Víkurfréttir - 31.08.2022, Page 37
Hefur ekki enn fengið
niðurstöður úr PCR-prófi
Covid hafði áhrif á ferðalög margra
á síðustu árum og var ferð Svan-
hvítar engin undantekning. Þannig
er mál með vexti að Svanhvít byrjaði
ferðalag sitt í Bandaríkjunum þar
sem hún heimsótti vinkonur sínar
sem stunda nám þar. Hún ætlaði
einnig að fara á tónleika en daginn
eftir þá átti hún flug til Kóreu.
„Degi fyrir brottför fór ég í PCR-
próf og um kvöldið sama dag átti ég
miða á tónleika með K-pop grúbb-
unni ATEEZ. Ég var búin að bíða
lengi eftir að komast á þessa tón-
leika og rétt fyrir þá fæ ég símtal þar
sem mér er sagt að ég hafi fengið já-
kvæðar niðurstöður úr PCR-prófinu.
Ég bara hágrét inni á hótelherbergi,
ein í New York. Ég hringdi svo í alla
nánustu og sagði þeim hvað væri
að gerast en þetta þýddi að ég gæti
ekki farið á tónleikana og ekki farið
til Kóreu næsta dag,“ segir Svanhvít.
Svanhvít keypti sér annan flug-
miða í kjölfarið og fór í annað PCR-
próf tveimur dögum fyrir brottför.
Þegar ferðadagurinn rann upp
voru engar niðurstöður komnar úr
prófinu. Svanhvít ákvað samt sem
áður að ríða á vaðið og mætti upp á
flugvöll. Henni til mikillar ánægju var
boðið upp á slík próf á flugvellinum
en hún fékk neikvæðar niðurstöður
úr því prófi aðeins klukkutíma fyrir
brottför. Þess má geta að Svanhvít
hefur ekki enn fengið niðurstöður úr
fyrra prófinu.
Þrátt fyrir að Covid hafi sett strik
í reikninginn segir Svanhvít farald-
urinn ekki hafa litað dvöl hennar í
Kóreu. „Covid hafði þannig séð ekki
mikil áhrif en það var ennþá grímu-
skylda og takmarkanir á meðan ég
var úti. Það þurfti að vísu alltaf að
vera með grímu þegar maður fór út
úr húsi og allt lokaði klukkan 23:00.
Ég fann það til að byrja með að fólk
var ennþá hrætt við Covid en þegar
leið á fór það minnkandi. Um það
leyti sem ég var að fara heim voru
flestallar takmarkanir afnumdar,“
segir Svanhvít.
Aðspurð hvort hún muni snúa
aftur til Suður-Kóreu segir hún: „Já
bókað mál. Hvort sem það verði
heimsókn, fyrir skóla eða vinnu,
kemur í ljós. Ég var einmitt að sækja
um að fara út í skiptinám til Kóreu
á næsta ári svo vonandi gengur það
upp.“
Svanhvít Ósk Snorradóttir
og vinkonur hennar
í Suður-Kóreu.Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Ég var mikið að
fara og skoða
helstu ferðamannastaðina,
fór í fjallgöngur og borðaði
góðan mat.
Svo fór ég auðvitað til
Norður-Kóreu ...
@skolamatur
@skolamatur_ehf
Skólamatar kjötsúpa
á Ljósanótt!
Við bjóðum alla hjartanlega velkomna
í Skólamatar kjötsúpu föstudaginn
2. september frá kl. 18 – 20 að Hafnargötu 30.
Grænkerasúpa í boði fyrir þá sem vilja.
Umhverfisvænar skálar og skeiðar.
Skólamatarlestin leggur af stað
frá Iðavöllum kl. 18:15
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 37