Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
LÍF&STARF
Handverksbrugghúsin á Íslandi:
Lengi býr að fyrstu gerð
– Hvernig lítil hugmynd vatt upp á sig
Í síðustu tölublöðum
Bændablaðsins hefur saga
handverksbrugghúsa á Íslandi
verið rakin og heldur sú
yfirferð áfram hér. Að þessu
sinni er ætlunin að fjalla um
Bruggsmiðjuna Kalda, en Kaldi
var fyrsti handverksbjórinn á
Íslandi sem fór í almenna sölu.
Hinn 20. júlí 2005 kynnti
fréttaþulur RÚV, Logi Bergmann,
frétt um lítil brugghús í Danmörku,
með þeim orðum að á síðastliðnum
fimm árum hefðu um þrjátíu ný
brugghús sprottið upp víðs vegar um
Danmörku og væru í auknum mæli
farin að veita Carlsberg-risanum
aukna samkeppni. Þetta sakleysislega
innslag sem varði í rúma mínútu auk
inngangs í fréttatíma RÚV þetta
miðvikudagskvöld í júlí velti af stað
stærstu breytingum á áfengismarkaði
á Íslandi síðan bjórinn var leyfður
árið 1989.
Bylgjan hefst
Agnes Anna Sigurðardóttir sá
nefnilega þessa frétt en hún og
eiginmaður hennar höfðu skömmu
áður selt fiskverkun og útgerð vegna
hnémeiðsla sem Ólafur Þröstur
Ólafsson hafði orðið fyrir. Eins og
sagan var sögð greinarhöfundum
einhvern tímann í fyrndinni var
staðan sú að hvorugt vildi flytja frá
Árskógssandi þar sem þau bjuggu
og voru því á höttunum eftir nýjum
viðfangsefnum. Eftir að hafa séð
fréttina rauk Agnes til, hóaði í
karlinn sem var úti við heyskap og
kynnti honum hugmyndina. Þarna
var ljóslifandi komin hugmyndin
fyrir þau að sökkva sér ofan í. Þau
bókuðu í flýti farmiða til Danmerkur
til að kynna sér þessi brugghús. „The
rest is history,“ eins og sagt er.
Nokkrum mánuðum síðar var
búið að stofna kennitölu, panta
brugggræjur, sannfæra tékkneskan
bruggmeistara í fjórða ættlið að
nafni David Masa um að koma
til Íslands auk þess að reisa um
380 fm hús utan um herlegheitin.
Míkróbrugghúsbylgjan var formlega
hafin á Íslandi, eins og við þekkjum
hana í dag og það er allt út af einni
rúmlega mínútu langri frétt á RÚV.
Hver segir svo að blaðamenn hafi
ekki áhrif?
Kaldaáhrifin
Þó ætla verði að þessi alþjóðlega
tískubylgja, smábrugghúsin, hefði
hlotið að koma til Íslands fyrr eða
síðar veldur sá miklu sem upphafinu
veldur. Gaman er frá því að segja að
brugghúsið úr fréttinni fyrrnefndu
heitir Bryggery Skovlyst og er í um
25 mín. akstursfjarlægð frá miðbæ
Kaupmannahafnar. Brugghúsið
er enn starfandi en það er raunar
brugghús og veitingastaður sem
kann að skýra hugmyndir hjónanna
um þróun Kalda síðar meir, án þess
að hægt sé að fullyrða það hér.
Kaldi varð til og fyrsta bruggunin
fór fram þann 22. ágúst 2006. Fyrsta
framleiðslan var Ljós-Kaldi en svo
fylgdu aðrar tegundir fljótlega
á eftir: Dökkur-Kaldi, Norðan-
Kaldi og Stinnings-Kaldi. Segja
má að Kaldi hafi fljótt náð sterkri
stöðu hjá íbúum Norðurlands
enda Bruggsmiðjan strax vinsæll
áningarstaður fyrir hópa sem vildu
kíkja í brugghús, gera sér glaðan dag
og smakka bjórinn beint af beljunni
(lesist tönkum). Það má reyndar
líka með góðum rökum segja að
góðærisástandið í íslensku samfélagi
hafi hjálpað til, en hærri verðmiði á
bjórum Bruggsmiðjunnar stoppaði
fáa árin 2006 og 2007.
Bjórinn stóð undir væntingum og
náði þeirri fótfestu að Bruggsmiðjan
Kaldi hefur í rúman einn og hálfan
áratug borið höfuð og herðar yfir
hin litlu „sjálfstæðu“ brugghúsin. En
áhrifin voru reyndar mun víðtækari
en bara á míkróbruggið. Þegar Kaldi
kom á markaðinn voru einungis um
sex tegundir af jólabjór í sölu, en
Íslendingar höfðu ekki endilega haft
mikinn áhuga á honum áður ef frá
er talið nokkuð magn af Tuborg-
jólabjór sem hér var seldur á ári
hverju. Kaldi fór fljótlega að brugga
Jólabjór og frá árinu 2010, þegar um
níu tegundir jólabjórs voru í boði, til
ársins í ár þar sem að 99 tegundir af
jólabjór eru í boði, hefur Jólakaldi
verið einn sá alvinsælasti frá smærri
brugghúsunum. Sem dæmi má nefna
að hann var í efsta sæti í smakkpanel
Fágunar (Félags áhugafólks um
gerjun) sem Fréttatíminn stóð
fyrir árið 2011 með einkunnina
90% og skaut þar frumraun Borgar
Brugghúss, Stekkjastaur, sem var í
öðru sæti með 87%, ref fyrir rass.
Vilja margir meina að sú sprengja
sem varð á jólabjóramarkaðinum
á öðrum áratug 21. aldarinnar hafi
að miklu leyti verið tilkomin vegna
þess sem síðar hafa verið kölluð
Kaldaáhrifin.
Bjórböð og fálkaorða
Kaldi hefur vaxið jafnt og þétt
á þessum rúmlega 16 árum sem
liðin eru frá stofnuninni. Það sem
einkennir reksturinn er að Agnes
og Ólafur hafa alla tíð hugsað
það sem fjölskyldufyrirtæki, en
sonur hjónanna, Sigurður Bragi,
er núna yfirbruggmeistari Kalda
og fjölskyldan saman, börn og
tengdabörn reka herlegheitin.
En Kaldi er í dag meira en bara
brugghús. Árið 2017 opnaði fyrirtækið
bjórböð, KaldaSpa ásamt veitingastað.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Höskuldur og
Stefán
hoskuldur@bondi.is
Míkróbrugghúsbylgjan hófst formlega þegar Kaldi varð til árið 2006. Mynd/
Kaldi
Hjónin Ólafur Þröstur Ólafsson og Agnes Sigurðardóttir stofnuðu Kalda eftir að hafa horft á fréttir RÚV eitt kvöld
í júlí árið 2005. Mynd tekin 2010. Mynd /H.Kr.
Hjónin sannfærðu tékkneska bruggmeistarann David Masa um að koma til
Íslands í vinnu. Mynd / Kaldi