Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Side 8

Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Side 8
inu. Munkar af reglu lieilags Benedikts varðveittu á miðöldum þær leifar, sem til voru af læknislist fornaldar, og undirbjuggu á ýmsan hátt jarðveginn fyrir gróður síðari alda, en á Þingeyrunt var merkilegasta klaustur þessarar reglu á Norðurlöndum og þó víðar væri lcitað. Flestir þcir, sent lærðu til læknis á fyrstu öld íslenzkrar læknaskipunar, cða fram til 1850, áttu kyn sitt að rekja til Víðidalstunguættar, og kunnari en frá þurfi að segja er hlut- deild húnvetnskra lækna í því að ryðja hér á landi braut þeim kenningum Pastcurs og Listers, sem orðið hafa eitt af frumskil- yrðuni nútímámenningar, en hún væri óhugsandi, ef ekki væri hægt að halda í skefjum þeim drepsóttum, sem áður hcrjuðu heims- byggðina. Þá má og minnast þess, að fyrir 120 árum sýndu Hún- vetningar það framtak fyrstir landsmanna að ráða til sín lærðan lækni og hann ágætan, þar sem var Jóscp Skaftason í Hnausum, cn létu sér ekki nægja þá mjög takmörkum liáðu læknaskipun, sem ákvcðin var á þeim tíma af dönskum yfirvöldum. Húnvetningar hafa nú sýnt, að þcir hafa enn þennan gantla arf í fullum hciðri og tilja ckki vcra eftirbátar í heilbrigðismálum, því að hér á Blönduósi cr nú risinn upp stærsti og veglegasti héraðsspítali landsins og hefur ekkert framfaramál Austursýslunnar átt svo miklum og almcnnum vinsældum að fagna sem jtað. Því bera vitni þær mörgu og miklu gjafir, sem jressari stofnun hafa borizt frá svo að segja hverju hcimili sýslunnar. Þessar gjafir hafa gert j)að mögulcgt að koma húsinu upp á skemmri tíma cn ella og hafa gert meira gagn en krónutalan ein fær greint, |)ví að vcgna þeirra hcfur cnginn óþarfur dráttur orðið á framkvæmd verksins, en við hann fara mikil verðmæti í súginn, svo sem sýnt hefur sig við smíði ýmissa annara sjúkrahúsa um svipað leyti. Ríkissjóður hefur |)ann hátt á að greiða aldrei sinn hlut fyrr cn eftir á og þó ekki einu sinni að fullu ár hvert, cn okkur, sem að þcssu verki höfum staðið, hefur orðið ótrúlega vel til með lánsfé í bili, svo að aldrei hefur þurft að draga úr hraða verksins vegna fjárskorts, þótt stundum liafi skollið hurð nærri hælum, því að hér cr unt að ræða dýrt fyrirtæki, sem kostar um sex miljónir króna, um það sem lýkur. Er j)að fyrst og fremst áð j)akka frjálsum fram- lögum héraðsbúa sjálfra og annara velunnara, auk J)es, hve vel hefur tekizt til með verkstjórn og vinnubrögð. Munu ýmsir hafa hugsað svipað og gáfaður Vestur-Húnvetningur einn, sem fylgd- ist með framkvæmd verksins og kvað hana ganga kraftaverki næst. 6

x

Ársritið Húnvetningur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársritið Húnvetningur
https://timarit.is/publication/1679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.