Morgunblaðið - 22.12.2022, Síða 1

Morgunblaðið - 22.12.2022, Síða 1
SNÝR BRÁTT AFTUR EFTIR ERFIÐ MEIÐSLI LOVÍSA BJÖRT 61 LSTI ÍSLEND- GURINN FAGN- AR AFMÆLI ÞÓRHILDUR 58 • Stofnað 1913 • 300. tölublað • 110. árgangur • F IMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2022 jolamjolk.is dagar til jóla 2 Ketkrókur kemur í kvöld Allt fyrir jólin! 20.–26. desember Lokun Reykjanesbrautar, sem stafaði meðal annars af snjókomu sem hófst á föstudag, hafði áhrif á um 24 þús- und farþega Icelandair; tengifarþega, brottfarar- og komufarþega. 22 þúsund þeirra hafa fengið nýja ferðaáætlun, að sögn Guðna Sigurðs- sonar, upplýsingafulltrúa Icelandair. Hann viðurkennir að flugfélagið hafi átt erfitt með að svara fjölda fyrirspurna sem hafa borist vegna ástandsins, sem á sér engin fordæmi. Reykjanesbraut var lokað á mánu- daginn og úr varð að öllu flugi var af- lýst. Aðspurður segir hann of snemmt að segja til um hvort Icelandair sækist eftir skaðabótum en farþegar eiga rétt á einhverjum bótum vegna raskana á áætlunum þeirra. Reynt er að koma hlutunum í réttan farveg að sögn Guðna og hefur aukamann- skapur verið kallaður til. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir að veðrátta á Íslandi verði alltaf áskorun en brýn- ast sé að upplýsingamiðlun sé skýr og fólk þjónustað. Fari það saman sé ekki víst að orðsporsáhættan sé mikil. Hún hafi verið í góðu sambandi við Samtök ferðaþjónustunnar og samráðherra sína í kjölfar málsins. Arnar E. Ragnarsson, vaktstjóri hjá Vegagerðinni, segist hafa séð atriði í vinnubrögðum við snjómokstur í að- draganda lokunar Reykjanesbraut- ar sem hefði mátt bæta. Vegagerðin er ekki með samninga við eigendur vinnuvéla sem kveða á um að þeir verði til staðar hvenær sem þess er óskað. lStórtjón fyrir flugfélög og farþegalÁ sér engin fordæmi Áætlunum tugþúsunda flugfarþega var raskað Alltaf stór …» 2 og 18 Markmiðið var ekki að vera valinn bestur í Þýskalandi „„Ég setti mér ekki það markmið fyrir tímabilið að vera valinn bestur,“ sagði handbolta- og landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is sem framleiddur er af Studio M. Ómar Ingi, sem er 25 ára gamall, gekk til liðs við Þýska- landsmeistara Magdeburg sumarið 2020 en hann var valinn besti leikmaður deildarinnar á síðustu leiktíð þegar Magdeburg varð meistari. „Mér finnst mikilvægara að vinna með liðinu og ég held að það segi meira um leikmenn,“ sagði Ómar Ingi. „Markmiðið fyrir tímabilið var að vinna deildina og ef það átti að ganga eftir þurfti ég að standa mig vel þar sem hlutverk mitt í liðinu er stórt,“ sagði Ómar Ingi meðal annars. bjarnih@mbl.is» 12 Morgunblaðið/Hallur Már Bestur Ómar Ingi Magnússon er á leið á sitt sjötta stórmót með landsliðinu. Píeta-samtökin héldu sína árlegu vetrarsól- stöðugöngu í gærkvöldi til þess að minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Gangan var á tveimur stöðum, Reykjavík og Akureyri. Gangan hófst klukkan 20 við Skarfavita í Reykjavík og Svalbarðsstrandarvita fyrir norðan. 300-400 manns tóku þátt í göngunni í ár. Við vitana var kveikt á kertum og þau sem tóku þátt í göngunni nutu samverunnar hvert með öðru. Þá skrifaði fólk skilaboð um söknuð og ást á plötur sem sett- ar höfðu verið upp á báðum vitunum. Þar verða kveðjurnar yfir jól og áramót og standa undir blikkandi ljósi til að minna hvern og einn á að ástin er eilíf. Mikill kærleikur ríkti og var þetta frábær samverustund að sögn viðstaddra. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mikill kærleikur í árlegri sólstöðugöngu Píeta-samtakanna Vilja friða umhverfi Stjórnarráðsins „Á síðasta fundi Al- þingis fyrir jól var lögð fram tillaga til þings- ályktunar um friðlýs- ingu nærum- hverfis Stjórnarráðshússins við Lækjartorg. Átján alþingismenn úr fimm flokkum flytja tillöguna og er Birgir Þórarinsson, Sjálfstæð- isflokki, 1. flutningsmaður. Tillagan kemur væntanlega til afgreiðslu á vorþinginu. Verði hún samþykkt eru áform um við- byggingu við Stjórnarráðið úr sögunni en framkvæmdir við þá byggingu eru ekki hafnar. »40 N E I GRÍPANDI OG SÖGULEG RITDÓMAR 64, 65, 68

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.