Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2012, Page 75

Andvari - 01.01.2012, Page 75
andvari DR. HALLGRÍMUR SCHEVING 73 sinna hugðarefnum sínum, og var ætíð við miðdegisverð og kvöldverð með hendurnar fyrir aftan bak, þá mátti enginn mæla orð. Hann var hins vegar jafnan boðinn og búinn að veita skólapiltum tilsögn, ekki einungis í kennslu- tímum, heldur hvar og hvenær sem þeir komu til hans. Margir þeirra minnast þessa alls sem og skemmtilegra, lifandi og fróðlegra samræðna við hann fyrir utan skólastofuna og þá á jafningjagrundvelli.14 Húsfreyjur á Álftanesi leituðu einnig til Hallgríms með mismunandi hugðar- efni sín, sem sýnir að hann var félagi þeirra. Ingibjörg Jónsdóttir, sem var gift ráðsmanninum á Bessastöðum, Þorgrími Tómassyni, ritar Grími bróður sínum til Kaupmannahafnar og biður hann að setja bréfin til sín með send- ingum til Hallgríms, því að honum treysti hún manna best á Álftanesinu.15 Að vera heill og traustur eru feikna góð ummæli. Húsfreyjan á Bessastöðum átti einhver leyndarmál sem hún deildi með bróður sínum, en vildi ekki að eigin- maðurinn vissi um. Eiginkona séra Árna Helgasonar leitaði til Hallgríms með hugðarefni sem voru af allt öðrum toga, en þau voru um draumaráðningar og dulargáfur. Handritasafn hans ber þess merki að hann safnaði og rannsakaði sagnir eins og af huldufólki og galdramönnum. Flestar huldar vættir má rekja til norrænu goðsagnanna sem birtast meðal annars í Eddukvæðum. Þá voru álfa- og huldufólkssögur oftar en ekki draumsagnir. Hallgrímur studdi síðar dyggilega við bakið á Jóni Árnasyni þjóðsagnasafnara og Bessastaðasveini og lét af hendi rakna þjóðsögur til hans sem og gátusafn.16 Endurminningar Hallgríms frá Hólaskóla, sem Jón Árnason skráði, voru mikilsverð heimild af því að afar lítið er vitað um daglegt líf í latínuskólum 18. og 19. aldar. Hann fjallaði þar um leiki og störf nemenda. Hvort hann hefur kennt strákunum á Bessastöðum eitthvað af leikjunum, sem þeir stund- uðu á Hólum, er ekki unnt að fullyrða, en sömu þrautir voru viðhafðar við busavígslu á Hólum og Bessastöðum. Gefum Hallgrími eftir hið skrifaða orð þegar hann lýsti leiknum að vaða bál: Sá leikur [að vaða bál] var í því fólginn, að piltar settust niður í tveim röðum, hvor móti annari, hölluðu sér aptur á bak og studdu niður olbogunum, en ráku fæturnar upp, aðrir segja, að þeir hafi sezt niður í hring og sparkað svo allir upp fótunum. Nú var listin í því fólgin, að geta hlaupið eptir endilangri fótaröðinni á iljum hinna, sem á gólfinu lágu, hversu ókyrrir sem þeir voru, eða spörkuðu í þann, sem hlaupa átti. Þetta var í Hólaskóla nokkurskonar kárina eða skyldukvöð, sem lögð var fyrir novos og þó tóku antiqui þessa hremmingu af þeim, þegar þeir sáu, að novi mundu ekki endast til þessa; enda var þetta hættuspil og ekki fyrir aðra að komast vel frá þessum leik en fimustu menn.17 Hallgrímur sagði sjálfan sig og Ólaf Þorleifsson, síðar prest í Höfða í Höfða- hverfi, hafa verið liprasta og tekið ómakið af nýnemum og vaðið bálið fyrir þá. Á mánudögum voru þeir á Hólum lausir við bóknám og stunduðu þá leiki,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.