Morgunblaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 72
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
20%
AFSLÁTTUR
SÓFADAGAR
* Afsláttur gildir af öllum sófum nema
Construct og sérpöntunum.
AF ÖLLUM
SÓFUM*
PASO DOBLE
U-sófi, vinstri eða hægri. Ljósgrátt áklæði.
Stærð: 386 x 258 x 80 cm.
447.992 kr. 559.990 kr.
Continuum – Place nefn-
ist sýning sem Ásdís
Spanó opnar í Gallerí
Gróttu á Seltjarnarnesi í
dag og stendur til 4. júní.
Um er að ræða 13. einka-
sýningu Ásdísar. Á sýn-
ingunni er sjónum beint
að óhlutbundinni skynjun
á tíma og rúmi. Mörk
þess óhlutbundna, arki-
tektúrs og áferðar eru
könnuð auk þess sem
formum úr menningar-
sögulegum kennileitum er teflt fram gegn tilvísunum í
söguleg listaverk. Verkin eru byggð upp með lögum af
þunnri málningu, útlínuteikningum, bleki, grafíti og út-
strokunum. Nýju lagi af málningu er bætt ofan á eldra,
stundum er það þurrkað út eða endurtekið yfir það sem
áður var. Verkin vísa í tíma sem líður á óræðum og
síbreytilegum stað og endurspeglar varðveislu og lof til
fortíðarinnar og menningarlega mikilvægra kennileita.
Ásdís Spanó sýnir í Gallerí Gróttu
FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 132. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Breiðablik, KA og Valur hafa ekki tapað í fyrstu fimm
umferðunum í efstu deild karla í knattspyrnu í upphafi
sumars. Öll unnu þau leiki sína í gær og hafa slitið sig
nokkuð frá öðrum liðum að svo stöddu. Breiðablik er á
toppnum með fullt hús stiga en Valur og KA eru tveim-
ur stigum á eftir. »60
Breiðablik, KA og Valur unnu og
hafa enn ekki tapað leik í deildinni
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sonja Sif Þórólfsdóttir
skrifar frá Tórínó
Kristín H. Kristjánsdóttir, fréttarit-
ari Félags áhugafólks um Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
(FÁSES), segir það hafa komið sér
þægilega á óvart
þegar Ísland
komst áfram í úr-
slit Eurovision-
söngvakeppn-
innar.
„Þegar Ar-
menía komst
áfram var ég al-
veg klár á því að
við færum ekki
áfram, því mér
fannst eins og þessi tvö lög myndu
útiloka hvort annað. En ég hef aldrei
verið eins glöð að hafa haft rangt fyr-
ir mér. Þetta var æðislegt,“ segir
Kristín í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins, sem líkt og Kristín
er staddur í steikjandi hitanum í Tór-
ínó á Ítalíu.
Hún segir áberandi hversu mörg
róleg lög fóru áfram á þriðjudags-
kvöldið. Moldóva og Noregur voru
með einu stuðlögin.
„Ég var óneitanlega hissa þegar
Litháen fór áfram. Ekki af því að lag-
ið væri eitthvað slæmt, heldur af því
að ég hélt að það myndi bara týnast,“
segir Kristín. Hún hefur haft það
náðugt í borginni undanfarna daga en
mikið líf er á meðal FÁSES-liða. Vel
á þriðja tug meðlima er komið hingað
út til að fylgjast með keppninni.
Ísland hækkar hjá veðbönkum
Lag Systranna ber titilinn Með
hækkandi sól og á titillinn svo sann-
arlega við um þessar mundir því sólin
er loksins farin að skína á föla húð Ís-
lendinga í borginni. Þá fer frægðarsól
Systranna einnig hækkandi eftir að
þær komust áfram. Sömuleiðis er Ís-
land á fleygiferð upp í veðbönkum, á
álíka miklum hraða og blaðamaður
ferðast um Tórínó á hlaupahjóli.
Íslandi er nú spáð 23. sæti í Euro-
vision en var áður spáð því 31. Það
gæti þó breyst eftir kvöldið í kvöld,
seinna undankvöld keppninnar. Þá
munu keppendur 18 landa flytja at-
riði sín á sviðinu í Pala Olimpico-
höllinni en aðeins tíu komast áfram í
úrslitin. Útsending hefst klukkan 19 í
kvöld og verður hægt að fylgjast með
beinni textalýsingu á mbl.is.
Alls munu keppendur frá 25 lönd-
um etja kappi á laugardaginn en eftir
blaðamannafund á þriðjudag kom í
ljós að Ísland verður á meðal seinni
helmings keppenda til að stíga á svið.
Konur í lykilstöðum
Í lykilstöðum í íslenska hópnum eru
konur; systurnar Sigríður, Elísabet
og Elín Eyþórsdætur eru þar fremst-
ar í flokki. Tónlistarkonan Lay Low er
höfundur lagsins, Ellen Loftsdóttir er
búningahönnuður, Maríanna Páls-
dóttir er förðunarfræðingur og Unnur
Elísabet Gunnarsdóttir leikstjóri.
Fjölmiðlamegin eru konur líka í að-
alhlutverki en hópnum fylgdu hvorki
fleiri né færri en sex fjölmiðlakonur
frá fjórum fjölmiðlum. Björg Magn-
úsdóttir er fyrir hönd RÚV, und-
irrituð fyrir mbl.is, K100 og Morg-
unblaðið. Frá Vísi eru þær Dóra Júlía
Agnarsdóttir og Sylvía Rut Sigfús-
dóttir og frá Fréttablaðinu Ingunn
Lára Kristjánsdóttir og Nína Richter.
AFP/Marco Bertorello
Systur Sigríður, Elín og Elísabet Eyþórsdætur flottar á sviðinu í Tórínó í undankeppninni í fyrrakvöld.
Hækkandi sól í Tórínó
- Þetta var æðislegt, segir einn fulltrúa FÁSES um Systur
Kristín H.
Kristjánsdóttir