Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Side 13

Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Side 13
Fjárfestingarleyfi var ckki fengið, cn næsta ár tókst að herja ut leyfi til að steypa kjallara hússins og var það gert sumarið 1952. Veturinn 1951—2 var unnið að ýmsum breytingum á teikning- unni og ræddum við Flalldór Halldórsson svo að segja hvert smá- atriði hennar áður en gengið var frá því til fullnustu, enda þurfti litlu sem engu að breyta, eftir að verkið hófst, en slíkur tví- verknaður er því miður ekki óvanalegur. Eg fékk skólabróð- ur niinn, Finnboga R. Þorvalds- son, prófessor í mannvirkja- fræði, til að koma norður og scgja fyrir um, hvernig gengið skyldi frá undirstöðum hússins, og að ráði hans var möl úr Kleifahorninu, sem er nokkr- um hundruð metrum ofar við Svínvetningabraut, send At- vinnudeild Háskólans til rann- sóknar, sem sýndi, að hún var ágætlcga fallin til steinsteypu, og, urðu malarflutningar því miklu ódýrari cn til þeirra húsa, scm áður höfðu vcrið rcist hcr, því að möl í þau hafði verið sótt upp í Langadal. Einnig voru send til rannsókna sýnishorn af hraunmöl úr Grá- borgarhrauni og norðan úr Mývatnssveit, og valin sú síðarnefnda, þótt nokkru dýrari væri, í ýmis lausaskilrúm. Arkitektinn og cg skoðuðum í félagi þau sjúkrahús, sem voru nýreist eða í byggingu, til samanburðar og hliðsjónar, en fröken Sigríður Bachmann, for- stöðukona Hjúkrunarkvennaskólans, var í ráðum með ýmsa tilhög- un innanhúss, sem áhrif hefur á dagleg vinnubrögð starfsfólks. Læt eg þessa alls getið til að sýna, að að engu var hrapað og reynt að vanda sem mest til alls undirbúnings. Vorið 1952 var Sveinn Ásmundsson byggingameistari, frá Ás- búðum á Húnaskaga, ráðinn til þess að standa fyrir verkinu, og reyndist það mikið happaspor, því að hann er kappsmaður inn mesti, reyndur og hagsýnn byggingameistari, úrræðagóður og Svcinn Ásmundsson by ggmganieistari 11

x

Ársritið Húnvetningur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársritið Húnvetningur
https://timarit.is/publication/1679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.