Morgunblaðið - 22.12.2022, Page 66

Morgunblaðið - 22.12.2022, Page 66
MENNING66 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2022 Í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands samþykkti Alþingi 17. júní árið 2018 að ganga til samstarfs við Hið íslenska bókmenntafélag (HÍB) um út- gáfu tveggja ritverka. Annað var yfirlitsverk um sögu íslenskra bókmennta en hitt þessi tilkomumikli „hlunkur“, glæisilega hannað og frágengið bókverk sem var einstaklega vel til fundið að taka saman og fjallar um Þingvelli í íslenskri myndlist. Þann táknum hlaðna stað sem Páll Valsson kallar í texta sínum „hjartastað þjóðar“ og segir að hvergi á íslandi sé tilfinningin fyrir hinu „íslenska“ sterkari en einmitt þar. Og svo sannarlega hafa íslenskir listamenn skapað allrahanda myndverk á og um Þingvelli, það sýnir fjölbreyti- legt úrvalið, ein 269 verk eftir 104 listamenn. Fjöldi klassískra og fyrirsjáanlegra myndverka í þessu samhengi en blessunarlega líka önnur og óvæntari, meðal annars eftir einfara í listinni og ólíka sam- tímalistamenn. Við upphaf bókar ávarpa lesendur þeir Steingrímur J. Sig- fússon, forseti Alþingis þegar samstarfið við HÍB hófst – hann rekur tilurð þess, og Sverrir Kristinsson, formaður ritnefndar, sem segir að HÍB hafi „um árabil haft hug á því að gefa út veglega listaverkabók með myndum frá Þingvöllum eftir helstu myndlistarmenn þjóðarinn- ar“. Megintextana rita síðan bók- menntafræðingurinn Páll Valsson og listfræðingurinn og ritnefndar- maðurinn Aðalsteinn Ingólfsson. Það var vel til fundið að fá Pál að verkinu, höfund ævisögu Jónasar Hallgrímsson, sem reifar fallega aðkomu lykilskálda og rithöfunda að ímynd Þingvalla á seinni tíð, þar sem „fléttast órjúfanlega saman hin sögulega vitund og stórbrotin nátt- úran sem talar svo sterkt og skýrt til hvers sem þangað kemur.“ Í upplýsandi og vel stílaðri grein sinni útskýrir Aðalsteinn síðan nálgunina við valið á myndlistinni í bókina en í henni er „haldið til haga helstu Þingvallamyndum eftir fremstu listamenn landsins, fyrr og nú, einkum myndum þeirra tveggja listamanna sem oftast hafa fjallað um staðinn, Ásgríms Jónssonar og Jóhannesar Kjar- vals. Um leið er hugað að framlagi svokallaðra „alþýðumálara“.“ Þá segir að myndasöfnun fyrir bókina einskorðaðist við listamenn búsetta á landinu, sem útilokar fjölda áhugaverðra verka erlendra mynd- listarmanna sem hafa allt frá 18. öld gert myndverk á Þingvöllum – en skiljanlega þurfti að setja þessu bókverki ramma. Fengur er að upplýsingum um það hvenær listamenn hafa unnið á Þingvöllum – til að mynda á hvaða árum Kjarval var þar að mála, og hversu margir lögðu á það stund á hverju tímabili. Aðalsteinn segir að sú könnun hafi leitt í ljós að frá um 1863 til 2021 hafi á annað hundrað myndlistarmanna notað Þingvelli sem viðfang fyrir list sína, og aðeins um fjórðungur konur. Þar kemur til dæmis á óvart að frá síðustu alda- mótum og þar til á síðasta ári „hafa nokkrir tugir ungra listamanna komið til Þingvalla til þess að mála þar myndir.“ Þessi gildishlaðni staður sem öðlaðist svo mikið vægi í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og rómantíkinni laðar listamenn því ennþá að, til að vinna á þann klassíska hátt. Aðalsteinn fjallar um þá athyglis- verðu staðreynd að hér á landi voru ljósmyndarar á undan listmálurum til að skrá markvisst íslenskt lands- lag – „Ýmislegt bendir til þess að um miðja 19. öldina hafi ljósmyndin fyllt upp í ákveðið tómarúm í lítt burðugri sjónmenningu Íslendinga, áður en málaralistin skaut rótum á landinu fyrir alvöru,“ skrifar hann. Þar var Sigfús Eymundsson, fyrsti íslenski ljósmyndarinn og enn einn sá besti, mikilvægur frumkvöðull og Aðalsteinn segir hann réttilega ekki bara hafa verið frumkvöðlum málaralistarinnar hér fyrirmynd „heldur var hann helsti „ímyndar- smiður“ Þingvalla út á við“. Í ljósi þess mikilvægis sem Sigfúsi er gefið er óskiljanlegt hvers vegna þrjú verka hans eru aðeins birt lítil með grein Aðalsteins en ekkert með hinum útblásnu myndverkum aftar. Vitaskuld á til dæmis mynd hans af Öxarárfossi og hornaflokki Helga snikkara frá 1874 að vera þar á heilli síðu. Og fleiri til. Slík kjánaleg aðgreining klassískra ljósmynda og annarrar myndlistar hefur bless- unarlega horfið á síðustu áratugum úr söfnum og öðrum myndlistar- stofnunum Vesturlanda og það er sérkennilegt sjá eima eftir af henni í þessu annars glæsilega verki. Myndlistarhluti bókarinnar er annars áhrifaríkur, upplýsandi og á margan hátt ævintýralegt að fara gegnum. Víða hefur verið leitað fanga og er það vel; í skrifum Aðalsteins kemur fram að reynt var að skoða eins mörg verk frá Þingvöllum og frekast var kostur. Auk myndefnis sem er skráð hjá opinberum söfnum eru margir ritnefndarmanna vel kunnugir verkum frá staðnum sem eru í einkaeigu og gátu valið úr þeim. Þá var ítrekað auglýst eftir ábending- um frá almenningi um áhugaverðar Þingvallamyndir. Skoðuð voru yfir þrettán hundruð verk og þessi 269 valin. Aðalsteinn segir stefnt að því að birta öll verkin á vefsvæði í framtíðinni og er það tilhlökkun- arefni. Ritnefnd þurfti að koma mynd- verkunum í eitthvert kerfi eða kafla og fer þá leið að flokka þau eftir því hvaða staði eða svæði þau sýna – við Öxará, í Almannagjá, í átt að Ármannsfelli og svo framveg- is, og hafa síðan aldursröð innan hvers kafla. Kemur þetta listaræna „ferðalag um gjörvalla Þingvelli“ ágætlega út. Verk listamanna sem mest unnu á svæðinu, eins og Kjarvals og Ásgríms eru skiljanlega áberandi. Elstu verkin eru frá 1883, eftir Þóru Pétursdóttur Thorodd- sen, og eftir aldamótin 1900 tóku listamenn að streyma á staðinn og túlka ólík sjónarhorn hans á margs- konar vegu, allt frá rómantískri túlkun frumherjanna að stórkostlgu ljósmyndaverki og sannkölluðum helgimyndabrjót Ragnars Kjartans- sonar sem sýnir fáklæddar konur á leiði Jónasar Hallgrímssonar. Svo örfá og handahófskennd dæmi séu tekin þá njóta verk fulltrúa veflistar sín til að mynda vel, þeirra Herdís- ar Tómasdóttur og Louise Harris, pólitíkin í verkum Gylfa Gíslasonar er athyglisverð, sprunguljósmynda- röð Ólafs Elíassonar tilkomumikil og skemmtilegt er að sjá ólíka úrvinnslu Hreins Friðfinnssonar, Kristins E. Hrafnssonar og Krist- ínar Jónsdóttur frá Munkaþverá á formi Þingvallavatns. Sem eitt og ákveðið sjónarhorn á íslenska listasögu er þetta mjög athyglisvert úrval, að allt þetta fólk hafi skapað svo margbreytileg verk á sama staðnum er í raun stórmerkilegt. Og hvernig öll reyna að finna sinn vinkil, að beita sinni aðferð á túlkunina á upplifunum og hugsunum um sögulega mikil- vægan staðinn, þann helgireit sem Þingvellir vissulega eru þjóðinni. Helgistaður hylltur, togaður og teygður BÆKUR EINAR FALUR INGÓLFSSON Myndlist Þingvellir í íslenskri myndlist  Textar: Aðalsteinn Ingólfsson og Páll Valsson. Ritnefnd: Sverrir Kristinsson, Aðalsteinn Ingólfsson, Harpa Þórsdótt- ir, Ólöf Kristín Sigurðardóttir og Æsa Sigurjónsdóttir. Hönnun og umbrot: Helga Gerður Magnúsdóttir. Hið íslenska bókmenntafélag, 2022. Innbundin í stóru broti, 375 bls. Helgimyndabrjótur „Morgunn á Þingvöllum“ frá 2007 eftir Ragnar Kjartansson sást fyrst á einni plötu Megasar. Blankalogn Almannagjá, án ártals, eftir Gísla Jónsson (1878-1944). ÞingvallamyndirMálverk eftir Brynjólf Þórðarson og Jón Stefánsson. SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.