Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2012, Blaðsíða 144

Andvari - 01.01.2012, Blaðsíða 144
142 ÁSTRÁÐUR EYSTEINSSON ANDVARI breska þingið. Kaldhæðni Dickens fer ekki leynt frekar en endranær. Sjálft nafn bæjarins segir sitt - dregið í senn af „mud“ og „fog“ (leðju og þoku). I öðru tímariti vestanhafs, Freyju, sem skörungurinn Margrét J. Benedictsson stýrði, birtist í þremur hlutum um aldamótin 1900 nóvella Dickens „Doctor Marigold". Hún er gott dæmi um samúð Dickens með lítilmagnanum en einn- ig um feimnisleysi hans við tilfinningasemi. Eftir að farandsalinn Marigold hefur misst dóttur sína og eiginkonu (en sú kona hefur reyndar verið hin versta, bæði manni sínum og dóttur), tekur hann til sín mállausa og heyrnar- lausa stúlku - sem umheimurinn hefur gefið upp á bátinn - og kemst í sam- band við hana með táknmáli og með því að kenna henni að lesa og skrifa. Saman mynda þau nýja fjölskyldu. Hún kynnist síðar manni, einnig heyrnar- lausum, og þau halda til útlanda. Sambandið slitnar á milli þeirra en lok sög- unnar segja frá endurfundum og það segir líka sitt að Dickens lætur þá verða á jólunum. Sögunni lýkur svo: I þessu kom Sophy mín inn og vafði höndunum um hálsinn á mér, og slíkt hið sama gjörði litla stúlkan hennar líka, og þarna var maðurinn hennar að hrista og kreista á mér hendina og snöri sér undan, eins og hann fyriryrði sig fyrir tárin sem læddust niður kinnar hans. Svo urðum við öll að hrista okkur dálítið upp, áður en við gátum sagt nokkuð verulegt og komist til rólegheita. Þegar við vorum búin að ná okkur, og ég sá barnið, sem ánægjan skein út úr, tala við móður sína með sömu teiknunum sem ég kenndi henni, þegar hún sjálf var lítið barn, þá streymdu meðaumkunar og gleðitár niður kinnar mínar.13 Þessi saga birtir í hnotskurn mikilvægi fjölskyldunnar í sagnaheimi Dickens en sýnir líka hvað hann telur fjölskylduna vera brothætt fyrirbæri. Dickens varð í lifandi lífi ekki aðeins áberandi baráttumaður fyrir mannúðlegra og réttlátara samfélagi, heldur jafnframt talsmaður siðferðisgilda sem hann tengdi mjög við fjölskylduna sem uppsprettu og vettvang hinna bestu mann- kosta, auk ástar og gagnkvæms stuðnings. Með þessu setti hann sjálfan sig og fjölskyldu sína í vissa ábyrgðarstöðu. Hann og kona hans eignuðust tíu börn og komust níu þeirra á legg. Þótt fjölmiðlun væri með öðru móti þá en nú er raunin, þurfti Dickens að leggja nokkuð á sig til að tryggja ásýnd fyrir- myndar-fjölskyldulífs þar sem hann var hinn góði faðir og eiginmaður. Þetta reyndist erfitt þegar fram í sótti og hann flutti að lokum frá konu sinni og bjó síðustu árin með ungri leikkonu sem hann varð ástfanginn af. Um þetta hefur mikið verið rætt og ritað. Þýdd grein eftir Daniel Forson, sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1970, hefst með þessum orðum: „Alla ævi leitaði Charles Dickens að hinum eina og sanna lífsförunaut. Þegar hann tók að nálgast miðj- an aldur varð þessi þörf að hreinustu ástríðu “14 Þetta hefur ekki verið auðvelt við að eiga fyrir mann sem reyndi að vera öðrum skínandi fyrirmynd en var að því er virðist í ástlausu hjónabandi og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.