Morgunblaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2022
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Íslensku systurnar Brynja Mary og
Sara Victoria Dagmar Sverrisdætur
eru bestu vinkonur þrátt fyrir að vera
eins og svart og hvítt í persónuleika
en saman mynda þær systradúóið
Eyjaa. Þrátt fyrir ungan aldur eru
þær að gera það gott úti í heimi með
tónlist sinni sem hefur trónað of-
arlega á erlendum listum en dúóið er
á samning hjá tónlistarrisanum Uni-
versal og stefna systurnar enn hærra.
Þær gáfu út glænýtt lag á dögunum,
lagið Big Feelings, sem hefur fengið
frábærar viðtökur.
Systurnar eru sem stendur stadd-
ar úti í borg englanna í Bandaríkj-
unum í einu þekktasta dansstúdói
heims þar sem þær eru að klára dans-
nám og vinna tónlist með mismun-
andi pródúserum í Bandaríkjunum.
Halda að þær séu tvíburar
Brynja Mary er eldri systirin, 18
ára gömul, en margir kannast við tón-
listarkonuna ungu eftir hún keppti
með eigið lag í Söngvakeppninni árið
2020, nýorðin 16 ára gömul, með lagið
In Your Eyes. Sara Victoria, yngri
systirin, er sjálf 16 ára gömul í dag og
gefur systur sinni ekkert eftir hvað
varðar tónlistarhæfileika en stúlk-
urnar segjast, í samtali við Morg-
unblaðið og K100, vinna mjög vel
saman þrátt fyrir að vera afar ólíkar,
bæði í stíl og persónuleika. Báðar
hafa þær þó brennandi áhuga á tón-
list og dansi og hafa sama markmið
um að ná langt í tónlistinni.
„Okkar samband einkennist af
miklum systrakærleik. Við erum
rosalega samrýndar og bestu vinkon-
ur og höfum alltaf verið. Margir hafa
haldið að við séum tvíburar,“ segja
systurnar.
„Við höfum alltaf haft tónlistina í
okkur og það var alltaf markmið okk-
ar og ósk að ná langt í henni. Við byrj-
uðum að syngja áður enn við gátum
talað,“ lýsa systurnar sem hafa verið í
tónlistarskóla frá þriggja ára aldri.
Þær eru sammála um það að þeim líði
best á sviði.
Systurnar eru búsettar í Kaup-
mannahöfn í Danmörku, þar sem þær
hafa búið stærstan hluta ævi sinnar
en þær hafa þó búið samtals í sex
löndum og tala sex tungumál. Ís-
lenskuna tala þær þó alltaf heima
með fjölskyldunni.
Dansa í stúdíói stjarnanna
Hver dagur í lífi systranna er vel
skipulagður en stelpurnar eru báðar í
alþjóðlegu dansnámi og dansa alla
daga frá níu á morgnanna til hálf-
fjögur en þess á milli einblína þær al-
gjörlega á tónlistina og fara oft í viku
í stúdíó eftir dans til að syngja og
semja tónlist. Eins og kom fram eru
þær þó staddar í Los Angeles sem
stendur þar sem þær dvelja í þrjá
mánuði til að ljúka dansnámi sínu.
Það gera þær meðal annars í hinu
þekkta „Millennium“-
dansstúdíói sem hefur
verið kallað: Stúdíóið
þar sem stjörnur fæð-
ast – enda hafa stór-
stjörnur eins og Justin
Timberlake, Jennifer Lopez,
Prince, Britney Spears og Ariana
Grande, ásamt fjölda annarra, dansað
í stúdíóinu og myndir af stjörnum
prýða veggi þess.
16 vikur á topp 10
Systurnar hafa gefið út fjögur lög
frá því að þær skrifuðu undir samn-
ing hjá Universal í janúar 2021 en
fyrsta lagið þeirra Don’t Forget abo-
ut Me, var í yfir sextán vikur á topp
10 á vinsældalista í Danmörku í fyrra.
Svipaða sögu má segja með annað lag
systranna The Wrecking Crew sem
var einnig á topp
10 lista úti í
Danmörku.
Vinsældir
Eyjaa eru þó
einnig að
aukast hér
á landi en
þriðja
lag þeirra Ultraviolet, var til að
mynda í þriðja sæti á vinsældarlista
Rásar 2 fyrir nokkrum vikum. Nýj-
asta lagið Big Feelings er einnig að fá
frábærar viðtökur en systurnar segj-
ast hafa heillast af því um leið og
þær heyrðu það.
„Eyjaa Girl
Power“
„Við viss-
um að við
þurftum
að taka
það upp og
gefa það út.
Þannig að
við fórum í
stúdíóið og
sungum
það með
röddun,
eins og
einkennir
tónlistina
okkar,
gerðum
það að
okkar og
fylltum það með
„Eyjaa Girl Power,“ sögðu þær
Brynja og Sara en lagið fjallar
meðal annars um ástríðuna fyrir því
sem maður vill virkilega gera í lífinu.
Stefna á Ísland á næstunni
Brynja og Sara vinna nú að vænt-
anlegri EP-plötu sem þær stefna að
því að gefa út eftir sumarið en í kjöl-
farið ætla þær að halda nokkra tón-
leika. Þá stefna þær á að koma til Ís-
lands á næstunni.
„Planið er koma til Íslands vonandi
sem fyrst með Universal og teyminu
okkar að taka upp tónlistar-
myndbönd – og jafnvel halda tónleika
og fá að syngja lögin okkar fyrir Ís-
lendinga svo að þjóðin fái að kynnast
okkur nánar. Við hlökkum mikið til,“
segja systurnar sem segja að tónlist
þeirra séu undir miklum áhrifum frá
Íslandi.
„Við erum með þetta „Girl Power“
frá Íslandi og erum með þessa nor-
rænu nostalgíu í tónlistinni okkar.
Við gefumst ekki svo auðveldlega upp
eins og Íslendingum er lagið,“ segja
systurnar sem völdu einnig nafn
sveitarinnar, Eyjaa, út frá eyjunni Ís-
land, með hjálp foreldra sinna.
„Svo líður okkur stundum eins og
við séum á lítilli eyju þegar við erum
saman í stúdíói eða erum að gera
hluti saman, svona samrýndar eins og
við erum,“ segja þær.
Allt er mögulegt
Aðspurðar vilja Brynja og Sara
ráðleggja öðru ungu upprennandi
tónlistarfólki að gefast aldrei upp,
sama hversu erfiðar og ómögulegar
aðstæðurnar virðast vera.
„Allt er mögulegt ef þú bara vilt og
vinnur hart að því að láta drauma
þína rætast. Fyrst og fremst þarftu
að trúa á sjálfan þig, það er númer
eitt, alveg sama hvað allir aðrir
segja,“ segja systurnar að lokum.
Íslenskar systur á hraðri uppleið
Brynja Mary, 18 ára, og
Sara Victoria, 16 ára,
eru samrýndar systur
og stefna hátt en sveit
þeirra, Eyjaa, er á hraðri
uppleið úti í hinum
stóra heimi.
Vinkonur Brynja og
Sara hafa alltaf verið
bestu vinkonur.
Systur Brynja og
Sara hafa alltaf
stefnt hátt í tón-
listarbransanum.
Universal Systurnar
eru á samningi hjá
plöturisanum Universal.
766 5555 gisli@s4s.isFyrirtækjaþjónusta
6-10 metra stangir, fánar og veifur í úrvali
Fánastangir
fyrir einstaklinga og fyrirtæki