Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Side 14

Víkurfréttir - 31.08.2022, Side 14
„Það er alveg æðislegt að búa í Kaupmannahöfn. Ég vildi prófa eitthvað annað en að fara í háskóla á Íslandi og fara svolítið vel út fyrir þægindarammann,“ segir Sandgerðingurinn Ingibjörg Anna Artursdóttir en hún flutti til Danmörkur á síðasta ári til að stunda nám í byggingafræði í Københavns Erhversakademi. Námið sem Ingibjörg stundar heitir Architectural Technology And Construction Management, eða byggingafræði á íslensku. Hún segir námið vera skemmtilegt en krefjandi. „Kennsluhættirnir eru öðruvísi en maður er vanur. Það eru engin skrifleg próf en í staðin höldum við kynningar, bæði hópa og einstaklings. Bekkurinn minn er mjög náinn og við erum dugleg að deila innblæstri og hjálpast að,“ segir Ingibjörg. Ingibjörg byrjaði að skoða nám á Íslandi en hún segist hafa þráð að flytja til Danmerkur. „Ég byrjaði að leita á netinu eftir skólum og fann þá KEA sem er í Kaupmannahöfn. Á vefsíðunni hjá þeim sá ég að þetta væri síðasta önnin þar sem námið væri kennt á ensku. Það var þá sem ég fór að skoða ítarlega hvað þau hefðu upp á að bjóða og sá nám sem kallast Architectural Technology And Construction Management,“ segir Ingibjörg. Hún hafði alltaf verið forvitin um byggingar en aldrei dottið í hug að fara í nám tengt þeim áhuga. Meðan hún beið eftir svari frá skólanum, um hvort umsóknin hefði verið samþykkt, fór hún á opið hús hjá skólanum í Kaupmannahöfn. „Eftir það varð ég ótrúlega peppuð í þetta og biðin varð í raun ennþá erfiðari. Þegar ég fékk síðan svar frá skól- anum að ég hafi komist inn í námið voru ekki nema fjórar vikur þar til ég flutti út,“ segir hún. Ingibjörg segir danska sumarið standa upp úr á því ári sem hún hefur verið búsett í Danmörku. „Það munar svo miklu að fá gott veður á sumrin. Ég og vinir mínir erum dugleg að hjóla á bryggjuna eða í garðinn með gott nesti og sitja bara og spjalla,“ segir hún. Gott skref út fyrir þægindarammann Ingibjörg segir það viðbrigði að flytja ein til annars lands en það sé gott skref út fyrir þægindaramm- ann. „Það er alveg æðislegt að búa í Kaupmannahöfn. Ég vildi prófa eitthvað annað en að fara í háskóla á Íslandi og fara svolítið vel út fyrir þægindarammann. Ég á einhvern vegin mun auðveldara með að vera ég sjálf hérna og pæli ekki jafn mikið í hvað öðru fólki finnst,“ segir hún. „Það sem mér hefur fundist erfiðast er að maður þekkir ekki til og getur ekki reddað hlutunum eins auð- veldlega og á Íslandi en sem betur fer á ég góða vini að sem eru alltaf til í að hjálpa,“ segir hún jafnframt. Sund, íslenska vatnið og að keyra á milli staða er meðal þess sem Ingi- björg saknar mest við Ísland. „Ég sakna íslenska vatnsins svakalega, ég sakna þess líka að fara í sund eftir æfingar og keyra á milli staða, ótrú- legt en satt. Það jafnast bara ekkert á við að keyra með góða tónlist. Svo sakna ég auðvitað fjölskyldunnar og vinanna mest,“ segir hún. Betra veður, fleiri tækifæri og betra kerfi Aðspurð hvert hún stefnir eftir nám segist hún ekki vera viss. Hún segir þó mikla eftirspurn vera eftir fólki sem hefur lokið náminu sem hún er í og því „ætti ekki að vera vandamál að finna vinnu“. Þá segist hún vera opin fyrir því að bæta við sig meiri menntun að námi loknu. „Það er ekkert ákveðið eins og er,“ segir Ingi- björg. En sér hún fyrir sér að eiga heima í Danmörku í framtíðinni? „Já, eins og er þá væri ég mikið til í að búa í Danmörku í framtíðinni. Hér er betra veður, fleiri tækifæri og betra kerfi fyrir fjölskyldur og náms- menn m.a. Mig langar ekkert að fara heim til Íslands eins og er, mamma er ekkert voða sátt við það en hún er dugleg að heimsækja mig,“ segir Ingibjörg. Langar ekkert heim til Íslands „Það er alveg æðislegt að búa í Kaupmannahöfn. Ég vildi prófa eitthvað annað en að fara í háskóla á Íslandi og fara svolítið vel út fyrir þægindarammann“ Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is Samþykkja sölu áfengis á framleiðslustað Suðurnesjabær hefur samþykkt umsókn Litla brugg- hússins um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað. Já- kvæðar umsagnir frá öllum umsagnaraðilum liggja fyrir og því samþykkir Suðurnesjabær framangreinda um- sókn frá Litla Brugghúsinu. Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa, um að starfsemin sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulags- silmála. Lokaúttekt á húsnæðinu hefur farið fram. Af- greiðslutími og staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að er innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitar- félagsins segir til um. Umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Suð- urnesja staðfestir að umrædd starfsemi sé í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli. Í umsögn frá Brunavörnum Suður- nesja er staðfest að kröfum um brunavarnir, miðað við þá starfsemi sem fyrirhuguð er, sé fullnægt. Ingibjörg með vinkonum sínum í Kaupmannahöfn. w 30% Ljósanæturafsláttur af öllu nema 15% af linsum til 3. september Auka par af glerjum fylgir margskiptum glerjum. Bókað í sjónmælingar á heimasíðu og í síma 420-0077. Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 11–15. www.reykjanesoptikk.is 14 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.