Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 14
„Það er alveg æðislegt að búa í Kaupmannahöfn. Ég vildi prófa eitthvað annað en að fara í háskóla
á Íslandi og fara svolítið vel út fyrir þægindarammann,“ segir Sandgerðingurinn Ingibjörg Anna
Artursdóttir en hún flutti til Danmörkur á síðasta ári til að stunda nám í byggingafræði í Københavns
Erhversakademi.
Námið sem Ingibjörg stundar
heitir Architectural Technology
And Construction Management,
eða byggingafræði á íslensku. Hún
segir námið vera skemmtilegt en
krefjandi. „Kennsluhættirnir eru
öðruvísi en maður er vanur. Það
eru engin skrifleg próf en í staðin
höldum við kynningar, bæði hópa
og einstaklings. Bekkurinn minn er
mjög náinn og við erum dugleg að
deila innblæstri og hjálpast að,“ segir
Ingibjörg.
Ingibjörg byrjaði að skoða nám á
Íslandi en hún segist hafa þráð að
flytja til Danmerkur. „Ég byrjaði að
leita á netinu eftir skólum og fann
þá KEA sem er í Kaupmannahöfn.
Á vefsíðunni hjá þeim sá ég að þetta
væri síðasta önnin þar sem námið
væri kennt á ensku. Það var þá sem
ég fór að skoða ítarlega hvað þau
hefðu upp á að bjóða og sá nám sem
kallast Architectural Technology
And Construction Management,“
segir Ingibjörg.
Hún hafði alltaf verið forvitin um
byggingar en aldrei dottið í hug að
fara í nám tengt þeim áhuga. Meðan
hún beið eftir svari frá skólanum,
um hvort umsóknin hefði verið
samþykkt, fór hún á opið hús hjá
skólanum í Kaupmannahöfn. „Eftir
það varð ég ótrúlega peppuð í þetta
og biðin varð í raun ennþá erfiðari.
Þegar ég fékk síðan svar frá skól-
anum að ég hafi komist inn í námið
voru ekki nema fjórar vikur þar til ég
flutti út,“ segir hún.
Ingibjörg segir danska sumarið
standa upp úr á því ári sem hún
hefur verið búsett í Danmörku. „Það
munar svo miklu að fá gott veður
á sumrin. Ég og vinir mínir erum
dugleg að hjóla á bryggjuna eða í
garðinn með gott nesti og sitja bara
og spjalla,“ segir hún.
Gott skref út fyrir
þægindarammann
Ingibjörg segir það viðbrigði að
flytja ein til annars lands en það sé
gott skref út fyrir þægindaramm-
ann. „Það er alveg æðislegt að búa
í Kaupmannahöfn. Ég vildi prófa
eitthvað annað en að fara í háskóla
á Íslandi og fara svolítið vel út fyrir
þægindarammann. Ég á einhvern
vegin mun auðveldara með að vera
ég sjálf hérna og pæli ekki jafn mikið
í hvað öðru fólki finnst,“ segir hún.
„Það sem mér hefur fundist erfiðast
er að maður þekkir ekki til og getur
ekki reddað hlutunum eins auð-
veldlega og á Íslandi en sem betur
fer á ég góða vini að sem eru alltaf
til í að hjálpa,“ segir hún jafnframt.
Sund, íslenska vatnið og að keyra á
milli staða er meðal þess sem Ingi-
björg saknar mest við Ísland. „Ég
sakna íslenska vatnsins svakalega,
ég sakna þess líka að fara í sund eftir
æfingar og keyra á milli staða, ótrú-
legt en satt. Það jafnast bara ekkert
á við að keyra með góða tónlist. Svo
sakna ég auðvitað fjölskyldunnar og
vinanna mest,“ segir hún.
Betra veður, fleiri tækifæri
og betra kerfi
Aðspurð hvert hún stefnir eftir nám
segist hún ekki vera viss. Hún segir
þó mikla eftirspurn vera eftir fólki
sem hefur lokið náminu sem hún er
í og því „ætti ekki að vera vandamál
að finna vinnu“. Þá segist hún vera
opin fyrir því að bæta við sig meiri
menntun að námi loknu. „Það er
ekkert ákveðið eins og er,“ segir Ingi-
björg. En sér hún fyrir sér að eiga
heima í Danmörku í framtíðinni?
„Já, eins og er þá væri ég mikið til
í að búa í Danmörku í framtíðinni.
Hér er betra veður, fleiri tækifæri og
betra kerfi fyrir fjölskyldur og náms-
menn m.a. Mig langar ekkert að fara
heim til Íslands eins og er, mamma
er ekkert voða sátt við það en hún
er dugleg að heimsækja mig,“ segir
Ingibjörg.
Langar ekkert
heim til Íslands „Það er alveg
æðislegt að búa í
Kaupmannahöfn.
Ég vildi prófa
eitthvað annað en
að fara í háskóla
á Íslandi og fara
svolítið vel út fyrir
þægindarammann“
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Samþykkja sölu áfengis á framleiðslustað
Suðurnesjabær hefur samþykkt umsókn Litla brugg-
hússins um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað. Já-
kvæðar umsagnir frá öllum umsagnaraðilum liggja fyrir
og því samþykkir Suðurnesjabær framangreinda um-
sókn frá Litla Brugghúsinu.
Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa, um að
starfsemin sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulags-
silmála. Lokaúttekt á húsnæðinu hefur farið fram. Af-
greiðslutími og staðsetning staðar sem umsóknin lýtur
að er innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitar-
félagsins segir til um. Umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Suð-
urnesja staðfestir að umrædd starfsemi sé í samræmi
við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir
og laga um matvæli. Í umsögn frá Brunavörnum Suður-
nesja er staðfest að kröfum um brunavarnir, miðað við
þá starfsemi sem fyrirhuguð er, sé fullnægt.
Ingibjörg með vinkonum
sínum í Kaupmannahöfn.
w
30% Ljósanæturafsláttur
af öllu nema 15% af linsum
til 3. september
Auka par af glerjum fylgir margskiptum glerjum.
Bókað í sjónmælingar á heimasíðu og í síma 420-0077.
Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 11–15.
www.reykjanesoptikk.is
14 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM