Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Side 37

Víkurfréttir - 31.08.2022, Side 37
Hefur ekki enn fengið niðurstöður úr PCR-prófi Covid hafði áhrif á ferðalög margra á síðustu árum og var ferð Svan- hvítar engin undantekning. Þannig er mál með vexti að Svanhvít byrjaði ferðalag sitt í Bandaríkjunum þar sem hún heimsótti vinkonur sínar sem stunda nám þar. Hún ætlaði einnig að fara á tónleika en daginn eftir þá átti hún flug til Kóreu. „Degi fyrir brottför fór ég í PCR- próf og um kvöldið sama dag átti ég miða á tónleika með K-pop grúbb- unni ATEEZ. Ég var búin að bíða lengi eftir að komast á þessa tón- leika og rétt fyrir þá fæ ég símtal þar sem mér er sagt að ég hafi fengið já- kvæðar niðurstöður úr PCR-prófinu. Ég bara hágrét inni á hótelherbergi, ein í New York. Ég hringdi svo í alla nánustu og sagði þeim hvað væri að gerast en þetta þýddi að ég gæti ekki farið á tónleikana og ekki farið til Kóreu næsta dag,“ segir Svanhvít. Svanhvít keypti sér annan flug- miða í kjölfarið og fór í annað PCR- próf tveimur dögum fyrir brottför. Þegar ferðadagurinn rann upp voru engar niðurstöður komnar úr prófinu. Svanhvít ákvað samt sem áður að ríða á vaðið og mætti upp á flugvöll. Henni til mikillar ánægju var boðið upp á slík próf á flugvellinum en hún fékk neikvæðar niðurstöður úr því prófi aðeins klukkutíma fyrir brottför. Þess má geta að Svanhvít hefur ekki enn fengið niðurstöður úr fyrra prófinu. Þrátt fyrir að Covid hafi sett strik í reikninginn segir Svanhvít farald- urinn ekki hafa litað dvöl hennar í Kóreu. „Covid hafði þannig séð ekki mikil áhrif en það var ennþá grímu- skylda og takmarkanir á meðan ég var úti. Það þurfti að vísu alltaf að vera með grímu þegar maður fór út úr húsi og allt lokaði klukkan 23:00. Ég fann það til að byrja með að fólk var ennþá hrætt við Covid en þegar leið á fór það minnkandi. Um það leyti sem ég var að fara heim voru flestallar takmarkanir afnumdar,“ segir Svanhvít. Aðspurð hvort hún muni snúa aftur til Suður-Kóreu segir hún: „Já bókað mál. Hvort sem það verði heimsókn, fyrir skóla eða vinnu, kemur í ljós. Ég var einmitt að sækja um að fara út í skiptinám til Kóreu á næsta ári svo vonandi gengur það upp.“ Svanhvít Ósk Snorradóttir og vinkonur hennar í Suður-Kóreu.Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is Ég var mikið að fara og skoða helstu ferðamannastaðina, fór í fjallgöngur og borðaði góðan mat. Svo fór ég auðvitað til Norður-Kóreu ... @skolamatur @skolamatur_ehf Skólamatar kjötsúpa á Ljósanótt! Við bjóðum alla hjartanlega velkomna í Skólamatar kjötsúpu föstudaginn 2. september frá kl. 18 – 20 að Hafnargötu 30. Grænkerasúpa í boði fyrir þá sem vilja. Umhverfisvænar skálar og skeiðar. Skólamatarlestin leggur af stað frá Iðavöllum kl. 18:15 vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 37

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.