Morgunblaðið - 22.12.2022, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL 59
Gleðileg
jól
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes • www.gaeludyr.is
Vísnahorn
Sprundum kalt í kjólum
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
yrkir á Boðnarmiði:
Ofan hleður snjó á snjó
snjórinn fellur lárétt þó.
Þegar spá er þvílíkt ljót
þá má fá sér sálubót.
Ingólfur Ómar Ármannsson er
sama sinnis:
Eykur kvíða í erg og gríð
ógnar stríður vetur,
Fimbultíð með frost og hríð
fjötrað lýði getur.
Halldór Þorsteinsson skrif-
ar: „Þá er veturinn mættur og
minnir okkur heldur betur á
hvar á hnettinum við búum. En
þá er bara að búa sig samkvæmt
aðstæðum.“
Líður jú að jólum
já og fríi í skólum
sprundum kalt í kjólum
allt kolófært á hjólum.
Óli Sigurgeirsson svarar:
Þá er létt að læðast
létt í reykjarkofa
kuldafötum klæðast
ket í munn lát' bræðast
og fara svo að sofa.
Hér eru þrjár stökur eftir Pétur
Stefánsson:
Er fikrast ég á feigðarstig
frjáls við heimsins krísur,
erfast bara eftir mig
ótal samdar vísur.
Oft mig skorti auðnuvott
arkaði sár á grjóti.
Æ var skapið í mér gott
allt þó blési móti.
Flestalla daga við setjum hér saman
sannleika, lygi og flím.
Að draga í stuðla er dæmalaust
gaman
og dunda við alls konar rím.
Og enn yrkir Pétur:
Er andskotinn með eld og hita?
Er efri vistin nokkuð trygg?
Þetta fæ ég þó að vita
þegar ég síðast dauður ligg.
Og enn:
Vindabrakið mæðir menn,
margur hrakinn grætur.
Hérna vaka vondar enn
vetrar klakanætur.
Ingólfur Ómar svarar:
Vetur sjóli kreppir klær
kuldagjóla næðir.
Freranjóla fjúk og snær
foldarbólin klæðir.
„VERTU EKKI MEÐ STÆLA VIÐ MIG,
VINUR – ÉG GET DREPIÐ ÞIG ÚR
LEIÐINDUM.“
„ÞETTA ÁTTI AÐ VERA MAKKARÓNUKAKA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hafa meiri
áhyggjur af henni en
bílnum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ELSKA
AÐ LESA! ÉG LÍKA! ÉG ER
HRIFNARI AF
RAFBÓKUM
HVAÐ ER AÐ HRJÁ ÞIG? ÞETTA
ER Í TÍUNDA SKIPTIÐ Í DAG
SEM ÞÚ ÞVÆRÐ ÞÉR Í FRAMAN!
ÉG ER EKKI AÐ ÞVO MÉR,
ÉG ER AÐ VÖKVA Á MÉR
ANDLITIÐ!
ÉG ER AÐ REYNA AÐ
LÁTA MÉR VAXA SKEGG!
SLAMM!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
voru hjónin Lárus Mikael Stef-
ánsson, f. 22.9. 1871, d. 13.4. 1930,
bóndi á Grænhól og Efri-Vaðli og
Jónína Valgerður Engilbertsdóttir,
f. 12.1. 1875, d. 9.2. 1926., húsfreyja
á Grænhól og Efra-Vaðli.
Börn Þórhildar og Gústafs: 1)
Ásta Vigdís, f. 8.3. 1942, börn:
Þórhildur Eggertsdóttir, f. 2.6.
1958, Þór Þorsteinsson, f. 25.10.
1963, Edda Þorsteinsdóttir, f. 27.9.
1964, og Þorsteinn Mikkael Krist-
jánsson, f. 18.4. 1974; 2) Hildur, f.
9.4. 1943, börn: Gústaf Fransson,
f. 2.1. 1962, Ómar Frans Frans-
son, f. 24.4. 1964, Stefán Freyr
Björnsson, f. 31.7. 1976, og Sævar
Már f. 13.07 1979; 3) Hulda, f. 19.4.
1944, börn: Halldór Erling Smith,
f. 10.10. 1962, og María Björk
Smith, f. 6.1. 1964; 4) Auður, f. 9.3.
1948, d. 10.10. 2020, börn: Natacha
Renea Durham, f. 11.10. 1971, og
Dustin Jay Durham, f. 8.6. 1975; 5)
Margrét, f. 29.3. 1949, börn: Davíð
Davíðsson, f. 14.2. 1971, Marín
Hergils Valdimarsdóttir, f. 12.3.
1986, og Kara Hergils Valdimars-
dóttir, f. 25.11. 1987; 6) Guðrún, f.
19.9. 1950, börn: Róbert Bjargar-
son, f. 27.7. 1968, Cherry Lind
Cormier. f. 11.8. 1972, Ríkharður
Páll Cormier, f. 21.9. 1971, og
Hjörleifur Björnsson, f. 6.3. 1983.
Afkomendur Þórhildar eru nú 83.
Systkini Þórhildar. Ásdís, f. 1915,
d. 1996, Sigurður, f. 1916, d. 1995,
Þórhildur, f. 1917, Áslaug, 1919, d.
2014, Brynjólfur, f. 1920, d. 1994,
Hulda Dagmar, f. 1926, og Gísli, f.
1929, d. 2021.
Foreldrar Þórhildar voru hjónin
Magnús Gíslason, f. 18.8. 1872, d.
11.9. 1943, bóndi í Miðhúsum og
verkamaður í Reykjavík, og Guð-
rún Ragnheiður Brynjólfsdóttir, f.
20.8. 1886, d. 11.6. 1976, húsfreyja í
Miðhúsum og Reykjavík.
Þórhildur
Magnúsdóttir
Sigríður Jónasdóttir
húsfreyja á Breiðavaði og í Stardal
Sigurður Guðmundsson
bóndi á Breiðavaði í Langadal,
A-Hún. og í Stardal í Mosfellssveit
Ásdís Sigurðardóttir
húsfreyja í Miðhúsum
Brynjólfur Eyjólfsson
bóndi í Miðhúsum
Guðrún Ragnheiður Brynjólfsdóttir
húsfreyja í Miðhúsum og Reykjavík
Guðrún Magnúsdóttir
húsfreyja á Laugarvatni
Eyjólfur Eyjólfsson
bóndi á Laugarvatni
Sigríður Gísladóttir
húsfreyja í Giljum og Vola
Magnús Magnússon
bóndi í Giljum í Hvolhreppi, Rang.
og Vola í Hraungerðishr., Árn.
Þórhildur Magnúsdóttir
húsfreyja á Melum og í Brautarholti
Gísli Magnússon
bóndi á Melum og í Brautarholti á Kjalarnesi
Guðbjörg Jónsdóttir
húsfreyja í Austurey
Magnús Halldórsson
bóndi í Austurey í Laugardal
Ætt Þórhildar Magnúsdóttur
Magnús Gíslason
bóndi í Miðhúsum í Biskupstung-
um og verkamaður í Reykjavík