Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2012, Side 8

Andvari - 01.01.2012, Side 8
6 GUNNAR STEFÁNSSON ANDVARI ríkisstjórn hefur, hvað sem um hennar verk verður annars sagt, ekki óttast slíkt, eins og fiskveiðistjórnarmálið og ESB-aðildarumsóknin sanna, sem hún hefur sett á dagskrá auk stjórnarskrárinnar. Nú hefur verið ákveðin ráðgef- andi atkvæðagreiðsla um stjórnarskrána 20. október, þar sem spurt verður hvort kjósendur vilji að vinna stjórnlagaráðs verði lögð til grundvallar við samningu nýrrar stjórnarskrár. Að öðru leyti verður spurt sérstaklega um af- stöðu kjósenda til nokkurra grundvallarmála. Verður sú atkvæðagreiðsla að baki þegar þetta Andvarahefti kemur út. Síðan standa fyrir dyrum þingkosningar á vori komanda. Það er því margt óljóst um framvindu hinna örlagaríkustu þjóðmála um þessar mundir. * Forsetakosningar fóru fram á þessu ári. Engin mörk eru sett í stjórnarskrá eða lögum hve lengi sami maður megi sitja á forsetastóli, en fram til þessa hefur enginn verið þar lengur en sextán ár, fjögur kjörtímabil. Svo brá við að núverandi forseti íslands braut þá hefð, eins og hann hefur breytt ýmsu öðru um framgöngu forsetans frá því sem fyrr hafði tíðkast. Forsetinn hefur tekið til máls um ýmis umdeild þjóðmál og þrívegis neitað að staðfesta lög frá Alþingi eins og kunnugt er. Olafur Ragnar Grímsson bauð sig fram til embættisins í fimmta sinn. Hann hafði orðið að sæta miklum mótbyr á síð- asta kjörtímabili sem hófst með hruninu og var þá ótæpt rifjaður upp hinn virki stuðningur forsetans við útrásarvíkinga og lofræður hans um einstæða hæfni þeirra og hugdirfð. En Olafur Ragnar tók Icesave-málið upp á arma sína og gaf þjóðinni tvívegis kost á að greiða atkvæði um samninga stjórn- valda um það og voru þeir í bæði skiptin kolfelldir. Rétti forsetinn hlut sinn hjá almenningi nokkuð með þessu. Samt leit svo út í upphafi kosningabar- áttu að hann kynni að lúta í lægra haldi fyrir ungri sjónvarpskonu, Þóru Arnórsdóttur. Aðrir mótframbjóðendur fengu sáralítið fylgi. Er Þóra fyrsti frambjóðandi í forsetakjöri sem hefur virst eiga einhverja möguleika á að fella sitjandi forseta. Niðurstaðan varð hins vegar að hún hlaut þriðjungs- fylgi, en Ólafur Ragnar liðlega helming greiddra atkvæða sem var meiri háttar sigur miðað við aðstæður. Hann lagði á það megináherslu í kosninga- baráttunni að sér væri treystandi til að tryggja beint lýðræði í landinu með því að synja stórum ágreiningsmálum samþykktar. Þetta hreif. Að óbreyttri stjórnarskrá er ólíklegt að nokkur frambjóðandi nái kjöri til embættis forseta nema hann lýsi afdráttarlaust yfir að hann muni beita málskotsréttinum ef svo ber undir. Samkvæmt könnunum sem gerðar voru hafði mjög skipt um í liði stuðn- ingsmanna Ólafs Ragnars Grímssonar frá því sem áður var, ef litið er til stjórnmálaafstöðu. Þeir sem áður höfðu verið honum harðlega andsnúnir kusu hann nú í stórum stíl, en margir gamlir stuðningsmenn sneru hins vegar við
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.