Víkurfréttir - 31.08.2022, Síða 26
Arnór Vilbergsson, organisti Keflavíkurkirkju fór í frábært söngferðalag til Ítalíu með Kór Keflavíkur-
kirkju en uppáhaldsstaður hans og konu hans er Snæfellsnesið. Hann ætlar að sækja marga viðburði
á Ljósanótt en organistinn verður við píanóið á nokkrum tónleikum.
Hve r n i g va rð i r þ ú f y r s t a
sumarfrí inu án Covid tak-
markana?
„Í fyrsta sumarfríinnu eftir Covid
opnuðust flóðgáttir hjá mér og
spússu minni. Við ferðuðumst mikið
erlendis og hérlendis. Heimsóttum
Ítalíu, Frakkland, Hvammstanga og
Borgarnes svo eitthvað sé nefnt.“
Hvað stóð upp úr?
„Það sem stóðu uppúr var án efa
Ítalía. Vorum í Bolzano, við alpana, á
norðanverðri Ítalíu. Kór Keflavíkur-
kirkju var á söngferðalagi sem var
hreint út sagt frábært.
Það sem kom helst á óvart varð-
andi sumarið var hversu gott verður
var raunar hérna á suðvestur-
horninu. Ég skildi aldrei þennan
bölmóð hvað varðar veðrið.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja
heim innanlands?
„Uppáhaldasstaður okkar hjóna
er Snæfellsnesið. Við vorum tvær
nætur á Arnarstapa í sumar í góðra
vina hópi þar sem veðrið lék við
okkur þrátt fyrir vá-spár.“
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
„Hvað varðar veturinn er ég fullur
tilhlökkunnar. Loksins venjuleg tíð,
með kórsöng, messum og öllum þeim
dásemdum.“
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Ljósanótt er skemmtilegur litur á
tilveruna okkar hérna suður með
sjó. Besta við hana er án efa, að fjöl-
skyldur, þar á meðal mín, sameinast
öll þessa helgina.“
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja
á Ljósanótt?
„Kóngatónleikana ætla ég að vera
viðstaddur. Þeir verða í Keflavíkur-
kirkju á fimmtudagskvöldinu kl. 20.
Einnig langar mig til að sækja nýj-
ustu viðbót ljósanæturhelgarinnar
„Í holtunum heima“. Kjötsúpan á
föstudeginum verður tekin. Laugar-
dagurinn hefur iðulega verið þannig
að ég hef reynt að ná kórtónleik-
unum um miðjan dag í Duus húsum.
Auðvitað verður farið niður í bæ á
laugardagskvöldinu og notið þeirra
skemmtiatriða. Á sunnudaginum fer
ég vissulega á Bítlamessuna í Kefla-
víkurkirkju.“
Hver er besta minningin þín frá
Ljósanótt?
„Ég á margar góðar minningar frá
ljósanótt. „Með blik í auga“ hefur
skipað stóran sess á hjá mér síðast-
liðnar Ljósanætur. Húrruðum í þann
viðburð 10 ár í röð. „Ljós um nótt“
var söngleikur sem Keflavíkur-
kirkja setti á svið og þar fékk ég að
leika fuglinn Konna. Því gleymi ég
aldrei. Einnig stendur mikið uppúr
hjá mér þegar við í kirkjunni vorum
með „Queen messuna“ á laugardags-
kvöldinu. Sannarlega stórkostlegt.“
Flóðgáttir opnuðust eftir Covid
„Ljós um nótt“ var
söngleikur sem
Keflavíkurkirkja
setti á svið og þar
fékk ég að leika
fuglinn Konna. Því
gleymi ég aldrei.“
Páll Ketilsson
pket@vf.is
26 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM