Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 22.12.2022, Page 55

Morgunblaðið - 22.12.2022, Page 55
Bókari - launafulltrúi Idex ehf og Idex gluggar ehf óska eftir að ráða starfsmann í fullt starf. Idex nafnið á sér yfir 30 ára sögu á íslenskum byggingamarkaði, þekkt fyrir þá gæðavöru er fyrirtækið hefur að bjóða íslenskum bygginga- markaði. Starfssvið: Öll almenn bókhalds-, innheimtu-, toll- og launavinnsla. Samskipti við stjórnendur og endur- skoðanda fyrirtækisins Hæfniskröfur: • Góð og haldbær þekking á bókhaldi, innheimtu, tollskjalagerð og launavinnslu. • Rík þjónustulund og framúrskarandi mannleg samskipti. • Metnaður til að skila góðri vinnu. • Nákvæmni og hugkvæmni. • Reynsla í skilum uppgjörs til endurskoðanda er skilyrði. Umsóknum skal skilað fyrir 1. janúar 2023 með tölvupósti til idex@idex.is Verkefnastjórnun hönnunarsamninga Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 13. janúar 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Allar umsóknir eru trúnaðarmál og verða nöfn umsækjenda ekki birt opinberlega. Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir að ráða einstaklinga til að sinna verkefnastjórnun hönnunarsamninga. • Verkefnastjórnun hönnunarsamninga fyrir hönd verkkaupa • Samstarf við ráðgjafa s.s. hönnuði og notendur húsbygginga • Áætlana- og kostnaðareftirlit • Yfirferð og eftirfylgni á framvindu hönnunarsamninga • Áhættugreiningu og áhættuvöktun • Hönnunarrýni verklýsinga og teikninga • Fagsjónarmið á hönnunarlausnum • Gerð verkefnaáætlana Við leitum að aðilum til að annast m.a.: Helstu menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði arkitektúr, byggingar-, verk- og tæknifræði, eða önnur sambærileg menntun • Minnst fimm ára reynsla af stjórnun eða virkri þátttöku í hönnunar- eða framkvæmdaverkefnum • Þekking á opinberum framkvæmdum er kostur • Reynsla af tíma- og fjárhagslegri stýringu verkefna • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Góð færni í íslensku í ræðu og riti NLSH tekur m.a. þátt í verkefnastjórn á þróunar-, hönnunar- og framkvæmda- verkefnum vegna húsnæðis og innviða á nýjum Landspítala m.a. gatnagerðar og lóðar við Hringbraut. Félagið, sem er að fullu í eigu ríkisins, er í samstarfi við fjölmarga hagsmuna- aðila. Fjöldi ráðgjafa og verktaka starfar fyrir félagið. Nánari upplýsingar um NLSH má finna á: www.nlsh.is. Vefforritari á mbl.is Meðal helstu verkefna er forritun, nýsmíði og viðhald á vefjum mbl.is Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði eða reynsla sem nýtist í starfi. • Þekking á Python og reynslu af einhverjumMVC- miðuðu vefkerfi, t.d. Django. • Reynsla af framendaforritun (HTML, CSS og Javascript). • Er framsækinn og tileinkar sér bestu mögulegu tækni hverju sinni og finnur nýjar og betri leiðir til að leysa verkefnin. • Gagngrýnið hugarfar, sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum. • Metnaður fyrir smáatriðum í viðmóti, virkni og hönnun vefja. • Góð mannleg samskipti og á auðvelt með að vinna í hópum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Árni Matthíasson, arnim@mbl.is Umsóknarfrestur er til og með 22. desember nk. Umsóknum skal skilað á arvakur.is/storf með starfsferilskrá og kynningarbréfi. Árvakur, sem rekur meðal annars Morgunblaðið, mbl.is og K100, leitar að metnaðarfullum vefforritara hjá mbl.is, mest sótta vef landsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.