Morgunblaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2022
Humdakin er stofnað og í eigu
Camillu Schram, sem hefur ára-
langan bakgrunn í ræstingum. Hún
saknaði þess að finna ekki vörur á
markaði sem voru sjálfbærar og að
sama tíma ofnæmisvænar – sem nú
sex árum síðar hefur skilað sér í
einum vinsælustu hreingerning-
arvörum síðari ára, þar á meðal hér
á landi.
Náttúruleg hráefni – s
alvía og rabarbari
Það mætti segja að Humdakin sé
fyrirmynd nútímaþrifa og hug-
myndin á bak við vörumerkið var að
hanna hreinsivörur sem fjarlægja
bakteríur og óhreinindi, en á sama
tíma er fagurfræðin allsráðandi.
Camilla hafði í mörg ár starfað
við ræstingar og leitaðist eftir að
finna hreingerningarvörur sem
væru ekki fullar af skaðlegum efn-
um og ilmum, sem reyndist erfitt að
finna og því fór hún sjálf út í það
verkefni að framleiða vörur sem
uppfylla þau atriði sem hún sóttist
eftir. Hjá Humdakin finnur þú
hreinsiefni fyrir eldhúsið, baðher-
bergið, handklæði og annan textíl
sem og vinsælu sápuna þeirra „Anti
smell“, sem er fullkomin við eldhús-
vaskinn – því hún tekur alla lykt af
höndum eftir sterkan mat eins og
lauk, fisk og annað sem við hand-
leikum í eldhúsinu daglega. Eitt-
hvað sem ætti að vera til á hverju
heimili ef þið spyrjið okkur á mat-
arvef Morgunblaðsins.
„Humdakin býður upp á alhliða
úrval fyrir fagurkera sem vilja sjá
árangur í þrifum en á sama tíma
nota vörur þar sem virkni og fag-
urfræði haldast í hendur. Vörurnar
innihalda náttúruleg og hrein hrá-
efni sem sótt eru í skóga og strand-
ir á Norðurlöndunum – hráefni eins
og salvíu, rabarbara, rautt þang og
hafþyrni, sem gefa einstakan ilm og
eru skaðlaus húðinni og nátt-
úrunni,“ segir Camilla.
„Humdakin er hreingerningar-
konsept, við vorum þau fyrstu til að
útfæra þrif í eldhús og bað á nú-
tímalegan og smartan máta. Þar
sem hreinsivörurnar koma í fal-
legum umbúðum og auðvelt er að
stilla þeim upp á eldhúsborði eða
inni á baði og fullkomna þar af leið-
andi heildarútlitið. Við viljum ekki
að hreinsivörurnar liggi í felum,
heldur standi upp á borðum svo
auðvelt sé að grípa til þeirra,“ segir
Camilla og bætir við að það séu
margir sem leggi mikið upp úr því
að eiga falleg heimili, þar sem
hönnunarvörur prýða rýmin – en
það eru þvi miður ekki svo margir
sem eru jafn metnaðarfullir í að
hafa hreint í kringum sig. „Og það
var það sem fékk mig til að starta
þessari hugmynd – að hanna
hreinsivörur sem fólk væri til í að
láta standa uppi á borðum,“ segir
Camilla.
Eftirspurn eftir slíkum
vörum er til staðar
Humdakin var stofnað árið 2016
og það eru ekki meira en þrjú ár
síðan hún réð inn sinn fyrsta starfs-
mann – í dag starfa um tuttugu
manns hjá fyrirtækinu sem á höf-
uðstöðvar sínar í Árósum og skrif-
stofur víðar um heim. Síðustu tvö
árin hefur Humdakin tvöfaldað lag-
erplássið sitt með aukinni sölu og
vöruúrvali, og því óhætt að fullyrða
að eftirspurnin eftir slíkum vörum
er til staðar.
„Fyrir þremur árum síðan var
það ég sem keyrði út vörurnar í
verslanir, og stóð fyrir allri sölu og
öðru sem þurfti að sinna í fyrir-
tækinu – svo það er óhætt að segja
að Humdakin hefur stækkað hratt á
stuttum tíma. Við höfum verið
starfandi í fimm ár og ef við höldum
áfram á sömu braut næstu fimm ár-
in, þá áfram með sömu vörur og í
nýjum útfærslum, þá er það draum-
ur að verða hluti af danskri hönnun
– klassísk og vönduð,“ segir Camilla
í samtali.
Í dag má finna Humdakin í 49
löndum, víðs vegar um heiminn og
þar á meðal hér á Íslandi. „Dan-
mörk er einn af okkar stærstu
mörkuðum, en Svíþjóð, Noregur og
Þýskaland eru þar einnig á lista og
Þýskaland mun brátt taka fram úr
Danmörku ef marka má nýjustu
tölur. Það eru í kringum 500 versl-
anir sem selja vörurnar okkar. Og
allar verslanirnar selja Humdakin
sem vörulínu, það er að segja, þú
finnur alltaf fleiri en eina vöruteg-
und í verslunum sem selja Hum-
dakin. Margir hafa verið með okkur
frá upphafi, og því vaxið saman í
gegnum árin sem okkur þykir mjög
vænt um,“ segir Camilla.
Frumkvöðull á sínu sviði
Camilla var rétt um 13 ára gömul
er hún stóð ábyrg fyrir eigin versl-
un, og hefur alla tíð vitað að hún
muni vera sjálfstætt starfandi í
framtíðinni. „Fjölskyldan mín er
nánast öll með sinn eigin rekstur.
Ég var 18 ára þegar ég stofnaði
mitt fyrsta fyrirtæki, hreingerning-
arfyrirtæki, og út frá því fæðist
Humdakin. Það er mjög krefjandi
að vera sjálfstætt starfandi, það
krefst aga og mikillar vinnu en er
þess virði þegar maður fær að
starfa við það sem maður brennur
fyrir,“ segir Camilla.
Fyrsta teikningin var
skissuð upp á pappír
Vöruþróunin og hönnunin hjá
Humdakin hefur alfarið verið í
höndunum á Camillu í gegnum árin,
en hún hefur nú fengið hönnuði til
liðs við sig og getur því áfram séð
um skapandi hlutann en kastað
boltanum áfram þegar þarf að þróa
vörurnar enn frekar. Hún er ekki
menntaður hönnuður og segir það
ómetanlegt að starfa nú með fag-
lærðu fólki á sínu sviði. Allra fyrsta
teikningin sem hún sendi til fram-
leiðanda á Indlandi var rissuð upp á
pappír, síðan tók hún mynd af
teikningunni með símanum og sendi
áfram í tölvupósti. Engar tölvu-
teikningar eins og þau vinna með í
dag – því einhvers staðar verður að
byrja.
„Við byrjuðum með 25 vörur til
sölu og í dag hlaupa þær yfir 300
talsins. Við erum að bjóða upp á
meira úrval í vörutegundum sem og
aðrar vörulínur sem eru að stækka.
Mikið af þeim vörum sem við byrj-
uðum með upphaflega, eru sölu-
hæstu vörurnar okkar í dag,“ segir
Camilla.
Komin inn í dönsku
konungsstofnunina
Camilla segist gjarnan vilja kom-
ast inn á stærri stofnanir eins og
spítala, hótel og veitingastaði. Þau
eru komin inn á nokkra staði, en
ekki í stóru magni eins og er – en
það kemur. Á síðasta ári rötuðu
fyrstu vörurnar þeirra í danska
konungshúsið sem þau eru afar
þakklát fyrir og setja Humdakin á
þann stall sem þau vilja vera á.
Bestu þrifráðin frá Camillu
Við getum ekki setið á okkur að
spyrja Camillu hvort það sé alltaf
hreint heima hjá henni? „Nei, alls
ekki. Ég er mjög góð í að þrífa, en
börnin taka sitt pláss og fá leyfi til
þess. Ég reyni að halda húsinu
hreinu eins vel og hægt er hverju
sinni, en ég er ekki óð með tuskuna
á lofti upp um alla veggi alla daga.
En það er eflaust meira hreint
heima hjá mér en hjá mörgum öðr-
um, því þetta er það sem ég elska
að gera. Ef það er allt of mikið
drasl heima, þá næ ég illa að halda
einbeitingu og verð að taka til. En
ég verð aldrei reið ef krakkarnir
teikna á gólfið eða álíka, það er allt
hluti af því að eiga börn og reka
heimili,“ segir Camilla.
Hvert er þitt besta ráð í þrifum?
„Við erum með Universal Cleaner
sem þú setur rétt um 5 ml af í
spreybrúsa og fyllir upp með vatni.
Í hverjum Cleaner nærðu um 200
áfyllingum og sparar þar af leiðandi
mikið af búðarkeyptum efnum í ótal
brúsum, sem er afar umhverfis-
vænt. Og þú getur notað hreinsiefn-
ið á allt! Gler, við, marmara og allt
annað sem þarf að þurrka af og
hreinsinn er að finna með ýmsum
ilmefnum sem hreinsa loftið,“ segir
Camilla í samtali.
Asíumarkaðurinn stækkar
Við spurðum Camillu út í fram-
tíðina sem er jú, alltaf óráðin en það
má dreyma stórt og hugsa fram í
tímann. „Við erum alltaf að verða
stærri í Asíu, í Kína og Japan og
þar vil ég stækka enn frekar. Við
erum að þróa nýja þrif vörulínu fyr-
ir asískan markað, því það er allt
önnur menning þar en hér. Til
dæmis er stelpunærfatnaður þveg-
inn í höndunum í Kína – því þarf að
vera sérstök blanda til að þvo allar
bakteríur úr fatnaðinum. Sama
gildir um karlmannssokka, þeir
þurfa sérstaka meðhöndlun. Það er
því gaman að fá þessa áskorun með
að þróa og hanna efni sem henta
fyrir markað eins og í Asíu,“ segir
Camilla og bætir við: „Eins erum
við að þróa hreinsiefni fyrir ávexti,
því þeir eru oftar en ekki með alls
kyns eitri og öðrum óhreinindum
sem við viljum ekki taka með í mat-
argerðina. Ef við tölum saman eftir
fimm ár, þá er ég nokkuð viss um
að geta fullyrt að við séum búin að
stækka um helming frá því sem við
erum í dag – þá vonandi með 1000
söluaðila í yfir 70 löndum,“ segir
Camilla og blaðamaður tekur við-
mælanda sinn á orðinu og segist
ætla heyra í henni eftir fimm ár til
að fara þá aftur yfir stöðuna.
Það eru spennandi tímar fram
undan hjá Humdakin og þá sér-
staklega í haust er þau kynna
stærstu vöruínu sína til þessa og þá
einnig fyrir jólin. Nýr upp-
þvottalögur, líkamsskrúbbur, bað-
bombur, baðkrem o.fl. – eða rétt
um 75 nýjar vörur. Fyrstu vörurnar
koma á markað í ágúst og við fylgj-
umst spennt með.
Humdakin – brautryðjandi í þrifum
Við hittum fyrir Camillu Schram, eiganda danska
fyrirtækisins Humdakin. Camilla var stödd hér á
landi og í heimsókn í versluninni Epal, ásamt fjöl-
skyldu sinni sem naut þess að eiga frí á nýjum og
spennandi slóðum í fyrsta sinn hér á eldfjallaeyjunni.
Sjálf er hún rétt 33 ára gömul með þrjú lítil börn og
hefur skotið Humdakin á stjörnuhimininn, hraðar en
mörg önnur fyrirtæki ná á svo stuttum tíma.
Frumkvöðull Camilla Schram,
stofnandi og eigandi Humdakin, var
einungis þrettán ára þegar hún
stofnaði hreingerningarfyrirtækið
en út frá því varð Humdakin til.
Uppáhald fagurkeranna Hug-
myndin á bak við vörumerkið var að
hanna hreinsivörur sem fjarlægja
bakteríur og óhreinindi, en á sama
tíma er fagurfræðin allsráðandi.
Umhverfisvænar vörur Allur textíll
er unninn úr endurunnum bómul
sem er bæði GOTS- og OEKE-TEX-
vottaður. En þess má geta að hönn-
unin er innblásin frá ömmu Camillu
og þeirri prjónatækni sem notuð
var á fimmta áratugnum.