Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2012, Blaðsíða 172

Andvari - 01.01.2012, Blaðsíða 172
170 HJALTI HUGASON ANDVARI og haldið sig við einfaldan en strangan boðskap og haft ímigust á „nýju guð- fræðinni" sem Haraldur og Þórhallur voru fulltrúar fyrir.5S Þessi greining á guðfræði Bjarna er tæpast nægilega undirbyggð í verkinu og skal hér leitast við að fylla út í þá eyðu.56 Lítið efni sem telja má guðfræðilegt er til á prenti eftir Bjarna Þorsteinsson. Það vekur þó athygli að 1896 birti hann stutta umsögn í Kirkjublaðinu, riti Þórhalls Bjarnarsonar, um Helgidagaprédikanir Páls Sigurðssonar (1839-1887) í Gaulverjabæ sem komið höfðu út að honum látnum tveimur árum áður.57 í um- sögninni snýst Bjarni gegn ummælum Friðriks J. Bergmann prests í Vesturheimi og Jóns Helgasonar prestaskólakennara. Báðir þessir menn voru á þessum tíma mótaðir af vakningarkristindómi í ætt við Heimatrúboðið á Norðurlöndum en áttu eftir að snúast á sveif með aldamótaguðfræðinni.58 Friðrik J. Bergmann álítur í ritdómi sínum að Páll boði trú sína eða kristindóm sinn af heiðarleika í hugvekjunum en það sé því miður „bilaður" kristindómur. Telur hann að í ritinu sé flutt kenning sem byggi vissulega á hefðbundnum kristnum hugtökum en fái þar nýja og óljósa merkingu. Telur hann Pál fremur höfða til höfuðsins en hjartans, þ.e. fremur skynsemi lesendanna en tilfinninga þeirra enda álítur hann Pál hrífast fremur af Sókratesi en Kristi. Helsta veikleika ritsins telur Friðrik þó vera að höfundinn skorti guðfræðilega menntun. Með tilvísun til orða Páls sjálfs telur Friðrik hugvekjurnar vera eins og „ský sem skyggi á Krist“ og álítur þær til þess fallnar að gera fólk afhuga kristni. Lítur Friðrik svo á að komi ein- hver kenning fram í prédikununum sé það únítarismi.59 Jón Helgason tók undir það álit Friðriks Bergmann að hugvekjusafnið væri hryggilegt tákn tímans en óttaðist ekki áhrif þess þar sem það væri of „kostasnautt" til að geta öðlast hylli.60 Bjarni hældi aftur á móti hugvekjunum sem hann taldi góðar, uppbyggi- legar, vekjandi og fræðandi, fullar af lífi og krafti. Sagði hann þær lýsa brenn- andi áhuga höfundar á tímanlegri og eilífri velferð lesendanna og óbilandi trú á guðlega forsjón og sigur hins góða. Harmaði hann aðeins að bókin hefði ekki að geyma helmingi fleiri hugvekjur.61 Páll í Gaulverjabæ var einn af fyrstu málsvörum frjálslyndrar guðfræðihefð- ar í landinu ásamt nágrannapresti sínum, Matthíasi Jochumssyni (1835-1920) í Odda. Þeir höfðu kynnt sér rit bandaríska guðfræðingsins W. W. Channings (1780-1842) en hann hafnaði ýmsum hefðbundnum kennisetningum kristn- innar og varð að lokum prestur í kirkju únítara. Þá boðaði hann og félags- legan kristindómsskilning. Endurómuðu sumar af hugmyndum Channings í prédikunum Páls sem m.a. vildi að kirkjan losnaði úr hinum nánu tengslum sínum við ríkisvaldið en lyti frekar stjórn fólksins sjálfs. Þá leit hann svo á að eitt helsta hlutverk kirkjunnar væri að mennta og móta frjálsa þjóð. Loks var hann fylgjandi auknu frelsi kvenna.62 Af hinni jákvæðu umsögn hlýtur að mega ráða að Bjarni hafi í meginatriðum verið sammála þeim boðskap sem fram kom í hugvekjunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.