Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
Að virkja stjörnurnar
Sólkerfið okkar er hluti vetrar-
brautarinnar með milljörð um
stjarna.
Sérhver þeirra
brennir gríðar-
legu magni efnis
sem breytt er
að mestu leyti í
rafsegulgeislun.
Lít i l l hlut i
þessarar rafsegul-
geislunar er
sýnilegur okkur
berum augum.
Fæstir gera sér í hugarlund þá
gríðarlegu orku sem felst í þessari
rafsegulgeislun, þegar þeir horfa á
stjörnurnar á næturhimninum.
Það sem við í daglegu tali
köllum ljós, birtu og yl sólar, er
í raun sólin okkar að virka sem
kjarnasamrunaofn að brenna
gríðarlegu efnismagni á hverri
sekúndu og breytir því að mestu
í rafsegulgeislun. Margir gera sér
ekki grein fyrir að birta og ylur
sólar, sem viðheldur mest öllu lífi
á jörðinni, er hrein rafsegulgeislun,
einnig útfjólubláu geislarnir sem við
sækjumst eftir í sólbaði.
Ísland fær 50 terawött
af sólskini
Orkan í geislum sólar er um 14,5
megawött á hektara fyrir ofan
lofthjúp jarðar, en verulegur hluti
þessarar geislunar nær aldrei
yfirborði jarðar. Myndast hefur sú
hefð að miða við miðbaug jarðar
þar sem um 10 megawött á hvern
hektara geisla á yfirborð landsins.
Á íslenskum breiddargráðum ná um
8,9 megawött yfirborði landsins á
hvern hektara sem snýr hornrétt
á geisla sólar. Hlutfallið sem þarf
að leiðrétta þegar sólarsellur eru
keyptar á Íslandi er semsagt 8,9/10
eða 89%. Með öðrum orðum að
draga 11% frá á Íslandi miðað við
miðbaug. Það er nú allur obbinn.
Þegar sólin skín ekki hornrétt
ofan á landið, þá dreifist orkan
bara yfir stærra landsvæði en þetta
er sama orkan, sömu sólargeislarnir.
Nú eru 100 hektarar í hverjum
ferkílómetra og því má einnig segja
að 1 gígawatt af birtu og yl falli á
hvern ferkílómetra sem snýr beint á
móti sólu. Tilsvarandi má segja að 1
terawatt af birtu og yl falli á hverja
þúsund ferkílómetra. Flatarmál
Íslands er 103 þúsund ferkílómetrar,
og því má segja að það myndu falla
103 terawött af birtu og yl frá sólu á
Ísland, ef það sneri beint á móti sólu.
Möndulhalli jarðar og
staðsetning Íslands á hnettinum
veldur því að þetta helmingast u.þ.b.
á vorjafndægri og haustjafndægri
miðað við 64 breiddargráðu er
hlutfallið 0,44, en er töluvert meira
á sumrin. Við sumarsólstöður er
hallinn aðeins um 40,5 gráður,
sem gefur hlutfallið 0,76.
Miðbaugshefðin er notuð hér en
annars þarf að leiðrétta eins og áður
segir með því að draga 11% frá. Við
sumarsólstöður á 64 breiddargráðu
væri þetta með öllum leiðréttingum
103 TW * 0,76 * 0,89 = 70 TW.
Þannig má segja að Ísland fái
um 50 terawött af sólskini, eða
um 50 þúsund gígawött á hádegi á
sólríkum sumardegi. Töluverðum
hluta þessararar geislunar er
endurkastað út í geim.
Sólskinið er þúsundfalt öflugra
en öll orkunotkun Íslands
Samkvæmt evrópskum gagnagrunni
um sólarorku sem tekur tillit til
veðurfars og staðsetningar Íslands
á hnettinum, má sýna fram á að fyrir
hvert 1 kW hámarks-sólarorku, má
fá að meðaltali 0,11 kW yfir árið.
Ársmeðaltal er þá um 5,5 terawött
eða um 5500 gígawött.
Til samanburðar er árleg meðal-
rafmagnsframleiðsla Íslands um 2,1
gígawött.
Þegar olíunotkun upp á 1,4 GW
er meðtalin er samtals aflnotkun á
Íslandi því um 3,5 gígawött sem er
þó minna en þúsundasti hluti af birtu
og yl sólar að meðaltali yfir árið.
Sólskinið er undirstaða
alls lífs á jörðinni
Ljóstillífun plantna og þörunga
er öll háð geislun sólar ásamt
koltvísýringi, tilvist allra plantna
og dýrategunda er háð sólskini, öll
ræktun, öll matvælaframleiðsla er
háð geislun sólar. Öll ræktun fær allt
að 10 MW af sólargeislun á hvern
hektara, þannig að 100 hektarar fá
allt að 1 gígawatt sólargeislunar.
Þetta er orkan sem sólin geislar á
jörðina, alveg óháð því hvernig hún
nýtist
Endurnýjanlegir orkugjafar
Það er rafsegulgeislun sólar sem
knýr áfram uppgufun vatns í
veðurhvolfi jarðar, knýr áfram
veður, vinda og úrkomu. Þannig
er það í raun sólin sem tryggir að
vatnsorkuver, hafi endurnýjanlega
orku. Vindorkuver fá í raun orku
sína óbeint frá sólinni.
Vatnsorkuver og vindorkuver,
hafa þann kost að orkan er til
staðar þó sólin skíni ekki, vatninu er
safnaði í miðlunarlón sem má nýta
mörgum mánuðum seinna mjög
áreiðanlega þegar þörf er á henni.
Einmitt þessi miðlunarlón sem eru
helsti styrkur vatnsorkuvera, eru
einnig helsti veikleiki þeirra, þegar
árstíðabundnar sveiflur í úrkomu
valda því að lónin verða næstum
tóm á vorin.
Vindorkuver geta gefið fulla orku
svo dögum skiptir, en gefa enga
orku í litlum vindi. Þau hafa einnig
þann kost að geta framleitt raforku
þannig að hægt sé að spara vatnið
í miðlunarlónum vatnsorkuvera.
Á heimsvísu, eru fjárfestingar í
vindorku jafn miklar og fjárfestingar
í orkuverum sem eru kolaknúin,
gasknúin og kjarnorkuknúin til
samans.
Jarðvarmaorkuver hafa svipaðan
áreiðanleika og vatnsorkuver, þau
geta framleitt raforku eftir þörfum,
en það er ekki lengur óumdeilt
meðal fræðimanna hvort jarðvarmi
sé endurnýjanlegur.
Sjávarfallaorkuver eru ekki talin
hagkvæm þar sem munur flóðs
og fjöru er hlutfallslega lítill við
Íslandsstrendur. Sú orka sem þar
er nýtt er orkan í snúningi jarðar
um möndul sinn, sem endurnýjast
ekki með geislun sólar.
Ölduorkuver eru á tilraunastigi
en þau nýta í raun vindorku sem
hefur yfirfærst í ölduorku. Eins
og áður segir er vindorkan óbein
sólarorka og endurnýjast með
geislun sólar.
Sólarorkuver
Sólarorkuver fá orku sína beint frá
geislum sólar, en hafa þann ókost
helstan að þau gefa eingöngu orku
þegar sólin skín. Kostir þeirra
eru hins vegar að þau valda engri
mengun, hafa ekkert jarðvegsrask,
krefjast ekki stórtækra vinnuvéla
við uppsetningu, og hverfa
auðveldlega inn í umhverfið.
Sólarorkuver hafa einnig svipaðan
eiginleika og vindorkuverin að þau
geta sparað vatnið í miðlunarlónum.
Á heimsvísu eru fjárfestingar
í sólarorkuverum jafn miklar
og fjárfestingar í vindorku og
vatnsfallsorku til samans.
Annar helsti ókostur
sólarorkuvera er að orkuverðið,
h ið svokal laða vegna
meðalkostnaðarverð raforkunnar,
hefur verið frekar hátt, þó það fari
hratt lækkandi.
Umræðan um orkuvinnslu
Orkusvall hefur það verið kallað
að óska eftir meiri orkuvinnslu í
sambandi við orkuskiptin. Náttúran
í kringum okkur framleiðir
hins vegar um þúsundfalt meiri
endurnýjanlega orku.
Ein helstu rök náttúruverndar-
sinna eru að varðveita óspillta
náttúru fyrir komandi kynslóðir,
að við sem nú lifum, höfum ekki
siðferðilegan rétt til að ræna
komandi kynslóðir þeirri óspilltu
náttúru sem við göngum að sem
sjálfsögðum hlut.
Samtímis mætti segja að við
höfum ekki siðferðilegan rétt
til að valda hamfarahlýnun og
ræna þar með komandi kynslóðir
framtíð sinni og tækifærum sem við
göngum að sem sjálfsögðum hlut.
Því hefur samfélag okkar
siðferðilega skyldu til að draga úr
hamfarahlýnun af mannavöldum.
Það verður ekki gert án orkuskipta.
Anna Jonna Ármannsdóttir,
rafmagnsverkfræðingur og
rafvirkjameistari.
Sólin veitir jörðinni birtu og yl og baðar jörðina í geislum sínum. Einungis
örlítill hluti þessarar birtu og yls sólar, berst til jarðar, bæði vegna þess að
jörðin er svo margfalt smærri en sólin, en einnig vegna þess að jörðin er
langt frá sólinni. Að meðaltali falla um 170 þúsund terawött á allan hnöttinn,
eða 170 milljón gígawött.
Anna Jonna
Ármannsdóttir.
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn
Ríkiskaupa í síma 530 1400
eða í gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
Eignin verður sýnd sunnudaginn 20. nóvember
á milli kl. 13:00 - 13:30 .
Um er að ræða fimm byggingar sem hýst hafa starfsemi SÁÁ
frá árinu 1980. Öllum byggingunum hefur verið ágætlega við
haldið. Náttúrufegurð er mikil og staðsetning er á rólegum og
fallegum útsýnisstað til suðurs yfir Hvammsfjörð og Skógarströnd.
Staðarfell er í um 30 mínútna aksturfjarlægð frá Búðardal og um
2,5 klst. frá Reykjavík. Einstök eign á sögufrægum stað.
Verð: 60 mkr.
Frekari upplýsingar um eignirnar má finna á heimasíðu
Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
Samstarfsaðili í
kjúklingabúskap
Reykjagarður hf. óskar eftir samstarfsaðila til áframhaldandi
uppbyggingar á kjúklingaeldi félagsins til framtíðar.
Horft er til lengri tíma samstarfs með ýmsum útfærslum, t.d. bygging eða
leiga eldishúsa með eða án umsjónar með eldinu, eða innleggsviðskipti.
Æskileg staðsetning er á skilgreindu landbúnaðarsvæði á Suðurlandi
(Árnes- eða Rangárvallasýsla) þar sem hitaveita og gott neysluvatn er til
staðar, þriggja fasa rafmagn og góð vegtenging.
Hér er gott tækifæri til að skapa trygg verkefni, tekjur og eignauppbyggingu
til framtíðar. Kjúklingaeldi hentar vel með öðrum búrekstri og frá
starfseminni kemur verðmætur húsdýraáburður.
Nánari upplýsingar veita Magnús Huldar Ingþórsson framleiðslustjóri,
sími 856 4425, netfang magnus@holta.is og Guðmundur Svavarsson
framkvæmdastjóri, s. 897 6297, netfang gudmundur@holta.is
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn
Ríkiskaupa í síma 530 1400
eða í gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
Eignin verður sýnd mánudaginn 21. nóvember
á milli kl. 11:30 - 12:00 .
Parhús við Laugarbraut á Laugarvatni. Um er að ræða báða hluta
af sambyggðu steinsteyptu parhúsi með fallega staðsetningu og
sér innkeyrslu. Parhúsið er á einu fastanúmeri. Lóðin er 1.735 m2
leigulóð, gróin með malarborinni innkeyrslu og bílaplani. Fallegt
útsýni út yfir Laugarvatn.
Góð staðsetning. Stutt í verslun, sund í Fontana, golf í t.d. Miðdal,
gullni hringurinn, náttúra og saga allt um kring.
Eignin verður aðeins seld sem heild.
Verð: 55 mkr.
Frekari upplýsingar um eignirnar má finna á heimasíðu Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
Smáauglýsingar á bbl.is