Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
FRÉTTIR
Í nýrri skýrslu um stöðu og
áskoranir þjóðgarða og annarra
friðlýstra svæða segir að byggja
þurfi upp traust til að ná góðri
sátt á milli allra sem koma að
friðlýstum svæðum, þar með
talið þeirra sem hafa umsjón með
friðlýstum svæðum, landeigenda
og þeirra sem nýta sér þau í
atvinnuskyni. Í skýrslunni er
nýtingarréttur sem nytjaréttar
hafa innan friðlýstra svæða
viðurkenndur.
Í inngangi nýrrar skýrslu
umhverfis, orku- og loftslags-
ráðuneytisins, Þjóðgarðar og önnur
friðlýst svæði, kemur fram að á
Íslandi eru rúmlega 130 friðlýst
svæði og þar af þrír þjóðgarðar og
að heildarflatarmál friðlýstra svæða
sé um 23.500 ferkílómetrar. Einnig
að ríkisstjórnir undanfarinna ára
hafi sett sér þau markmið að efla
friðlýst svæði á Íslandi, auk þess sem
þær hafa lagt áherslu á aukna vernd
miðhálendisins í stefnuskrám sínum.
Mikilvægi bænda viðurkennt
Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir,
bóndi og sveitarstjórnarmaður, sem
sat í nefndinni sem samdi skýrsluna
ásamt Árna Finnssyni og Sveinbirni
Halldórssyni, segist líta svo á að hún
hafi setið í nefndinni sem talsmaður
bænda og sveitarfélaga.
„Hljómgrunnurinn í nefndinni var
góður og nefndarmenn gerðu sé grein
fyrir mikilvægi bænda í samhenginu
og að mínu mati er ríkjandi jákvæðni
gagnvart okkur. Í allri vinnunni
kom mjög skýrt fram að mikilvægi
heimamanna væri ótvírætt og að
vinna þyrfti friðanir í samvinnu við
sveitarfélögin.“
Guðrún bendir á að Vatna-
jökuls þjóðgarði sé stýrt af
fjórum svæðisráðum og stjórn.
„Í hverju svæðisráði og stjórn
eru fulltrúar sveitarfélaga auk
fulltrúa ýmissa hagsmunashópa,
s.s. umhverfisverndar samtaka,
útivistarfélaga og ferðaþjónustunnar.
Nytjaréttarhafar eiga þar engan
fulltrúa þrátt fyrir að það sé eini
hagsmunahópurinn sem hefur
lögvarinn rétt á nýtingu. Ég hef ekki
fengið skýringu á því hvers vegna
svo sé.“
Guðrún segir að ef horft sé til
þeirra lykilþátta sem settir eru fram
í tengslum við áskoranir og tækifæri
sem tengjast friðlýsingu þá fjallar
einn þeirra um mikilvægi trausts og
annar um aðkomu nærsamfélaga, sem
er að hennar mati viðkenning á stöðu
heimamanna.
„Traust á milli hinna ýmsu
hagaðila og stjórnvalda hefur á
stundum ekki verið nægjanlegt
vegna áforma um friðlýsingar eða
innleiðingar á regluverki, gjaldtöku
eða uppbyggingu innviða.
Vinna þarf að því að byggja upp
traust til að ná góðri sátt á milli allra
sem koma að friðlýstum svæðum,
þar með talið þeirra sem hafa
umsjón með friðlýstum svæðum,
landeigenda, þeirra sem nýta sér þau
í atvinnuskyni, þeirra sem vilja njóta
svæðanna, þeirra sem eiga þar óbein
eignaréttindi og annarra hagaðila.“
Virða ber lögvarinn rétt
Annað sem er mikilvægt í skýrslunni
að sögn Guðrúnar og snýr að bændum
er að í henni kemur fram að virða beri
rétt nytjarréttarhafa við friðun lands
enda oft skapast talsvert ströggl um
orðalag þrátt fyrir óbeinan nytjarétt
og úrskurð óbyggðanefndar um það.
„Samspil ákvæða náttúru-
verndarlaga og annarrar löggjafar
á því sviði er oft og tíðum óljóst.
Á þetta t.d. við um sérlög um
Vatnajökulsþjóðgarð, Þjóðgarðinn
á Þingvöllum, verndarsvæði
Mývatns og Laxár og verndarsvæði
Breiðafjarðar. Jarðvangar heyra
ekki undir lög um náttúruvernd
heldur heyra undir verkefni íslensku
UNESCO nefndarinnar og ráðuneyti
menningarmála.
Vinna þarf að því að samræma
og endurskoða löggjöf á sviði
náttúruverndar. Skoða ætti kosti og
galla þess að fella jarðvanga undir
svið umhverfismála á landsvísu.“
Þar segir einnig: „Friðlýsingar-
skilmálar geta verið íþyngjandi. Huga
þarf að málefnalegum rökum fyrir
ákvæðum skilmálanna.
Mikilvægt er að huga vel að
orðalagi friðlýsingarskilmála. Ef
markmiðum friðlýsingar er ekki beint
að því að banna ákveðnar athafnir
sem fjallað er um í skilmálunum gæti
texti skilmálanna vísað í almenn lög
um takmarkanir þessara athafna í
stað þess að tiltaka að athafnirnar
séu óheimilar.“
Þá segir enn fremur: „Með
nytjarétti er átt við rétt til grasnytja og
veiðinytja, þann rétt hafa bændur sem
hafa rétt til að nýta upprekstur á afrétti.
Vegna þessa réttar hafa bændur víða
um land sinnt svæðunum vel með
margs konar innviðauppbyggingu og
landgræðslu.“
Mikið starf óunnið
Samkvæmt lögum á tillaga að
stjórnunar- og verndaráætlun fyrir
friðlýst svæði að liggja fyrir innan tólf
mánaða frá gildistöku friðlýsingar.
Á Íslandi eru rúmlega 130
friðlýst svæði. Í skýrslunni kemur
fram að haustið 2022 sé búið að gera
stjórnunar- og verndaráætlanir fyrir
33 friðlýst svæði og að fjórar þeirra
séu fallnar úr gildi, níu eru í vinnslu
en að slíkar áætlanir séu ekki til
staðar fyrir 76 svæði.
Guðrún segir að í vinnu nefnd-
arinnar hafi komið í ljós að það hafi
verið gerð margs konar mistök þegar
hugmyndin um hálendisþjóðgarðinn
var sett fram og að það hefði þurft að
standa öðruvísi að framkvæmdinni
svo um hana gæti ríkt sátt.
„Nefndin lét framkvæma
skoðanakönnun í tengslum við
skýrsluna og studdist nefndin við
hana við gerð skýrslunnar en þar
kom fram að 51% svarenda telja að
friðlýsa eigi fleiri svæði, 66% eru
fylgjandi gjaldtöku fyrir þjónustu á
helstu ferðamannastöðum og 49%
eru fylgjandi gjaldtöku fyrir aðgengi
að helstu ferðamannastöðum á
friðlýstum svæðum og þjóðgörðum.
Þá telja 36% almennt vel staðið að
verndun náttúru Íslands.“
Í skoðanakönnuninni kom einnig
fram að 64% svarenda eru fylgjandi
því að bæta eigi vegi og aðgengi inn
á hálendið.
/ VH
Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði:
Nytjaréttur viðurkenndur
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum var friðlýstur með sérlögum 1930, sem helgistaður og sameiningartákn íslensku
þjóðarinnar. Í lögum segir að land þjóðgarðsins skuli vera friðað í því skyni að varðveita ásýnd þess sem helgistaðar
þjóðarinnar og til að viðhalda eins og kostur sé hinu upprunalega náttúrufari. Mynd / Myndasafn Bændablaðsins
Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir, bóndi
sem sat í nefndinni. Mynd /Aðsend
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Þann 13. nóvember sl. var ný útgáfa
sálmabókarinnar tekin í notkun í
kirkjum landsins.
Í guðsþjónustu Dómkirkjunnar
í Reykjavík tók biskup Íslands, sr.
Agnes M. Sigurðardóttir, formlega
við fyrsta eintaki bókarinnar úr
hendi forleggjarans. Í þessari nýju
útgáfu eru 795 sálmar og var mikil
breidd í vali þeirra, samkvæmt frétt
á vef þjóðkirkjunnar. Inniheldur hún
kjarnasálma sem sungnir hafa verið í
aldir, ásamt mörgum sem orðið hafa
til á síðustu árum.
Í samanburði við fyrri útgáfu
sálmabókarinnar eru núna fleiri
sálmar eftir konur og segir biskup
það tímanna tákn. Önnur nýjung
er að nokkrir sálmanna eru á
frummálinu, hvort heldur sem það
er Norðurlandamál eða önnur tunga.
Sálmabókin sem nú er verið að
leysa af hólmi kom fyrst út árið
1972 og voru gerðar viðbætur á
henni í gegnum tíðina – síðast 1997.
Sálmabókanefnd hafði umsjón með
vali sálmanna og hefur hún verið að
störfum í nokkur ár. /ÁL
Þjóðkirkjan:
Ný sálmabók tekin í notkun
Þjóðkirkjan hefur tekið í notkun nýja
sálmabók sem leysir af hólmi eldri
útgáfu frá 1972. Mynd / kirkjan.is
Fyrsti rafmagnssteypubíllinn
á leiðinni til landsins
Steypustöðin gekk nýlega frá
samningi við steypudælu og
-bílaframleiðandann Putzmeister
um fyrsta rafmagnsknúna
steypubílinn.
Bifreiðin verður einnig fyrst
sinnar tegundar í heiminum frá
framleiðandanum. Einnig gekk
Steypustöðin frá kaupum á Hybrid
steypudælu og mun því geta dælt
steypu á byggingasvæðum með
verulega lágri kolefnislosun frá
flutningum. Rafmagnsteypubíllinn
er 100% rafknúinn og mengar því
ekkert, hvort sem er í akstri eða
losun steypunnar á verkstað.
„Það var ótrúlega gaman að
ganga frá þessum samningi, það
er ákveðinn viðurkenning fyrir
íslenska steypumarkaðinn að fá
þetta traust og ryðja þannig brautina
í heiminum fyrir umhverfisvæna
steypuflutninga,“ segir Björn
Ingi Victorsson, forstjóri
Steypustöðvarinnar. „Til að taka
skrefið af fullri alvöru höfum
við einnig fest kaup á tvinndælu
sem dælir á 100% rafmagni á
verkstað. Þannig myndast enginn
kolefnisútblástur á verkstað meðan
á steypuframkvæmdum stendur,“
bætir Björn Ingi við. /MHH
Nýi 100% rafmagnssteypubíll Steypustöðvarinnar kemur til landsins í byrjun
nýs árs.