Morgunblaðið - 22.12.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.12.2022, Qupperneq 2
FRÉTTIR Innlent2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2022 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 www.heimsferdir.is Tene fei Flug aðra leið til 19.975 Flug aðra leið frá Flugsæti í janúar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.ismbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Það hefur tekist vonum framar að spila úr þessum vanda sem landið hefur staðið frammi fyrir,“ segir Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Mjólkursamsölunnar, um verð- þróun matvöru síðastliðið ár samanborið við þróunina í löndum Evrópusambandsins. Margir hafa það á tilfinningunni að verð á mat- vælum á Íslandi hafi hækkað meira en annars staðar í álfunni. Erna segir að nýjustu gögn styðji ekki þær hugmyndir. Hún hefur rýnt í gögn frá Evrópusambandinu og héðan frá Hagstofunni og segir að undanfarna tólf mánuði hafi hækk- anir á verði matvæla til neytenda á Íslandi verið minni en víða í Evrópu og jafnvel það mikið minni að Ísland hafi vermt botnsætið í mörgum flokkum. „Evrópusambandið birtir tölur um verðþróun á matvælum eins og þær eru flokkaðar í vísitölu neysluverðs á nýju mælaborði ESB um fæðuöryggi. Fyrstu tölurnar sem birtust þar voru fyrir október sl., en núna voru þeir að birta tölur um breytingar frá nóv- ember 2021 til nóvember 2022. Ef við skoðum flokkinn mjólkurvörur, osta og egg á þessu 12 mánaða tímabili þá er Ísland með minnstu hækkunina í allri Evrópu, eða 12,2% hækkun á meðan meðaltalið í löndum ESB er 26,7%, sem er meira en tvöfalt meiri hækkun,“ segir Erna. Ísland kemur einnig betur út í öllum matvælaflokkummiðað við lönd ESB nema í flokki kjötvara, en þar er Ísland einu prósentustigi hærra en meðaltalið í löndum ESB, eða með 18% hækkun á móti 17% ESB-landa. „Það er vart mælanlegt,“ segir Erna. „Ef við lítum á heildar- flokkinn með allan mat, þá er verð á matvöru í ESB-löndunum að hækka að meðaltali um 18,3% en um 10,4% hér. Þetta kemur eiginlega á óvart og sýnir að þrátt fyrir allt hefur um margt tekist vel að halda á málum hér.“ lAðeins kjöt hefur hækkaðmeira hér en í löndumESB Minni hækkanir ámatvæl- um hér en í löndumESB Morgunblaðið/Ómar Matvörur Verð á mjólk og eggjum hefur hækkað minnst á Íslandi. „Númer eitt er að ná utan um svona stöður á markvissari hátt. Veðrátta á Íslandi verður alltaf áskorun og því má gera ráð fyrir einhverjum skakkaföllum – brýn- ast er þó að upplýsingamiðlun sé skýr og að fólkið sé þjónustað, ef það fer saman, þá er ekki víst að orðsporsáhættan sé mikil,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra. Ástandið á Keflavíkurflugvelli síðustu daga var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun. Sem kunnugt er hafa þúsundir verið þar strandaglópar vegna óveðurs og ófærðar. Lilja er ráðherra ferðamála og fór yfir það með samráðherrum sínum hversu marga umrætt ástand hefur snert og hvaða áhrif það hefur. „Ég hef verið í góðu sambandi við flugfélögin, Samtök ferðaþjón- ustunnar og fleiri. Niðurstaðan er að yfir tuttugu þúsund farþegar hafi fundið fyrir þessu,“ segir hún. Vel tekist til með endurreisn Lilja er á sama máli og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, sem sagði í Morgunblaðinu í gær að tafir sem hljótast af veðri líkt og nú valdi ekki skaða á orðspori okkar til langframa. Þeim megi líkja við verkföll á flugvöllum. Hins vegar sé mikilvægt að leysa úr málum sem fyrst og koma öllum á áfangastað. Ráðherra segir ennfremur að afar vel hafi tekist til við endur- reisn ferðaþjónustunnar eftir kórónuveirufaraldurinn og mikil- vægt sé að halda þeirri stöðu. „Við erum komin á bilinu 96-97% til baka á þann stað sem við vorum á. Á heimsvísu nær þetta hlutfall 56%. Það er ótrúlegur kraftur í ferðaþjónustunni og hún er aftur orðin sú atvinnugrein sem skapar mestu gjaldeyristekjurnar.“ Vonast til að orðsporið hafi ekki laskast lRíkisstjórnin ræddi umástandið áKeflavíkurflugvellilHafði áhrif á yfir 20 þúsund farþega Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is STARFSHÓPUR SKIPAÐUR Atburðarásin greind Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur skipað starfshóp til að semja drög að áætlun til að takast á við aðstæður eins og sköpuðust á Reykjanesbraut um helgina. Starfshópurinn, sem á að skila niðurstöðu innan mánaðar, verður skipaður fulltrúum frá Vegagerðinni, ríkislögreglu- stjóra og lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Fulltrúi frá innviðaráðu- neytinu mun stýra vinnu hópsins. Þau atriði sem hópnum ber að hafa í huga í sinni vinnu eru meðal annars skipulag á snjómokstri á Reykjanes- braut, ákvarðanir um hvenær skuli loka og opna fyrir umferð, hver beri ábyrgð á því að fjarlægja bíla sem sitja fastir, upplýsingagjöf til almenn- ings og hagaðila, yfirfara hlutverk og verkaskiptingu aðila og meta þörf á breytingum á lögum eða reglum. Þeir EinarÓlafsson ogÓskarPáll Sveinsson lögðu síðdegis í gær, annað árið í röð, af stað í skíðagöngu til styrktar Ljósinu. Hófu þeir gönguna í gær klukkan 16 ogmunu ganga til klukkan 10 aðmorgni í dag, en Ljósið ermiðstöð fólks semhefur greinst með krabbamein og aðstandendur þess. Einar ogÓskar tóku upp á þessu í fyrrameð góðumárangri. 21. desember varð fyrir valinu sem stysti dagur ársins en gengið er framað sólarupp- rás 22. desember. Þá var gengið í Bláfjöllum en að þessu sinni renna þeir félagar sér á skíðumviðHvaleyrarvatn. Ganga í gegnum alla nóttina og inn í ljósið fyrir Ljósið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.