Morgunblaðið - 22.12.2022, Page 68

Morgunblaðið - 22.12.2022, Page 68
MENNING68 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2022 Bíldshöfða 9 - 517 3900 | Trönuhrauni 8 - 565 2885 | stod.is GÆÐASKÓR Á LITLA FÆTUR Þ essi saga gerist að mestu á upphafsárum 20. aldar þegar spíritistar hösluðu sér völl hér á landi með stofnun Tilraunafélagsins 1905; aðalforgöngumenn þess voru Einar H. Kvaran, Björn H. Jónsson síðar ráðherra, sr. Haraldur Níelsson o.fl. Það kostaði sitt að vera í félaginu og því voru meðlimir einkum hinir betur megandi; nefna má Skúla Thoroddsen alþingismann, Pál Einarsson síðar borgarstjóra og Björn Kristjánsson kaupmann. Opinberlega galt kirkjan varhug við spíritisma, en margir prestar aðhylltust þó stefnuna. Enn er það svo að Íslendingar eru meðal trúuðustu þjóða á annað líf hvaða skoðun sem þeir síðan hafa á sambandi við framliðna. Tilraunafélagið var í raun stofnað kringum Indriða Ind- riðason miðil sem fór mikinn. Reist var sérstakt hús undir starfsemina við Þingholtsstræti þar sem Indriði bjó. Spíritismi er oft kallaður andatrú því margir trúðu því að andinn lifði þótt holdið fúnaði og hægt væri að ná sambandi við hina látnu fyrir milligöngu miðils. Ýmsir höfðu starfsemina í flimtingum, töl- uðu um draugafélagið, uppnefndu fundarstaðinn Andalúsíu o.fl. Og ekki vantaði sögurnar, uppá- komurnar. Borð svifu upp undir loft, hljóðfæri þeyttust um sali, ljós leiftruðu og ýmis hljóð heyrðust. Handleggur var tekinn af Tindra og tengdur aftur. Sagt var að drukkn- aður Eyjamaður ofsækti miðilinn og menn skiptust á að vaka yfir hon- um, svo nokkuð sé nú nefnt. Ýmsir töldu að allur þessi fyrirgangur renndi stoðum undir frásagnir af kraftaverkum Biblíunnar (255). Sagan er reist á heimildum og margar persónur bera sín réttu nöfn, en nokkrir þátttakendur fá önnur heiti en þeir báru. Aðal- persóna bókarinnar, Guðmundur Hannesson læknir, heitir t.d. Jann- es, kona hans fær nafnið Mekkín, Haraldur verður Húnbogi Níelsson og Indriði miðill Tindri Jónsson; dó ungur. Dr. Guðmundur Finn- bogason heitir Guðmann. Jannes er miðlægur í frásögninni og Mekkín kona hans. Hann og þau hjón bæði eru efasemdarmenn um „andana“; ávallt „skulu íslenzkir taka öðrum „þjóðum“ fram í einhug um það, er eigi skiptir nokkru máli“ (9). Hann lendir nú samt í því að rannsaka starfsemi Tindra, millibilsmanns- ins, með miklum tilfæringum sem sumar hverjar eru býsna skondnar. Jannes trúði að eftir dauðann „tók ekkert við nema myrkrið“ (143). En niðurstaða hans var óljós. „Honum hafði mistekist að afsanna dularfull fyrirbrigði og orð yrðu að standa. Þar með var ekki sagt að alt væri satt og rétt sem sagt var um orsak- irnar. En einhver andskotinn var það“ (289). Inn í þetta allt saman blandast pólitík og fjögur Reykja- víkurblöð skiptust til helminga á sinn málstaðinn hvor og deildu hart. Sambandslagasamningurinn var á döfinni og flestir spíritistarnir vildu sem minnst hafa saman við Dani að sælda. Þar áttu þeir sam- leið með Jannesi sem vildi strax slíta á öll tengsl við sambandsþjóð- ina. Jannes, alias Guðmundur, hafði ríka skoðun á flestum samfélags- málum. „Lotning fyrir valdi getur af sér hugsunarleysi“ (121). Lýðræði væri gott ef ekki væru allar þessar kosningar þegar menn níddu hver annan niður. Hann barðist fyrir hreinlæti og skrifaði einna fyrstur manna um skipulag bæja af mikilli framsýni, byggði sjálfur merki- legt hús við Hverfisgötu 12 sem enn stendur. Jannes lætur ekki skíra börn sín, finnst trúarbrögð einskis nýt. Hann lætur þó undan frúnni um síðir, en ekki var hann viðstaddur skírn sonar síns. Hann hóf fyrstur manna mannfræðirann- sóknir hér á landi, mældi menn hátt og lágt og aðhylltist mannkynbætur, góðkynjun eins og það var stundum kallað. Björn Jónsson ráðherra vildi hins vegar rækta hér upp þjóð sem yrði „einstök ofurþjóð“, „andleg- ur leiðtogi þjóðanna“ – ef Tindri eignaðist börn (149). Íslendingar voru heimalningar á þessari tíð. „Heimahagarnir voru á stærð við vasaklút“ (14). Menn deildu um réttmæti þess að rannsaka miðla og starfsemi þeirra, en féllust þó á að hér væri rannsókna- og hugsjóna- frelsi (67). Söguþráðurinn er fjörlegur eins og efnið býður upp á. Stafsetning lýtur ýmsum reglum eins og raunin var á sögutíma og að vísu lengur. Mekkín er flámælt þegar henni býður svo að mæla og litar það stafsetninguna, en of langt er geng- ið í því. Bráðskemmtileg frásögn af veikindum Konkordíu er reist á raunverulegum atburði þegar Guðmundur Hannesson sneri við heila konu með þykjustuaðgerð og var hún alsæl upp frá því. Bókarkápa Ragnars Ólafssonar er bráðfalleg og hugmyndarík. Guðmundur Hannesson átti apa og var hann ljósmyndaður í bandi fyrir dyrum á heimili þeirra hjóna á Akureyri. Vísar myndin til þess að allt var þetta eitt apaspil? Eða varðar hún veg að mannkynbóta- hugmyndum Guðmundar? Á bókarkápu eru innbrotnir flipar og á þeim eru litmyndir af olíu- málverkum eiginkonu Guðmundar, Karólínu M.S. Ísleifsdóttur Breið- fjörð, en Mekkín sögunnar fæst einmitt við málverk. Millibilsmaður er forvitnileg bók um skrítna tíma og umdeildar skoðanir þar sem menn gengu hiklaust til verks, fullir sannfæringar um líf í margvíslegum myndum – eða ekki. Að sínu leyti er Jannes sögunnar millibilsmað- ur eins og Tindri en með öðrum formerkjum. Villtir andar á sveimi? BÆKUR SÖLVI SVEINSSON Skáldsaga Millibilsmaður  Eftir Hermann Stefánsson. Sæmundur 2022. Kilja í stóru broti, 311 bls. Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfundurinn „Millibilsmaður er forvitnileg bók um skrítna tíma og um- deildar skoðanir,“ segir gagnrýnandi um sögu Hermanns Stefánssonar. Tónlistargagnrýnandi The Times, RichardMorrison, eys píanóleik- arann Víking Heiðar Ólafsson og þýska barítóninnMatthias Goerne lofi í nýjum dómi um tón- leika þeirra félaga sem fram fóru þann 9. desember síðastliðinn í Royal Festival Hall í Lundúnum. Víkingur og Goerne fluttu verk eftir Schubert, Schumann and Brahms sem öll áttu það sam- eiginlegt að hverfast um þungar tilfinningar; dauða, ástarsorg eða brostna drauma. Morrison lýsir með aðdáun því afreki á sviði túlkunar að láta jafn þunga efnisskrá ganga upp. Tónlistar- mennirnir hafi nefnilega haft „fötufylli“ af þeirri hugkvæmni á sviði túlkunar sem til þyrfti. Hann segir einnig aðdáunarvert að þeir hafi leikið tuttugu lög í röð án þess að yfirgefa nokkurn tímann sviðið eða taka sér hlé. Morrison segir tónlistarmenn- ina tvo vera sannar stjörnur klassískrar tónlistar. Hann kallar Goerne keisara sinnar kynslóðar þegar kemur að söngljóðahefð- inni og segir Víking virðast geta sveipað allt sem hann spilar töfraljóma. Því hafi það ekki komið á óvart að tónleikarnir hafi verið grípandi frá upphafi til enda. Gagnrýnandinn segir Vík- ing hafa framkvæmt smágerð kraftaverk nánast með hverjum hljómi. Hann hafi sýnt tónræna fjölbreytni sem hafi hæft hverri ljóðrænumynd sem dregin hafi verið upp en einnig hamagang og óvæntar áherslur sem gæfi vel til kynna þá nístandi angist sem liggur að baki hinum blekkjandi glæsibrag. ragnheidurb@mbl.is lTheTimes lofarVíkingHeiðar Framkallar „smá- gerð kraftaverk“ Morgunblaðið/Einar Falur Lofaður Gagnrýnandi The Times segir Víking Heiðar stjörnu. Málarinn Philip Pearlstein allur Bandaríski myndlistarmaður- inn Philip Pearlstein, sem sneri á sínum tíma baki við ríkjandi abstrakt-expressjónisma í myndlist heimalandsins og fór að mála portrettmyndir af nöktum módelum sem slógu í gegn og höfðu mikil áhrif, er látinn, 98 ára að aldri. Listfræðingar segja að Pearl- stein hafi átt stóran þátt í því að endurvekja áhuga á fígúratífu málverki en verk hans hafa verið eftirsótt af söfnurum og eru í eigu helstu listasafna vestanhafs. Eftir að Pearlstein lauk her- skyldu árið 1946 hóf hann nám í myndlist og hönnun í Carnegie Mellon-skólanum í Pittsburg. Þar var hann í bekk með Dorothy Cantor, sem varð eiginkona hans, og AndyWarhol. Þeir Pearlstein ogWarhol urðu vinir og 1949 fluttu þeir til New York og voru samleigjendur um hríð. Málverk Pearlsteins urðu með tímanum sýnd víða og voru til að byrja með í anda abstrakt- expressjónismans. En þegar hann var orðinn prófessor við Pratt Institute í Brooklyn fyrir 1960 fékk hann sífellt meiri áhuga á fígúratífri myndlist. Samkvæmt The Art Newspaper söðlaði hann að lokum um og fór alfarið að mála nakin módel í óformlegum uppstillingum. Pearlstein átti eftir að segja að hann hefði frelsað manneskjuna frá þeim kvalafullu aðstæðum sem listamenn expressjónismans hefðu þröngvað henni í. „Ég hef túlkað mannslíkamann hans sjálfs vegna, leyft honum að halda formrænni virðingu sinni meðal annarra forma náttúrunnar,“ sagði hann. Skólafélagar Hjónin Philip Pearlstein og Dorothy Cantor með Andy Warhol.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.