átak í
að fjölga þeim svo auðveldara og
öruggara verði að komast um borg-
ina fyrir börn, aldraða, blinda og
sjónskerta og bara alla. Ég hef áður
fjallað um þetta bráðbrýna öryggis-
mál, og auk þess talað
við nokkra núverandi
borgarfulltrúa og yf-
irmenn framkvæmda í
samgöngumálum í
borginni. Árangur er
enn ósýnilegur, sem er
sorglegt hvernig sem á
það er litið. Svo dæmi
séu tekin af nokkrum
stórgötum borgarinnar
eru t.a.m. engin hljóð-
merki í öllu Borgar-
túninu, stórum hluta
Geirsgötu og Sæbraut-
ar, Laugavegi, Hverfisgötu, svo fátt
eitt sé talið, í raun út um alla borg.
Ekkert er síðan hljóðmerkið í hliðar-
götum borgarinnar. Það er sko ekk-
ert grín að komast yfir þessar götur
á álagstíma, og það þarf ákveðið
magn af hugrekki í bland við slatta af
kæruleysi að treysta á að hver bíl-
stjóri sé með fulla athygli við akst-
urinn, og það er oft fjarri lagi.
Hljóðmerkjabox við hverja
gangbraut
Hvernig fer ég síðan yfir götu sem
lögblindur maður í litlu höfuðborg-
inni minni, ef ekkert er hljóðmerki
við gangbrautina sem ég fann? Það
hefur líka oft tekið ansi hraustlega á
athyglisgáfu mína og þolinmæði að
finna gangbraut, því það er ekki
sjálfgefið að hún sé í götunni sem ég
er að reyna komast yfir. Í fyrsta lagi
líður mér eins og ég sé fimmta stigs
undirmálsborgarbúi, skítstressaður
með ljón í hnakkanum, finn til ótta,
sem hleypir upp blóðþrýstingi, púls
og aðrir streitufaktorar fara á stjá af
öllu afli. Ég nota því blindrastaf
minn, reyni að hafa hann í augnhæð
bílstjórana, treysti á Guð og einka-
son hans og að sími bílstjórans sé
hleðslulaus. Ég grátbið ykkur því,
verðandi borgarfulltrúar, að leggja
ykkur öll fram um að ímynda ykkur
að maður þurfi að setja sig í þessar
ömurlegu aðstæður á degi hverjum í
litlu höfuðborginni okkar. Og vittu til
frambjóðandi góður, þetta hefur fjári
oft staði ansi tæpt, en á þeim ögur-
stundum hafa þeir himnafeðgar stað-
ið þétt við hlið mér og gripið inn í lífs-
hættulegar aðstæður. Ég hugsa að
hægt sé að kaupa allt að 10 hljóð-
merkjabox fyrir andvirði einmana
danska puntstrásins sem hríslast
fyrir utan braggann fræga í Naut-
hólsvík, svo ódýr eru þau.
Hljóðmerki við hverja gangbraut
er ekki einungis fyrir sjóndapran
borgarbúa eins og mig heldur alla
gangandi vegfarendur og þetta er
ekki einhver framandi lúxus, þetta er
krafa um lágmarksöryggi gangandi
vegfarenda. Því miður höfum við allt
of mörg sorgleg dæmi þar sem keyrt
hefur verið á gangandi vegfarendur
og bæði banaslys og alvarleg slys
hlotist af og of mörg eru þau dæmi
nýleg. Kostnaður við að hljóð-
merkjavæða umferðaþyngstu póst-
númerin í borginni ætti að vera
óverulegur og þar hjálpar mikið til
hversu fáar gangbrautir eru í sum-
um helstu götum borgarinnar. Sem
dæmi í umræddu Borgartúni eru
einungis um þrjár gangbrautir og í
öllum Síðumúlanum og Ármúlanum
eru þær einungis tvær í hvorri götu.
Þessar götur eru ekki upp í afdal,
þær eru með helstu umferðar-
vegspottum innan borgarmarkanna.
Það er hinn mesti sómi hverrar
borgar að hafa gangbrautir sýni-
legar og hljóðmerki við þær alveg
eins og bílar sem stoppa við gatna-
mót þá eiga þeir að stoppa líka við
gangbrautarljós sem stýrt er af
þeim sem yfir hana fara. Þetta er
ekki flókið, þetta er frekar einfalt
fyrir alla að skilja.
Bjóðumst til að setja upp
hljóðmerkjabox sjálfir
Stjórnmálamenn hafa æ oftar til-
hneigingu til að rífast um það sem
minnstu máli skiptir þannig að um
þetta mál þarf enginn að rífast. Það
þarf að ganga í málið og hugsa eins
og Lína Langsokkur, gera það með
sóma. Það er tilgangslaust að tala
um Sundabraut, borgarlínu eða
hvernig á að fara út með rusluð í
borginni ef gangandi vegfarendur,
blindir og sjónskertir, sem keyra
ekki um á sínum einkabíl og aksturs-
þjónustan er stundum íþyngjandi og
seinvirk og kostar peninga. Þess
vegna er það gríðarleg samgöngubót
fyrir okkur sjónskerta og blinda
fólkið að komast á öruggan og af-
slappandi hátt, gangandi leiðar
okkar.
Þar sem aðgerðir þola enga bið
bjóðumst við nokkrir félagsmenn
Blindrafélagsins til að setja upp 150
hljóðmerki og mála 90 gangbrautir
þar sem þörfin er hvað brýnust, get-
um byrjað strax. Launakröfur eru
hálf borgarfulltrúalaun á fram-
kvæmdatíma, sem við áætlum sjö
vikur og heitur matur í hádeginu.
Hin krafan er að við þurfum stiga og
pallbíl frá borginni og bílstjóra til að
koma okkur á staðinn, þar sem eng-
inn okkar keyrir bíl vegna sjónleysis.
Rafhlaupahjól eins og
hráviði á göngustígum
Sagt er að sjónin búi í hugsuninni,
það er rétt, og ekki síður býr hún í
fótum blinds manns. Við blinda og
sjóndapra fólkið höfum svo sann-
arlega reynt það á eigin fótum und-
anfarið hvað það er að sjá ekki niður
fyrir sig. Því ítrekað erum við að
slasa okkur á höndum, fótum og
höfði þar sem úti um alla borg og
hvar sem við förum um eru raf-
hlaupahjól liggjandi í gangvegi okk-
ar eins og hvert annað járnarusl,
þetta er hinn versti borgarósómi.
Ofdekur elur af sér skilningsleysi
sagði við mig sænskur háaldraður
vinur minn nýlega, alveg var ég hon-
um sammála. Hann sagði þetta af
ástæðu, þar sem hann tjáði mér að
þeir sem leigja sér rafhlaupahjól í
Svíþjóð hætta ekki að greiða fyrir
notkun þess fyrr en leigutaki er bú-
inn að skila því þannig af sér að hjól-
ið sé ekki fyrir neinum og sóma-
samlega frá því gengið. Þeir kunnu
ekkert með það að fara áður, sagði
hann. Í Danmörku er búið að banna
þessi rafhlaupahjól. Aðrar þjóðir eru
búnar að takmarka notkun þeirra
hressilega, ekki síst út af glæfra-
akstri leigutaka og slysahættu. Hér-
lendis er þessi stjórnlausa hjóla
ómenning fyrst og fremst vanvirðing
við heilbrigðisstarfsfólk, sjóndapra
og blinda. Fyrirtækið, þ.e. leigusali
hjólanna, getur vart annað en farið
fljótt „hjálmlaust“ á höfuðið miðað
við hvernig leigutakar ganga um eig-
ur þess.
Hvað ætlar þú að gera, verðandi
borgarfulltrúi, í framangreindum
samgöngumálum, náir þú kjöri?
Fyrir hönd nokkurra einstaklinga
sem eru áhugasamir félagsmenn í
Blindrafélaginu.
Eftir Svavar
Guðmundsson » Þar sem aðgerðir
þola enga bið bjóð-
umst við nokkrir fé-
lagsmenn Blindra-
félagsins til að setja upp
150 hljóðmerki og mála
90 gangbrautir þar sem
þörfin er hvað brýnust,
getum byrjað strax.
Svavar Guðmundsson
Höfundur er sjávarútvegsfræðingur.
Samgöngur fyrir alla