Morgunblaðið - 22.12.2022, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 22.12.2022, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2022 Hágæða fóður fyrir hunda og ketti Gott fyrir meltingu Gott fyrir liðina Gott fyrir feldinn Bætir ofnæmis- kerfið L i f and i v e r s lun fy r i r ö l l gæ ludýr Kauptúni 3, Garðabæ | Skeifan 9, Reykjavík | Sími 564 3364 | www.fisko.is | Opið virka daga 10-19, laugardag 10-18, sunnudag 12-18 100% NÁTTÚRULEGAR AFURÐIR 20% FERSKT KJÖT ..kíktu í heimsókn Nú eru margir (vonandi) búnir að klára stærstan hluta af undirbúningnum fyrir hátíð ljóss og friðar og einhverjir jafnvel svo heppnir að geta slakað á og gert eitthvað skemmtilegt og laust við stress. Þá má nýta tímann í ýmislegt skemmtilegt til að full- komna jólaskapið fyrir aðfangadag. 1. Nostraðu við innpökkunina Lærðu nýjar aðferðir við að pakka inn síð- ustu jólagjöfum, til dæmis af YouTube. Stilltu á jólastöðina JólaRetró og nostraðu við hvern pakka þannig að eftir honum sé tekið undir jólatrénu. Ekki spillir fyrir að nota umhverfis- vænan pappír og nóg af skrauti. Svo má alltaf gera jólakortin enn persónulegri enda jólin tími til að dreifa ást og kærleika. 2. Búðu til snjókarl Nú þegar snjórinn er loksins kominn og stormurinn liðinn hjá er um að gera að nýta tímann fyrir jólin og búa til snjókarl með börnunum. Það er ágætt en alls engin nauðsyn að nota börnin sem afsökun fyrir þessari jólalegu iðju. Ekki gleyma að taka mynd af karlinum. Það er nauðsynlegt að eiga sönnun fyrir meistaraverkinu sem jafnvel er hægt að deila á samfélagsmiðlum og græða nokkur læk. 3. Gerðu heitt súkkulaði með smáÚMF! Það er fátt sem slær betur í gegn en heitt súkkulaði í kuldanum sem nú ríkir í aðdrag- anda jóla. Enn betra er að breyta aðeins til og prófa einhvern nýjan snúning á drykkinn gómsæta. Við mælum með uppskriftum af matarvefnum en þar má til að mynda finna ljúffenga uppskrift að heitu pipp-súkkulaði frá Evu Laufeyju og aðra uppskrift að heitu súkkulaði með Stroh frá Lindu Ben. Við tök- um fram að það er nauðsynlegt að hafa jóla- legar smákökur eða piparkökur til að kjamsa á með súkkulaðinu. 4. Horfðu á jólamynd Eftir súkkulaðigerðina er tilvalið að skella á góðri jólamynd og sötra súkkulaðið. Þá er nauðsynlegt að horfa á eina klassíska –mynd eins og It's A Wonderful Life (1946) (sem er að okkar mati mynd sem allir verða að horfa á einhvern tímann á lífsleiðinni, enda kosin ein besta jólamynd allra tíma), Die Hard, A nightmare before Christmas, Home Alone eða Christmas Vacation en einnig er sniðugt að nýta tímann og horfa á allar Harry Potter- myndirnar eða Hringadróttinssögu-þríleik- inn. Þá er aldrei betri tími til að skemmta sér yfir einni klisjukenndri og lélegri rómantískri jólamynd. Best er að fylgjast með því hvernig jólaskrauti og öðru sem tengist jólunum er troðið í nánast hvern einasta ramma (við vitum því ekki hvort hægt er að mæla með drykkjuleik í þessu samhengi). Það er hægt að finna nokkrar slíkar á Netflix, til að mynda eru A Christmas Prince-myndirnar, The Knight Before Christmas og The Princess Switch á listanum yfir bestu lélegu jólamynd- ir Netflix. 5. Taktu miðbæjarrölt með heitt súkkulaði Fáir staðir eru jafn jólalegir og miðbær- inn, sérstaklega þegar snjórinn prýðir bæinn. Klæddu þig vel (föðurland, dúnúlpan og allur pakkinn) og njóttu þess að rölta um miðbæ- inn, skoða jólaljósin, jólaköttinn og fáðu þér snarl og heitt súkkulaði í matarvögnunum sem finna má þar. Við mælum sérstaklega með Hátíðarvagninum þar sem finna má jól í bolla, meira að segja með Hockey Pul- ver-bragði. 6. Lesa eða hlusta á góða bók Hvort sem þú ert meira fyrir að lesa eða hlusta á bækur eru jólin sannarlega tíminn fyrir lestur og úr nægu að velja í jólabóka- flóðinu í ár. Hver segir að það megi ekki byrja fyrir jólin á jólabókalestrinum? 7. Gerðu eftirrétt fyrir jólin Það er nauðsynlegt að vera með góðan eftirrétt á aðfangadagskvöld. Við mælum með geggjaða jólaeftirréttinum sem vann eftirréttakeppni ársins hjá K100 og Matar- vefnum, piparmyntu-marengsköku, sem finna má á matarvefnum á mbl.is undir leitarorðinu „yfirliðsvaldandi marengs“. 8. Hristu gjafirnar undir trénu Við mælum kannski ekki beint með því að hrista pakkana harkalega en það getur verið spennandi að taka sér ákveðinn tíma til að raða pökkunum undir jólatréð – og þreifa vel á þeim í leiðinni. 9. Gefðu smáfuglunum jólamat Fuglarnir eiga erfitt með að finna sér mat í frosti, fannfergi og myrkri en mikil orka fer í það hjá litlu skinnunum að halda á sér hita. Framkvæmdastjórí Fuglaverndar mælir með því, á mbl.is, að gefa fuglunum tvisvar á dag, við birtingu og áður en rökkvar. Sólblómafræ og fíkjukorn eru góð fyrir snjótittlinga og auðnutittlinga (sem þó vilja ekki éta beint af jörðinni). Þrestir og starar vilja helst feitmeti eins og tólg, kjötsag og fitu blandað við korn, mjöl eða brauð. Einnig eru ávextir, til dæmis rúsínur, vinsælir. Fleiri upplýsingar má finna á heimasíðu fuglaverndar og í facebookhópn- um „Fuglafóðrun“. 10. Púslaðu Það er fátt meira kósí en að púsla í aðdrag- anda jóla. Þá er eiginlega nauðsynlegt að vera búinn að fjárfesta í góðum jólailmi og skella jólatónlist, til dæmis af fyrrnefndri JólaRetró, í spilarann. 11. Gerðu minningatré eða krukkumeð minningum ársins fyrir fjölskylduna Hjá mörgum snúast jólin um fjölskylduna. Hvað er þá betra en að vera búinn að undir- búa eftirminnilega fjölskyldustund með því að skrifa niður alls konar skemmtilegt sem gerðist á árinu. Sniðugt er að fara í gegnum myndirnar í símanum til að rifja upp árið. Fyrir næsta ár er gott að vera með sérstakan stað í símanum tileinkaðan slíkum minning- um. Nú eru aðeins tveir dagar til aðfangadags og margir búnir að klára allt sem þarf að gera fyrir jólin. Þá er nægur tími til að njóta síðustu daganna í kósíheitum. K100 tók saman nokkrar hugmyndir að því sem hægt er að gera fram að jólum. Búin að öllu? Hvað nú? Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Ljósmynd/Colourbox JólastundÞað er fátt dásamlegra en að hafa tíma til að dunda sér í róleg- heitunum fyrir jólin. Til dæmis að ná að nostra við síðustu jólagjafirnar. Ljósmynd/Colourbox Kerti og spil?Það getur verið spennandi að fikta í pökkunum. Morgunblaðið/RAX SnjórNúer tími til að gera snjókarl. Morgunblaðið/Ómar Frost er úti … Smáfuglarnir eru margir svangir í frosti og snjó. Morgunblaðið/Golli Afslöppun Það er æði að skella á einni jólamynd. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kósí Það er kósí að fara í Hátíðarvagninn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Namm Girnó eftirréttir eru hluti af jólunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.