Morgunblaðið - 22.12.2022, Síða 30

Morgunblaðið - 22.12.2022, Síða 30
FRÉTTIR Innlent30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2022 Skeifan 8 | Kringlan | Hafnartorg Gallery | Glerártorg | casa.is SoyWitch ilmkerti í jólapakkann 250 ml – 2.990 kr. Hvað er dásamlegra en að fara fram úr rúminu fyrir allar aldir og drífa sig af stað í öllum veðrum út í sundlaug og hlaupa þar hálfnakinn í frostinu út í laug að synda? Vinir Dóra er hópur morgunhana sem finnst það vera toppurinn á tilver- unni. Hópurinn hittist alla virka daga í Vesturbæjarlauginni og syndir, spjallar í heitu pottunum og gerir síðan Müllersæfingar á sund- laugarbakkanum – í öllum veðrum. Vinir Dóra hafa hist í lauginni í 40 ár og á þeim tíma hafa einhverjir helst úr lestinni og nýir bæst við. Fyrir fjörutíu árum var Halldór Bergmann Þorvaldsson að vinna við hús vestast við Sólvallagötuna og þá hafði hann fyrir vana að fara í laugina áður en hann byrjaði að vinna. „Stuttu eftir að ég byrjaði að synda slasaðist ég og var frá í níu vikur. Þá var ég sendur niður í Brautarholt til Stefáns Hallgríms- sonar frjálsíþróttamanns sem rak þar líkamsræktarstöð og þar lærði ég þessar Müllersæfingar. Svo þegar ég var orðinn þokka- legur þá fór ég aftur að synda og fór að gera Müllersæfingarnar á sundlaugarbakkanum. Einn daginn kemur maður til mín í lauginni og spyr hvort hann megi ekki gera æfingarnar með mér, sem var sjálfsagt mál. Smám saman fór að fjölga í hópnum, sem við fórum að kalla Vini Dóra. Fyrst hlupum við alltaf í kringum laugina og gerðum svo æfingarnar en núna gerum við bara æfingarnar. Þær eru líka mjög skemmtilegar og við syngjum líka í sumum æfingunum.“ Morgunverður á Bessastöðum Í fyrstu voru Vinir Dóra karla- klúbbur en í kringum 1990 fór hópurinn að stækka verulega og í dag eru bæði karlar og konur virkir þátttakendur. „Ef ég þarf að fara eitthvert þá taka þær við, stelpurn- ar,“ segir Dóri sem allir í hópnum kalla foringjann. „Þessi hópur er líka búinn að vera mikill vinahópur alveg frá upphafi og við hittumst mikið fyrir utan laugina. Við förum í Kaffivagninn úti á Granda eftir sund, stundum tvisvar í viku en alltaf á föstudögum,“ segir Dóri og segir að einnig sé skipst á að bjóða heim í morgunverð eftir sundið. Í dag eru Vinir Dóra hátt í 30 manns og foringinn segir að Vigdís Finnbogadóttir forseti hafi verið hluti af hópnum lengi vel og hitti þau oft enn fyrir utan laugina. „Hún kemur inn í hópinn á seinna skeiði sínu sem forseti, upp úr 1990. Á þeim árum fórum við alltaf einu sinni í mánuði í Bláa lónið. Í eitt skiptið fórum við tíu saman og syntum í lóninu og ég var að keyra hópinn til baka á tíu manna bíl. Þegar við erum að sigla inn í Hafnarfjörð segir Vigdís: „Heyrðu Dóri, geturðu komið við í Fjarðar- kaup aðeins. Ég ætla að skjótast inn og kaupa rúnstykki og bjóða ykkur í morgunverð á Bessastöð- um.“ Svo setti hún á sig slæðu svo hún þekktist síður, fór inn og svo keyrðum við beint á Bessastaði í morgunkaffi. Það var mjög gaman. Hún er svo blátt áfram og skemmti- leg, hún Vigdís.“ Fréttir frá 16. og 17. öld Foringinn segir að Litlu jólin séu haldin á hverju ári úti á Granda- garði og þá mæti margir félagar sem stundi ekki sundið reglulega lengur, alveg upp í 60 manns. Þar eru veittar viðurkenningar, sungin jólalög undir harmonikkuleik og fleira skemmtilegt. „Svo tók ég upp á því á árum áður, þegar einhver bauð í morgunverð á föstudegi, að koma við í blómabúð og færa frúnni á heimilinu blómvönd. Við erum með nokkrar þannig skemmtilegar hefðir og á stórafmælum fá með- limir hópsins Sundlaugarbikarinn.“ Ég setti ákveðna reglu þegar ég stofnaði þennan hóp, að það væri bannað að tala um pólitík. Gylfi (Kristinsson) segir að í pottinum sé farið yfir nýjustu fréttir frá 16. og 17. öld, og aðrir kalla pottinn „Gáfu- mannapottinn“, en fyrst og fremst reynum við að hafa gaman af. Við tölum um daginn, hvað við erum að gera, rannsóknir og aðgerðir, börn- in okkar og þar fram eftir götun- um.“ Það er víst nóg af pexi í þessu þjóðfélagi í dag.“ Reglan hefur eflaust verið skynsamleg því innan hópsins eru nokkrir fyrrverandi ráðherrar, eins og Jón Kristjáns- son, Kolbrún Halldórsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir. „Þá verða allir að hlýða“ Hópurinn er orðinn heimsfrægur og var hluti af Sundlaugasögum Jóns Karls Helgasonar. Einnig kynntu Vinir Dóra kvikmyndir úr heita pottinum á nýafstaðinni kvikmyndahátíð í Hörpu þar sem Evrópsku kvikmyndaverðlaunin voru veitt. Nú býr Dóri í Mosfells- bænum en telur það ekki eftir sér að keyra í Vesturbæinn fimm sinn- um í viku. „Ég stunda sundlaugina í Mosó um helgar og á líka góða vini þar, en við erum orðin svo mikill vinahópur í Vesturbænum að það væri ekki hægt að hætta því.“ Halldór segir að sundið og útiver- an sé mikil heilsubót og efli hugann. „Svo mýkist maður upp í pottinum. Við syndum minna en við gerðum, en erum meira að spjalla í pottinum og í gufu. En þegar klukkan slær 7:25 þá kalla ég að það sé kominn tími og þá gerum við Müllersæf- ingarnar. Ég kalla bara einu sinni og þá verða allir að hlýða,“ segir Dóri foringi hress í bragði. Hann segir sundið vera allra meina bót. „Ég fór í mjaðmaaðgerð í sumar, en er orðinn eins og unglingur. Svo má ekki gleyma að brosa framan í lífið, það hefur svo mikið að segja.“ lVinir Dóra hafa hist í Vesturbæjarlauginni í 40 árl Sund og MüllersæfingarlÓmetanleg vin- átta og samveralHafa synt út um allt land og víðarlForseti og ráðherrar hlýða foringjanum Aldrei minnst á pólitík í pottinum Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is Müllersæfingar Vinir Dóra stunda æfingarnar í lauginni sem kenndar eru við Jørgen Peter Müller hinn danska.Foringinn Ragna Þórhallsdóttir, foringinn Halldór og Unnur Hansdóttir. Húsavík Vinir Dóra í sjóböðunum á Húsavíkurhöfða sumarið 2020 en árlega eru farnar tvær ferðir út á land.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.