Morgunblaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 2. M A Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 110. tölublað . 110. árgangur .
12.-15. maí
Sigraðu
innkaupin
HEFUR BEÐIÐ
FERÐARINNAR
TIL ÍSLANDS
SYSTUR
STEFNA
HÁTT
GÍFURLEG
STEMNING Í
SVEITARFÉLAGINU
Á HRAÐRI UPPLEIÐ 48 BESTA TINDASTÓLSLIÐIÐ 61ANDREA BOCELLI 62
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Sýslumannsembættin níu munu öll
sameinast í nýtt embætti sýslu-
manns, sem hafa mun yfirumsjón
með rekstri skrifstofanna um land
allt. Umdæmismörk þeirra verða af-
máð, en hið nýja embætti mun hafa
aðsetur á landsbyggðinni. Þeir sem
nú eru sýslumenn munu þá nefnast
„sýslumenn í héraði“.
Þessar breytingar eru fyrirhugað-
ar í nýju frumvarpi Jóns Gunnars-
sonar dómsmálaráðherra, sem hann
hyggst leggja fyrir Alþingi í haust.
Ráðist var í umfangsmiklar breyt-
ingar á embættunum árið 2015.
Spurður hvort hluti þeirra hafi ekki
gefist vel segir ráðherra að hjá emb-
ættunum finnist mörgum sem þeir
hafi misst fullstóra sneið af kökunni
þegar kemur að verkefnum. „Þess
vegna erum við með það til skoðunar
núna, innan lögreglunnar, hvaða
verkefni geta verið auðveldlega unn-
in á þessum sýslumannsskrifstofum.
Þannig að lögreglan geti einbeitt sér
að sinni kjarnastarfsemi, en sé ekki
upptekin af verkefnum sem hægt er
að vinna á þessum stjórnsýsluskrif-
stofum,“ segir Jón við Morgunblað-
ið. Ekki eru þó öll verkefni þess eðlis
að hægt sé að sinna þeim á landsvísu.
Embættið úti á landi
- Sýslumannsembætti verði sameinuð í eitt á landsbyggðinni
MSameinað embætti á … »6
Erlendir ferðamenn lögðu á ráðin í strætóskýli
fyrir utan tónlistarhúsið Hörpu í höfuðborginni
þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði
í gær. Karl og kona tóku fram kort og reyndu að
átta sig á aðstæðum. Sá þriðji lagði á ráðin með
þeim. Tvö þeirra voru vel klædd en einn lét
íþróttatreyju duga. Straumur ferðamanna hefur
aukist á ný og útlit er fyrir að hingað komi all-
margir gestir í sumar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Er ekki best að fara í þessa átt?
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópa-
vogi er staðráðinn í að framfylgja
öllum 100 kosningaloforðunum sem
flokkurinn boðar, það sé hægt enda
séu þau loforð bæði ábyrg og
raunsæ. Oddviti Miðflokks og
óháðra gagnrýnir þessi loforð og
kveðst sjálf ekki ætla að lofa upp í
ermina á sér, bæjarfélaginu eða
börnunum sem þar búa.
Samráði við íbúa er ábótavant í
Kópavogsbæ að mati oddvita Vina
Kópavogs, Viðreisnar, Pírata og
Vinstri-grænna, en framboð Vina
Kópavogs er einmitt sprottið fram af
þeim sökum. Oddviti Framsóknar-
flokksins líkir fasteignamarkaðnum
við ástandið á „eftirstríðsárunum“
og segir mikið mæða á sveitar-
félaginu að tryggja aukið framboð.
Sumir tali um skort á samráði vegna
þess að þeir kæri sig ekki um þau
svör sem þeir fá. »14
Morgunblaðið/Ágúst Óliver
Kópavogur Fjórir af átta oddvitum.
Samráðs-
skortur og
100 loforð
- Ástandið líkist
„eftirstríðsárunum“
Notkun blýhagla verður bönnuð
hér á landi frá 15. febrúar 2023 líkt
og annars staðar í löndum Evrópu-
sambandsins (ESB) og Evrópska
efnahagssvæðisins (EES). Sam-
kvæmt upplýsingum frá umhverf-
is-, orku- og loftslagsráðuneytinu
var reglugerð (ESB) 2021/57 inn-
leidd hér með reglugerð 1340/2021
sem var sett 15. nóvember sl.
„Við fréttum að utan að þetta
stæði til en höfðum ekki hugmynd
um að búið væri að innleiða þetta
hér. Ég furða mig á því að þessi
breyting skuli ekki hafa verið
kynnt okkur,“ segir Áki Ármann
Jónsson, líffræðingur og formaður
Skotveiðifélags Íslands (Skotvís).
Hann segir að umrædd reglugerð
ESB hafi verið harðlega gagnrýnd
vegna skilgreiningar á votlendi.
Jónas Þór Hallgrímsson á Húsa-
vík hefur framleitt haglaskot undir
merki Hlaðs frá 1984. Hann telur
að blýbannið geti orðið til þess að
framleiðslan leggist af. »20
Bann við blýhöglum
tekur gildi í febrúar