Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 22.12.2022, Síða 59

Morgunblaðið - 22.12.2022, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2022 DÆGRADVÖL 59 Gleðileg jól Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes • www.gaeludyr.is Vísnahorn Sprundum kalt í kjólum Hólmfríður Bjartmarsdóttir yrkir á Boðnarmiði: Ofan hleður snjó á snjó snjórinn fellur lárétt þó. Þegar spá er þvílíkt ljót þá má fá sér sálubót. Ingólfur Ómar Ármannsson er sama sinnis: Eykur kvíða í erg og gríð ógnar stríður vetur, Fimbultíð með frost og hríð fjötrað lýði getur. Halldór Þorsteinsson skrif- ar: „Þá er veturinn mættur og minnir okkur heldur betur á hvar á hnettinum við búum. En þá er bara að búa sig samkvæmt aðstæðum.“ Líður jú að jólum já og fríi í skólum sprundum kalt í kjólum allt kolófært á hjólum. Óli Sigurgeirsson svarar: Þá er létt að læðast létt í reykjarkofa kuldafötum klæðast ket í munn lát' bræðast og fara svo að sofa. Hér eru þrjár stökur eftir Pétur Stefánsson: Er fikrast ég á feigðarstig frjáls við heimsins krísur, erfast bara eftir mig ótal samdar vísur. Oft mig skorti auðnuvott arkaði sár á grjóti. Æ var skapið í mér gott allt þó blési móti. Flestalla daga við setjum hér saman sannleika, lygi og flím. Að draga í stuðla er dæmalaust gaman og dunda við alls konar rím. Og enn yrkir Pétur: Er andskotinn með eld og hita? Er efri vistin nokkuð trygg? Þetta fæ ég þó að vita þegar ég síðast dauður ligg. Og enn: Vindabrakið mæðir menn, margur hrakinn grætur. Hérna vaka vondar enn vetrar klakanætur. Ingólfur Ómar svarar: Vetur sjóli kreppir klær kuldagjóla næðir. Freranjóla fjúk og snær foldarbólin klæðir. „VERTU EKKI MEÐ STÆLA VIÐ MIG, VINUR – ÉG GET DREPIÐ ÞIG ÚR LEIÐINDUM.“ „ÞETTA ÁTTI AÐ VERA MAKKARÓNUKAKA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hafa meiri áhyggjur af henni en bílnum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ELSKA AÐ LESA! ÉG LÍKA! ÉG ER HRIFNARI AF RAFBÓKUM HVAÐ ER AÐ HRJÁ ÞIG? ÞETTA ER Í TÍUNDA SKIPTIÐ Í DAG SEM ÞÚ ÞVÆRÐ ÞÉR Í FRAMAN! ÉG ER EKKI AÐ ÞVO MÉR, ÉG ER AÐ VÖKVA Á MÉR ANDLITIÐ! ÉG ER AÐ REYNA AÐ LÁTA MÉR VAXA SKEGG! SLAMM! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is voru hjónin Lárus Mikael Stef- ánsson, f. 22.9. 1871, d. 13.4. 1930, bóndi á Grænhól og Efri-Vaðli og Jónína Valgerður Engilbertsdóttir, f. 12.1. 1875, d. 9.2. 1926., húsfreyja á Grænhól og Efra-Vaðli. Börn Þórhildar og Gústafs: 1) Ásta Vigdís, f. 8.3. 1942, börn: Þórhildur Eggertsdóttir, f. 2.6. 1958, Þór Þorsteinsson, f. 25.10. 1963, Edda Þorsteinsdóttir, f. 27.9. 1964, og Þorsteinn Mikkael Krist- jánsson, f. 18.4. 1974; 2) Hildur, f. 9.4. 1943, börn: Gústaf Fransson, f. 2.1. 1962, Ómar Frans Frans- son, f. 24.4. 1964, Stefán Freyr Björnsson, f. 31.7. 1976, og Sævar Már f. 13.07 1979; 3) Hulda, f. 19.4. 1944, börn: Halldór Erling Smith, f. 10.10. 1962, og María Björk Smith, f. 6.1. 1964; 4) Auður, f. 9.3. 1948, d. 10.10. 2020, börn: Natacha Renea Durham, f. 11.10. 1971, og Dustin Jay Durham, f. 8.6. 1975; 5) Margrét, f. 29.3. 1949, börn: Davíð Davíðsson, f. 14.2. 1971, Marín Hergils Valdimarsdóttir, f. 12.3. 1986, og Kara Hergils Valdimars- dóttir, f. 25.11. 1987; 6) Guðrún, f. 19.9. 1950, börn: Róbert Bjargar- son, f. 27.7. 1968, Cherry Lind Cormier. f. 11.8. 1972, Ríkharður Páll Cormier, f. 21.9. 1971, og Hjörleifur Björnsson, f. 6.3. 1983. Afkomendur Þórhildar eru nú 83. Systkini Þórhildar. Ásdís, f. 1915, d. 1996, Sigurður, f. 1916, d. 1995, Þórhildur, f. 1917, Áslaug, 1919, d. 2014, Brynjólfur, f. 1920, d. 1994, Hulda Dagmar, f. 1926, og Gísli, f. 1929, d. 2021. Foreldrar Þórhildar voru hjónin Magnús Gíslason, f. 18.8. 1872, d. 11.9. 1943, bóndi í Miðhúsum og verkamaður í Reykjavík, og Guð- rún Ragnheiður Brynjólfsdóttir, f. 20.8. 1886, d. 11.6. 1976, húsfreyja í Miðhúsum og Reykjavík. Þórhildur Magnúsdóttir Sigríður Jónasdóttir húsfreyja á Breiðavaði og í Stardal Sigurður Guðmundsson bóndi á Breiðavaði í Langadal, A-Hún. og í Stardal í Mosfellssveit Ásdís Sigurðardóttir húsfreyja í Miðhúsum Brynjólfur Eyjólfsson bóndi í Miðhúsum Guðrún Ragnheiður Brynjólfsdóttir húsfreyja í Miðhúsum og Reykjavík Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja á Laugarvatni Eyjólfur Eyjólfsson bóndi á Laugarvatni Sigríður Gísladóttir húsfreyja í Giljum og Vola Magnús Magnússon bóndi í Giljum í Hvolhreppi, Rang. og Vola í Hraungerðishr., Árn. Þórhildur Magnúsdóttir húsfreyja á Melum og í Brautarholti Gísli Magnússon bóndi á Melum og í Brautarholti á Kjalarnesi Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Austurey Magnús Halldórsson bóndi í Austurey í Laugardal Ætt Þórhildar Magnúsdóttur Magnús Gíslason bóndi í Miðhúsum í Biskupstung- um og verkamaður í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.