Morgunblaðið - 22.12.2022, Side 16
FRÉTTIR
Innlent16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2022
www.gilbert.is
VERÐ frá:
29.900,-
arc-tic Retro
klassísk Armbandsúr fyrir
dömur og herra
tilvalið í jólapakkann
úr miðri 20. öldinni. Þar byggðist
upp fjölbreyttur iðnaður og at-
vinnurekstur. Margir Reykvíkingar
sóttu þjónustu í þessar byggingar
á árum árum, svo sem til bíla- og
réttingarverkstæða. Upp úr síðustu
aldamótum jókst ásókn í að nýta
iðnaðarhúsnæði fyrir íbúðir og
vinnustofur, að því er fram kemur
í greinargerð með skipulaginu.
Samhliða breyttri nýtingu húsnæð-
isins dróst grófari atvinnustarfsemi
saman. Í aðalskipulagi Reykjavík-
ur 2040 var skrefið tekið til fulls
og landnotkun svæðisins breytt í
íbúðarbyggð og miðsvæði.
Þétting byggðar
Deiliskipulagið er unnið á
grundvelli hugmyndasamkeppni og
rammaskipulags fyrir Vogabyggð.
Höfundar eru JVST Felixx og
teiknistofan Tröð. Það samræm-
ist áformum Reykjavíkurborgar
eins og þeim hefur verið lýst í
aðalskipulagi Reykjavíkur að þétta
byggð, m.a. með endurnýtingu
gamalla iðnaðarsvæða.
Tilgangur skipulagsáætlana er
að taka til endurnýjunar svæði
sem lokið hafa hlutverki sínu sem
iðnaðar- og athafnasvæði. Nýtt
skipulag muni gera svæðinu kleift
að endurnýjast til að mæta þörf fyr-
ir íbúðir og þjónustu í stað iðnaðar-
og geymsluhúsnæðis. Svæðið verði
viðbót við hið gróna Vogahverfi og
verði liður í endurgerð svæðisins
umhverfis Elliðaárósa. Svæðið liggi
vel við uppbyggingu með tilliti til
innviða borgarinnar og komi til með
að stuðla að bættri nýtingu borgar-
landsins. Stuðlað verði að góðum
tengingum svæðisins við náttúru
og byggð í næsta nágrenni. Tenging
við Elliðaárdalinn og Elliðaárósa
verði styrkt og staðinn vörður um
strandlengjuna og Háubakka.
„Skipulagssvæðið er svipsterkt í
landslagi sínu, einkum þegar horft
er frá Ártúnshöfða í vesturátt.
Þetta birtist einkum í samfelldri
byggð þessa svæðis sem stendur
tignarlega ofan við vogana. Þegar
svæðið var skipulagt var því
skipt upp í margar lóðir þar sem
byggingar voru svipaðar að hæð og
breidd. Fyrir vikið voru þó nokkrir
uppbyggingaraðilar sem komu
að mótun svæðisins sem gefur
því ákveðinn fjölbreytileika m.t.t.
litavals og gluggasetningar. Engu
að síður er þetta fjölbreytilega
yfirbragð hluti af sterkri heildar-
mynd sem skapar sterkt samspil á
milli borgar og náttúru,“ segir m.a. í
greinargerðinni.
Heimilt að byggja við
Samkvæmt deiliskipulags-
tillögunni verður heimilt að byggja
við og stækka núverandi byggingar
á reitnum með vissum takmörk-
unum þó. Heimilt verður að koma
fyrir lyftum og útbúa innfelldar
svalir, t.d. franskar svalir. Þá
verður heimilt að lyfta upp þaki
og skapa þannig eina hæð í viðbót.
Borgarráð hefur samþykkt að
auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir
Vogabyggð 3. Svæðið afmarkast af
Dugguvogi til vesturs, Tranavogi til
norðurs, Súðarvogi og strandsvæði
Elliðaárvogs til austurs og suðurs.
Gríðarmikil uppbygging hefur verið
í Vogabyggð á undanförnum árum
með byggingu fjölmargra íbúðar-
húsa, þar sem áður stóðu atvinnu-
og verkstæðisbyggingar. Nú er
ætlunin að stíga næstu skref.
Að þessu sinni munu húsin sem
fyrir eru á reitnum standa áfram
en þau verða stækkuð og umhverfið
bætt. Borgaryfirvöld reikna með að
hverfið verði eftirsóttur valkostur
fyrir fólk sem kýs að búa og starfa
í umhverfi sem einkennist af hvoru
tveggja í senn, borgarbrag og ná-
lægð við náttúru.
Skipulagssvæðið sem nú verður
auglýst þróaðist í athafnasvæði upp
Viðbótarhæð skal vera inndregin
að hámarki tvo metra í ytri kant
núverandi byggingalínu (þ.e. frá
Súðarvogi, Dugguvogi og Trana-
vogi). Vanda skal alla hönnun og
frágang á þakhæðum og svölum,
segir í deiliskipulaginu.
Sem fyrr segir hefur verið mikil
uppbygging í hinu nýja hverfi Voga-
byggð við Elliðaárvog, sem er sunn-
an Kleppsmýrarvegar og austan
Sæbrautar. Gamlar og úreltar
verksmiðju- og geymslubyggingar
voru rifnar og í staðinn hafa risið
fjölbýlishús. Framkvæmdir hófust
sumarið 2018 og fyrstu íbúðirnar
fóru í sölu vorið 2019. Síðan þá
hefur hverfið byggst hratt upp.
Stefnt er að því að þarna verði allt
að 1.300 nýjar íbúðir byggðar auk
skóla, leikskóla og fleiri þjónustu-
bygginga. Íbúðarhúsnæðið verður
samtals um 155.000 fermetrar og
atvinnuhúsnæði verður um 56.000
fermetrar. Vogabyggðinni er skipt í
fimm skipulagsreiti.
lDeiliskipulag unnið fyrir Súðarvog og nágrennilMikil nálægð við strandsvæði Elliðaárvogs
Bílaverkstæðum breytt í íbúðir
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Fyrir Í iðnaðar- og verkstæðishúsunum við Súðarvog hefur verið margvísleg starfsemi.
Tölvummynd/Teiknistofan Tröð
Eftir Þannig sjá arkitektar fyrir sér að húsin geti litið út eftir að þeim hefur verið breytt í íbúðir.